Sjómannablaðið Víkingur

Árgangur

Sjómannablaðið Víkingur - 01.09.1941, Blaðsíða 30

Sjómannablaðið Víkingur - 01.09.1941, Blaðsíða 30
kveðin þannig, að báturinn gengi um 9 mílur með 130 hestafla afkasti, er svarar til 1250 snúninga á vél, en 285 á skrúfu, og með tilliti til þess var skurður skrúfunnar hafður mjög mikill eða 118 cm. á snúningi. Skrúfan er fastaskrúfa með 3 breiðum blöðum og er þvermálið 120 cm. Þáð mun hafa verið sagt á Akranesi, áður en vélin var reynd, að annað hvort hlyti vélin eða skrúfan að vera vitlaus, því að það kæmi ekki til mála að svona lítið vélarkrýli gæti snúið þvílíki'i skrúfu. En reynzluförin fór á annan veg, því að vélin fór ekki aðeins upp í 1250 snúninga, er svarar til 285 snúninga á skrúfu og 9—10 mílna gangs, heldur komst hún upp í 320 snúninga með þessa þungu skrúfu, — en það svarar til 1400 vélarsnúninga. Reyndist þá gangur bátsins um lOþíj míla, en vélarafköst 140 hestöfl. Með skrúfu þeirri, sem nú er á Hermóði, verður ekki nýtt meiri orka úr vélinni en þetta. Með annarri skrúfu og minni skurði, væri hinsvegar hægt að auka ganghraða bæði vél- arinnar og bátsins um sem svarar 25 hestafla auknu afkasti, en til þess þótti eins og að fram- an var sagt ekki ástæða. M.b. Hermóður hefir nú vei’ið við rekneta- veiðar undanfarinn mánuð og hefir vélin það sem af er og í ýmsum veðrum reynst í alla staði prýðilega. Gangur bátsins hefir verið því nær jafn í barningi sem í logni, enda gefur það að skilja að dráttarafl jafn stórrar og hæggengrar skrúfu sem á Hermóði, hlýtur að vera mikið. Vélin er einföld í gæzlu. Er hún ræst með rafmagni eins og bílmótor og fer í gang sam- stundis og stutt er á hnapp. Sérstakir mælar sýna snúningshraða, raf- hleðslu, smurolíuþrýsting, smurolíuhita og kælivatnshita. Er því auðvelt að fylgjast með öllum gangi vélarinnar. Á vélinni er ábyggður rafall 250 watta, er hleður rafgeymi, sem notaður er til að ræsa vélina. I vélarrúmi Hermóðs er auk þess Stuart- ljósavél, en annars er hægt að fá Gray-vélarn- ar með ábyggðum Ijósavélum 750 eða 1500 watta. Von er á um 10 Gray-dieselvélum með öll- um útbúnaði til landsins á næstu mánuðum, ef nauðsynleg útfluttningsleyfi fást frá Ameríku. Eru vélar þessar þegar seldar. Gísli Halldórsson. Óbreytt ástand Framh, af bls. 15. einhverju leyti og með a. m. k. einn vel vopn- aðan togara til varnar. Jafnvel að heimta það af verndurum okkar. Það er alls ekki of hörð krafa. Og ótrúlegt er það, að þeir neiti henni, þar sem þeir viðurkenna skipalestakerfið sem hið eina framkvæmanlega, til að halda sín- um siglingum í horfinu, og þykir þær nógu á- hættusamar samt. Hvernig eiga líka verndar- ar landsins að neita okkur um þá einu vernd, sem vér höfum þurft á að halda hingað til og sem staðreyndirnar hafa sýnt. að er nauðsyn- leg. Almennt er viðurkennt, að missum við 2—3 skip enn, þá verði hætt að sigla aftur. Hvað sýnir betur fánýti núverandi fyrirkomu- lags? Ef svo illa færi, þá verður að breyta til, hvað sem það kostar. Því þá ekki að gera það strax? Höfum vér ekki þegar næga reynzlu, eða þarf að gera fyrst eina tilraun? Það mega Bretar eiga, að þeir slaka ekki á árvekninni, þó skipatjónið minnki með köflum Það gríp- ur þá ekki nein óeðlileg bjartsýni. En hjá okk- ur ríkir skammarlegt sleifarlag og skipulags- leysi á þessum málum. Vandamál og hirðu- leysi. VÍKINGUR Á meðan orustan um Atlantshafið geysar í öllum sínum hatrama hrikaleik og þar sem þýzkir kafbátar liggja hrannaðir í leyni með gljáfægða gínandi fallbyssukjafta og galopin tundurskeytarör og bíða fórnarlambanna, og þýzkar sprengjuflugvélar svífa yfir hafinu leitandi að bráð, þá leggja bandamenn sig alla fram til gagnráðstafana til verndar skipa- flotum sínum og reyna öll hugsanleg ráð til að draga sem mest úr skipatjóninu og nota til þess bæði flugvélar sínar og herskip o. fl. En þá ætla íslendingar sér þá dul, að sigla sínum skipum einum sér og óvörðum um sama svæði, jafnvel með áætlunarsnioi sem væru venju- legir friðartímar. Þess væri óskandi, að þessi dæmafáa bjartsýni léti sér ei til skammar verða. Það vonum vér allir. En væri ekki rétt- ara að búast við því versta og reyna að birgja brunninn áður? Krafa allra hugsandi sjómanna hlýtur því að vera sú, að reynt verði að koma siglinga- málunum í viðunandi horf, og það fyrr heldur en seinna. Og eina hugsanlega leiðin, miðað við fengna reynslu er sú, að taka upp skipa- lesta kerfið í einhverri mynd. Kristján Jónsson, loftskeytamaður. 10

x

Sjómannablaðið Víkingur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.