Sjómannablaðið Víkingur - 01.02.1953, Síða 21
Efri myndin: Hinn vel búni sal-
ur um borð í Tonquin, fremri
hluti. Þarna sést m. a. skrifborð,
kortaborð, útvarpstæki og skenki-
borð.
Neðri myndin sýnir „spennu-
aðferðina". — Fremri helmingur
bátsins spenntur saman með talí-
um.
LANDHELGI ÍSLANDS
Framh. af bls. 19.
Það er ekki útilokað, að erlendir fiskimenn hafi
séð íslenzk fiskiskip að veiðum í landhelgi, og
gætu jafnvel dregið þá ályktun, að það væri
með leyfi stjórnarvaldanna. Við erum undir
smásjá.
Eins og nú horfir í landhelgismálunum skift-
ir miklu, að fslendingar séu löghlýðnir, gefi
enga átyllu til grunsemda, því að það veikir
okkar málstað. Þeir, sem brjóta lögin, hvort
VÍKINEUR
sem það kemst upp eða ekki, vinna illt verk.
Þeir tefla sóma og hagsæld þjóðarinnar í mikla
tvísýnu. Það myndi, eins og nú standa sakir,
verða talin landráðastarfsemi með öðrum þjóð-
um. Löggjafinn verður að kynna sér alla stað-
hætti á hverjum stað og stemma á að ósi, stöðva
svona starfsemi. Engar athafnir landsmanna
mega verða til þess, að torvelda framgang og
viðurkenningu annarra þjóða á gerðum vald-
hafanna í landhelgismálinu.
Fiskimaður.
21