Sjómannablaðið Víkingur

Ukioqatigiit

Sjómannablaðið Víkingur - 01.02.1946, Qupperneq 12

Sjómannablaðið Víkingur - 01.02.1946, Qupperneq 12
þiggja af náð. Hins er svo engin þörf, að aumka sjómennina. Starf þeirra er karlmannlegt, og sumir af þeim, svo sem fiskimennirnir á vél- bátunum, hafa daglega með höndum störf, sem eru fjölbreyttari en flestra annarra, og víst er um það, að þó að sjómenn bölvi raunar vondu veðri og válegum sjóum, mundu margir þeirra una því frekar illa, ef aldrei gustaði svalt eða gutlaði um þá — og ekki hreyfðist frekar það, sem þeir stæðu á, heldur en þeir væru við verk í sölum Alþingis, í skrifstofum Arnarhvols eða í fjósi upp í Mosfellssveit. ★ Ég mun nú segja hér nokkrar sögur um sjó- menn, en ekki get ég ábyrgzt, að þær séu allar dagsannar. En þess ber að gæta, að jafnvel saga, sem hefur aldrei gerzt, getur haft sitt gildi, ef hún vekur athygli á einhverju því í heimi veruleikans, sem er þess vert, að því sé gaumur gefinn. ★ Eitt af mestu skáldum Norðmanna, Jónas Lie, kvað sér stundum hafa liðið illa, þá er hann var langdvölum frá sjó, enda var hann uppalinn í hafnarbæ í Norður-Noregi, og þar umgekkst hann mjög mikið sjómenn í bernsku og hafði hið mesta yndi af því að heyra þá segja frá. Eitt sinn bjó Lie alllangt uppi í fjalladal ein- um á Ítalíu, og var hann mjög tekinn að langa til að sjá hinn kvika flöt sjávar og heyra öldu- gjálfur, þegar hann loks fór burt úr fjalla- þrengslunum. Þá er hann svo kom þangað, sem hann sá út á sjóinn, greip hann áköf löngun. Það var aðeins örstuttur spölur til sjávarins, og Lie stökk af stað og fór beinustu leið ofan í fjöru. Þegar þangað kom, æddi hann fram í flæðarmálið, fleygði sér þar niður og svalg sjó- inn eins og þyrstur maður teygar hressandi lindarvatn. Á eftir fannst honum líðanin betri en hún hafði verið lengi. Slík voru þau áhrif, sem Lie hafði orðið fyrir í bernsku af hinum tilkomumikla og breytilega sævi, og það getur því sízt talizt undarlegt, þó að margir þeirra, sem eiga við hann ýmist gott eða grátt gaman um langa ævi, verði honum tengdir allsterkum böndum, enda er það svo, að sumir sjómenn geta vart unað lífinu í landi, þegar til lengdar lætur, þó að til séu þeir, sem geta tekið undir með skáldinu og sagt: „Leið- ur er mér sjávar sorti og súgandi bára ....“. Ég þekki skipstjóra, sem orðinn er hálfsjötugur en stjórnar ennþá skipi við fiskveiðar og afiar vel, en þegar hann hefur verið nokkra daga í landi, kennir hann margvíslegra kvilla, auk þess sem fljótlega grípa hann leiðindi. En þeg- ar hann svo hefur verið einn, tvo daga á sjó, er svipurinn orðinn rólegur og hýr og öll slæmska — eða svo til — rokin veg allrar ver- aldar. ★ Eitt sinn leiddi ég gamlan mann og blindan niður í fjöru. Ég var samtíða honum, þegar ég var krakki, og við vorum mestu mátar. Mér þótti það talsvert undarlegt, þegar hann bað mig að leiða sig þetta, en samt gerði ég það orðalaust. Þá er hann hafði staðið stundarkorn frammi við flæðarmál og stuðzt fram á stafinn sinn, sagði hann, og ég heyrði, að það var í senn feginshr.eimur og klökkvi í röddinni: — Maður guðs! Þetta er eins og englakvak, ja, maður guðs! Þessi gamli maður hafði stundað sjó meira og minna á hverju ári frá því að hann var um fermingu og þangað til hann varð blindur. ★ Ég hef heyrt sagt af gömlum formanni og miklum aflamanni, sem fór sjóferð á árabát með syni sínum, sem var orðinn formaður. Gamli maðurinn var búinn að vera steinblindur í nokkur ár, þegar hann fann upp á að fara þessa sjóferð. Þetta var snemma vors, veður gott, en þó nokkur gola, og vindbára gutlaði við súðina. Hinn gamli formaður lagði eyrun við, en allt í einu lyfti hann höfði og beindi blind- um augunum að syni sínum. Svo sagði hann: — Nú kvakar fiskur í hverri báru, og hér skal leggja! Þetta var mjög skammt undan landi, og hélt sonurinn, að ekki væri nokkur branda skriðin svona grunnt, þetta snemma á tíma. Hann lét samt að orðum gamla mannsins, og reyndin varð sú, að hlaðafli var á lóðina. Meðan á drætt- inum stóð, sat gamli maðurinn og handlék fiska og hafði við þá ýmis orð: — Fallegur ert þú, greyið — og hvaðan komstu? Neðan af Björgum kannski? ........... Líka: — 0, stórt er á þér nefið, smánin, rétt vanskapaður, tetrið, en kýldur er maginn, ekki vantar það! ★ Ýmsum mun nú þykja furðu gegna, hve dug- andi sjómenn létu sér það lítt fyrir brjósti brenna að sigla opnum bátum langar leiðir í allvondum veðrum. Útvegsbóndi í Fjörðum vest- ur kallaði eitt sinn að vetrarlagi menn í há- karlalegu. Var gengið snemma til hvílu, en síð- an vaknað stuttu eftir miðnætti og hugað að veðri. Bónda leizt það ekki sem tryggilegast, en þótti stórum miður, ef hann yrði að hverfa frá að fara í legu, þar sem líka sumir af hásetum hans höfðu verið kallaðir alllangt að. Loks sagði hann: — Ég hugsa, að hann hvessi illa á suðvestan upp úr birtingunni. En við förum samt. Það er 44 V I K I N G U R

x

Sjómannablaðið Víkingur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.