Sjómannablaðið Víkingur

Árgangur

Sjómannablaðið Víkingur - 01.02.1946, Blaðsíða 26

Sjómannablaðið Víkingur - 01.02.1946, Blaðsíða 26
skipstjóri hafði affermt í Melbourne á tilsett- um tíma og fengið fullfermi til baka. Allt virtist í himnalagi. En Atlantshafið er dutlungaíullt eins og fimmtug piparmey. Hin ferska gola dó allt í einu út. Hægfara, silalegar öldur ultu í átt til lands, en „María“ gamla lá kyrr, með slap- andi seglum, og beið eftir ofurlitlu kuli. Aronsen skipstjóri kipraði saman annað aug- Það var stórt, svart gufuskip. að cg horfði íhugull út yfir hafið. Lengst í fjarska, þar sem haf og himinn runnu í eitt, kom í ljós skýjabakki, blýgrá rönd, er óx og færðist nær. „Vissi ég ekki“, tautaði hann og sneri sér að hásetunum, sem lágu í makindum í kojum sín- um. „Fljótt á fætur, piltar“, hrópaði hann, „nú ríður á að rifa fljótt seglin!" Hásetarnir hrukku við og gláptu á hann, án þess að skilja upp né niður. „Hurry up, boys, — senn er friðurinn úti. Hann er að gera ofsarok á vestan!“ Það þaut í reiðanum, — ofurlítill gustur hreyfði seglin. 1 næstu andrá skall stórviðrið yfir þá af slíkum- ofsa, eins og flóðgátt hefði opnazt. „Aldrei hef ég þekkt slyngari veðurspámann en skipstjórann“, sagði bátsmaðurinn við timb- urmanninn. „Hvernig í andskotanum gat hann vitað að hann gerði rok núna í öllu logninu ?“ „Hann?“ sagði timburmaðurinn. „Hann finn- ur lyktina af veðrinu minnst hálfum mánuði áður en það kemur. Þó að það sé fimmtíu stiga hiti um hásumarið, — segi Aronsen skipstjóri, að hann geri hríð — well, boy, — þá geturðu öruggur hypjað þig í loðfeld og þykk ullaríöt. Því hafi Aronsen sagt að hann geri hríð þá gerir hann hríð“. Aronsen skipstjóri lét „Maríu“ aldrei liggja af sér veður, — skútunni var alltaf haldið í 5B horfi eins og mögulegt var, undir hæfilegum seglum. Þetta var hræðileg nótt. Sjóirnir gengu yfir skútuna í sífellu, það hrykkti og gnast í öllum samskeytum, eins og hún væri að liðast sundur. Og í reiðanum kvað norðvestanstormurinn næt- uróð sinn í myrkrinu, — það var eins og allar nornir veraldarinnar hefðu mælt sér mót þar uppi, til þess að reyna hver öskrað gæti hæzt. „Það eru eldingar!“ æpti skipsdrengurinn og benti í austur, þar sem smá eldrák sást þjóta upp í loftið. „Þú ert skarpur", sagði skipstjórinn þurr- lega. „En aldrei hef ég nú séð eldingar koma upp úr sjónum og fara upp í skýin. Það kvað vera þveröfugt. Nei, — þarna er einhver í sjáv- arháska, og þangað munum við nú fara og vita hvort við getum ekki bjargað". „Bjargað?" át skipsdrengurinn eftir, — hann ríghélt sér báðum höndum í borðstokkinn, — „mér finnst við eiga nóg með að bjarga sjálfum okkur!“ Aronsen skipstjóri hvessti á hann aug- un. „Láttu þér slík orð aldrei oftar um munn fara, drengur! Meðan sjómaðurinn hefur sjálf- ur nefið upp úr, bjargar hann félaga sínum, sem er að sökkva. Hann sneri sér frá og hróp- aði til mannsins við stýrið: „Þrem strikum austar!“ „Þrem strikum austar!“ var svarað utan úr myrkrinu, þaðan sem grillti í daufan Ijósbjarma frá áttavitaklefanum. „Steady, stýrimaður!" „Steady!“ Skipstjórinn þefaði móti veðrinu. „Og svo losum við ögn um fokkuna, piitar, hún þolir það“. Fimir skuggar sáust klifra upp eftir reiðan- um. Aronsen beið stundarkorn, svo þefaði hann aftur í veðrið, er hann fann að skútan breytti um gang. „Jú, hún mun þola það“, tautaði hann um leið og önnur eldrák þaut upp í loftið í austri. „Rakettu, bátsmaður! Við verðum að svara þeim!“ „Rakettu!“ var svarað skammt frá. Hún blossaði upp, — logandi rák þaut upp móti kolsvörtum óveðurshimninum, nærri samtímis hinni. „Þeir eru víst hætt komnir, þarna“ sagði skipstjórinn. Hann hlustaði. Þungar drunur bár- ust að eyrum. Það var brimhljóðið við strönd- ina. Það var tekið að lýsa af degi er þeir sáu skipsflakið. Það var stórt, svart gufuskip, er sneri hliðinni í veðrið og rak ósjálfbjarga inn í brimgarðinn. „Tilbúinn með línu, stýrimaður! Við verðum V í K I N □ U R

x

Sjómannablaðið Víkingur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.