Sjómannablaðið Víkingur

Árgangur

Sjómannablaðið Víkingur - 01.02.1946, Blaðsíða 8

Sjómannablaðið Víkingur - 01.02.1946, Blaðsíða 8
Grein su, er hér fer á eftir, gefur nokkra hugmynd um hetjudá'ðir þær, sem unnar eru af sjómönnum á hinum litlu en vel útbúnu tundurduflaslæðurum Breta. Við þau störf þarf mikillar ráðsnilli með, og oft þurfa skipshafnirnar a'ð horfast í augu við bráðan voða. TUNDURDUFLAVEIÐAR Greinin er þýdd úr „The War lllustra- ted“, no. 218, 26. okt. 19 U5. Þýðandinn er Ragnar Jóhannsson skip- stjóri á vélskipinu Grótta frá ísafirði, og þarf ekki að kynna hann fyrir íslenzkum sjómönnum. Brezkir tundurduflaslæðarar hafa ekki legið á liði sínu — og eiga ennþá mikið óunnið við að hreinsa hulin morðtæki úr höfunum. Jafnvel nú, — eftir að átök ófriðarins eru um garð gengin, reynir engu minna á hugprýði og atorku þeirra, sem fást við hið mikilvæga hlutverk — að slæða tundurduflin af skipaleið- unum. — Fyrst og fremst á þetta við fyrir ströndum Vestur-Evrópu — og eins í hinu fjar- læga austri. Hvað mikið þegar er unnið og hvað mikið er ennþá ógert til að gera allar siglingaleiðir öruggar, er drepið á í eftirfarandi grein. Það má ef til vill segja að stríðið sé búið, en það nær ekki til brezkra tundurduflaslæðara. Starfi þeirra er langt frá að vera lokið. Þeir munu verða að verki allt næsta ár og jafnvel lengur og eigi linna fyrr en að fullu hefir ver- ið unninn bugur á hinu mikla tundurduflafári. Það, sem nú er aðallega unnið að, er hreinsun allra hafna N.V.-Evrópu — frá Brest að Katte- gat. I ágúst s. 1. byrjuðu 100 brezkir slæðarar á að hreinsa tundurduflabeltið, sem lagt var við strendur Bretlands til vamar strandsiglingum- 100.000 duflum var lagt á því svæði meðan á stríðinu stóð. Auk þess er aragrúi af óvina- duflum allar tegunda og liggja þau aðallega ut- an við hin hreinsuðu sund og hafa því ekki verið slædd meðan á stríðinu stóð. Frá friðardegi til miðs ágústs voru yfir 2000 dufl slædd á þessum slóðum, venjulega um 300 til 350 á viku. Þessi 100.000 tundurdufl, sem lögð voru, eru sögð hafa kostað 25 milj. sterl. pund. Þegar þau eru slædd, eru þau aðeins los- uð bg eyðilögð og síðan sökkt, þar sem lítið verðmæti er í þeim sem brotajárni. T.N.T.- sprengiefnið, sem í þeim er, kostar lítið yfir 1 skilding pundið og borgar ekki fyrirhöfn við að hirða það. Auk ellefu flotadeilda, sem nú eru við þetta, hafa 22 sérstakir slæðarar verið byggðir og er þeim aðallega ætlað að vinna á grunnvatni. Þar sem úr þessu dregur mjög yfir vetrarmánuðina, byrjar aðal átakið ekki fyrr en með vorinu. Við tundurduflaslæðingar heima fyrir og í fjarlægum höfum eru nú 1350 skip alls, mönnuð 50.000 undir- og yfirmönnum. Af þeim eru 90% stríðstíma varamenn (R.N.R.) Þegar duflasvæði er slætt, raða slæðararnir sér þannig, að aðeins forustuskipið fer inn á hættusvæðið. Hin koma svo í röð til hliðar og hvert aftur undan öðru og draga á eftir sér vír með flotholti í endanum, sem er þannig gert að það heldur vírnum út frá skipinu. Hvert skip slæðir því færu, sem næsta skip getur svo haldið sig í. (Þetta er þó aðeins ein aðferð af fleirum). Síðast kemur svo baujuskipið og baujar svæðið eftir því sem það er slætt. Þannig er haldið áfram fram og aftur líkt og sveitafólk rifjar flekk, þar til allt svæðið er búið. Bretar eiga án efa langbezta flota heimsins af tundurduflaslæðurum. Þessi skip eru yfir- leitt ekki umbreyttir togarar, heldur sérstak- lega til þess byggð og útbúin margskonar tækj- um, sem ennþá eru hernaðarleyndarmál og not- uð eru við að ónýta ýmsar gerðir tundurdufla, sem hrúgað hefir verið í sjóinn af þýzkum flug- vélum, kaf- og hraðbátum. Miklum árangri hefir þegar verið náð við að hreinsa Norðursjóinn og Ermasund. Suður- hluti Norðursjávarins var einna verst leikinn, 40 V I K I N □ U R

x

Sjómannablaðið Víkingur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.