Sjómannablaðið Víkingur

Árgangur

Sjómannablaðið Víkingur - 01.02.1946, Blaðsíða 13

Sjómannablaðið Víkingur - 01.02.1946, Blaðsíða 13
þá enginn skaði skeður, þó að við þurfum að hleypa. Ég þarf svo hvort sem er að hitta hann að máli, hann Guðmund mág minn! Nú var farið á sjóinn og haldið út á hákarla- mið — og loks lagzt við stjóra alllangt undan yztu nesjum. En þegar legið hafði verið tæpan klukkutíma, hvessti mjög á suðvestan, og brátt var komin kröpp og illvíg alda. Þá var létt og síðan snúið undan, undin upp segl og ekki linnt förinni fyrr en komið var þangað, sem Guð- mundur mágur formannsins bjó. Förin gekk ágætlega, enda var formaður orðlagður stjórn- ari. Og nú skal þess getið, að hann átti heima vestur í Arnarfirði, en mágur hans bjó norður í Önundarfirði, og er beinasta sjóleið á milli nokkurra klukkutíma ferð á miðlungs ganggóð- um vélbát. Ekki voru orð bónda um nóttina sögð af neinum drýgindum, heldur svipað og maður segði: Það ætlar, held ég, ekki að verða engjaveður í dag, en ég fer nú samt, því ef hann hvessir og fer að rigna einhver ókjör, þá skrepp ég bara heim að Hóli, þa-rf að hitta hann Jón sem snöggvast. Þá veit ég sönnur á því, að formaður fór í hákarlalegu frá Sellátrum í Tállmafirði, hreppti hvassviðri og lenti í Bolungarvík við Isafjarð- ai’djúp. Báðir voru þessir formenn á áttæringum. ★ Það var vani á seglskipum vestra, hvað sem kann að hafa tíðkazt annars staðar, að skip- stjórar slepptu ekki stýri í vondum veðrum, og ef það kom fyrir, að einhver gerði það, var frá því sagt honum til óvirðingar. Það er og sann- ast mála, að á litlum seglskútum var líf allrar skipshafnarinnar í höndum þess, sem stýrði, þegar hvassviðri var og verulega vont í sjó. Vestfirzk skip voru oft við veiðar fyrir austan Horn, og þegar svo bar undir, að hvassviðri skall á af austri eða norðri, var það algengt, að skipstjórar stóðu við stýri alla leið af Horn- grunni eða austan fi’á Reykjarfjarðarál og vest- ur á Skutulsfjörð, Önundarfjörð eða Dýrafjörð. Stýrishús voru ekki á skútunum, svo að það var ærið votsamt og kalsalegt að standa við stjórn í margar klukkustundir, þegar allt fylgdist að: stormur, frost og snjókoma, — nú, og svo við og við ærleg sjóskvetta, minnsta kosti á smá- skipunum. Var stjórnin vandasamt verk og á- byrgðarmikið, en líka mjög lýjandi og reyndi á herkju manna og þrautseigju. Er því óhætt að fullyrða, að hún hafi reynt menn jafnt andlega sem líkamlega, og að þeir myndu hvergi hafa verið taldir vesalmenni eða veifiskatar, sem stóðust með prýði slíka raun — og það langt fram á efri ár. ★ Það var eitt sinn sem oftar, að gamall skip- stjóri stýrði skipi sínu alla leið frá Horni og vestur á Haukadalsbót í Dýrafirði, en þangað leituðu mjög undan veðri ekki aðeins vestfirzk skip, heldur og skip frá Breiðafirði, Faxaflóa og frá Norðurlandi — ennfremur Færeyingar og Frakkar. Þegar lagzt hafði verið við akkeri á Haukadalsbót, fór gamli maðurinn ofan í ká- etu. Þar logaði ljós, og tveir menn voru þar fyrir, þegar skipstjóri kom. Hann leysti nú af sér sjóhattinn, rykkti honum síðan af höfðinu á sér, leit innan í hann og mælti: — Hvort er nú ónýtt, hárið eða hatturinn? Stýrimaður leit í hattinn og sá, að við koll- inn var föst allstór hárflygsá. Stýrimaður sagði: — Ætli það sé ekki frekar hatturinn. — Nema hvort tveggja sé það! mælti skip- stjóri með hægð. Eftir þetta var ávallt hárlaus blettur í hvirf 1- inum á honum, eins og hestbitið rjóður í vel sprottnu túni.....í þetta sinn var mikið frost, en hatturinn gamall, og hafði drepið inn úr honum. ★ Dæmi vissi ég til þess, að skipstjóri kom frá stýri á mjög litlu seglskipi, eftir langa siglingu í afar vondu veðri og stórsjó, votur mjög að neðanverðu, en þó voru stígvél hans og sjóbux- ur það vel heldar hlífar, að sjóvotur var hann ekki. Hitt er annað, að hann hafði ekki árætt að sleppa stýrinu svo lengi, að hann fengi af- stýrt þeirri vosbúð, sem börn þurfa stundum við að búa meðan þau skortir vit og lag til að hafa fullorðinna manna hentisemi. ★ Margar sögur eru sagðar af kaldlyndi sjó- manna á hættustundum, og virðast sumum slíkar sögur mjög hneykslanlegar. Mig minnir, að í Sjómannabladinu Víking væri sögð fyrir nokkrum árum saga sú, sem hér fer á eftir eins og ég man hana: Prestur var farþegi á skipi, og þótti honum sjómennirnir bölva mikið, og fannst honum þetta miður sæmandi. Þó þótti honum allra sízt viðeigandi orðbragð skipstjói’ans, sem blótaði oft og kröftuglega. Fannst presti hann gefa mönnum sínum illt fordæmi. En þá er prestur- inn hafði orð á þessu við einhvern af skipsmönn- unum, þá sagði sá, að hann skyldi prísa sig sæl- an, meðan skipstjóra hrytu blótsyrði af vörum, því að svo lengi sem orðbragðið væri þannig, mundi öllu óhætt. En prestur lét sér fátt um finnast þessa kenningu. Svo var þá það, að veð- ur versnaði stórum, og loks þótti presti mjög úr hófi keyra. Hann spurði nú einhvern skips- manna, sem hann náði til, hvað væri að segja af skipstjóranum. V I K I N G U R 45

x

Sjómannablaðið Víkingur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.