Sjómannablaðið Víkingur

Volume

Sjómannablaðið Víkingur - 01.09.1941, Page 3

Sjómannablaðið Víkingur - 01.09.1941, Page 3
Um hvað er talað? í Sódóma var drukkið dátt, og dansað villt og sungið hátt. Um reðar lýðsins eitur rann, og enginn virti skaparann, né boð og bann. Hver sál var trvllt, af böli blind af blóðsins þrá, af boldsins synd, og allt var selt, og allt var keypt, og allt var levft. Davíð Stefánsson. Mikið er nú rætt um siðferðisástandið í land- inu, kvenþjóðin okkar er nú umsetin af ásæln- um og í sumum tilfellum kynferðislega tryllt- «m erlendum mönnum. Hrottaleg illvirki hafa verið framin á varnarlausu fólki á förnum vegi. Nokkuð stór hópur af konum og stelpu- krökkum hafa sjálfviljugar af fáfræði eða ístöðuleysi lent í hringiðunni og beðið siðferð- islegt skipbrot, og sumar hafa gert það að yfirlögðu ráði. Blöðin köstuðu fyrst steinum að hinum ólánssömu manneskjum, en sneru síðan við blaðinu, og ásökuðu lögregluna fyrir að hafa haft opin augun fyrir því, sem var að gerast. Fáum eða engum datt í hug að setja út björgunarbátinn. Menn hafa hér á landi komið upp allskonar loftvörnum gegn ímynd- uðum árásum, og myndað hjálparsveitir til að geta sinnt særðum og limlestum meðborgurum, en þegar menn sjá íslenzka kvenæsku, og til- vonandi mæður væntanlegra íslendinga, af- vegaleiddar eða í bráðum voða, hreyfir enginn niaður hönd eða fót þessum manneskjum til bjargar, eða hinum til verndar. Til þess að forða kvenþjóðinni frá spillingu, þarf að sannfæra hana um að kvenleg siðprýði sé nokkurs metin. Eins og nú standa sakir, kynnist hún því gagnstæða. Ennþá er það ekki nema umkomulausasti eða lélegasti hlut- inn af kvenþjóðinni, sem hefir fallið. Merki- lega lítill hluti, þegar tekið er tillit til hvað Htið þeim hefir verið liðsinnt, og hvað árásar- liðið er miklu fjölmennara. En því lengur sem umsátin stendur, því hættulegra er að vörnin bili, nema varnarþrekið fái nýja og nýja nær- ingu. Jónas Jónsson alþm. hefir skrifað athyglis- verða grein um ástandið í Reykjavík, þar sem hann bendir á tvær leiðir, sem hann álít- ur þær einu, sem hægt er að fara. Að safna sjálfboðaliði til að mynda öflugan félagsskap til að efla og styrkja hina vanmáttugu for- eldra í bæjunum til að koma öruggu skipulagi é heimili sín og uppeldi barna sinna. Og að fyr- irbyggja notkun eiturlyfja. Jónas Jónsson telur ástandið stafa frá kjall- ara þjóðfélagsbyggingarinnar og þaðan muni sýkin berast upp á efri hæðirnar, ef ekki er að gert. En það, sem þjáir þjóðina miklu frem- ur er þakleki. Mesta hættan í siðferðismálum stafar frá fyrirmönnunum. „Höfðingjarnir hvað hafast að, hinir halda sér leyfist það“. í illa byggðu hreysi er alltaf hætta á að það, sem rennur út úr á þakhæðinni. leki yfir þá sem undir búa. Er ekki ástandið nú, nærri bein afleiðing af léttúð ráðandi stjórnmálamanna að und- anförnu, sem hafa sí og æ samrekkst í því sem miður fer, og nærri alltaf brugðist skyld- um sínum ef þeir áttu að neita sér sjálfum um nokkurn hlut? Hvað syndir kvenna við setuliðið snertir. — Eiga þeir þá enga sök, sem mælt hafa með þeim sem sambýlismönnum og velkomnum gestum? Þegar ekki var hægt að fyrirbyggja komu þeirra, var alveg fyrirsjáanlegt að skera þurfti upp herör í landinu, til verndar íbú- unum. Mikið er hægt að gera með fortölum og öfl- ugum samtökum, en myndugu kvenfólki, með óbrjálaða skynsemi, er ekki hægt að meina að haga sér eins og þeim sýnist í einkamálum, á meðan það snertir þær einar og skaðar ekki aðra og umhverfi þeirra. En komi hið gagn- stæða á daginn, og sérstaklega að þær leiði út í það aðrar stúlkur með sér, þá á tafarlaust að afkróa þær, þar sem öðrum er óhætt fyrir starfsemi þeirra. En hinu kvenfólkinu, sem vill halda sér utan við þetta, á að sýna virðing og veita þeim fulla vernd. Lögregan hefir hlotið góða æfingu og tek- ið miklum breytingum til hins betra, undir stjórn núverandi lögreglustjóra. Á því þarf að verða framhald. En eins og ástandið er nú, er hún ekki nægilega mannmörg og ekki nægilega vel vopnum búin, til að skapa til- hlýðilega virðingu meðal brynjaðra og óstýr- VÍKINGUR 3

x

Sjómannablaðið Víkingur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.