Sjómannablaðið Víkingur - 01.01.1954, Page 4
greindum 34 nýbyggingum eru reistar á smá-
skerjum við fjölfarnar siglingaleiðir, skerjum
þar sem sjór gengur yfir, velflest, í illviðrum,
og sem á engan hátt er unnt að auðkenna betur
en með því að setja upp ljós á þeim sjálfum.
Þessir vitar eru gæzlulausir og sjálfvirkir, og
hafa yfirleitt reynzt vel.
Endurbyggðir vitar.
Á eftirgreindum stöðum hafa vitarnir verið
endurbyggðir, og í flestum tilfellum stækkaðir
og endurbættir um leið:
Keykjanesi, aukavitinn, Garðskaga, Gróttu,
Akranesi, Malarrifi, Höskuldsey, Elliðaey,
Bjargtöngum, Grímsey í Steingrímsfirði, Mal-
arhorni, Kálfshamri, Langanesi, Bjarnarey,
Brimnesi, Hafnarnesi, Stokksnesi, Hvanney,
Ingólfshöfða.
Allir þessir vitar eru byggðir á sama hátt
og nýbyggingarnar, sem áður hefur verið lýst,
og koma í stað lélegri og ófullkomnari vitahúsa,
er áður voru þar. I 7 tilfellum af þessum 18
hafa járnbent steinsteypuhús komið í stað járn-
grindarundirbyggingar, sem yfirleitt hafa ekki
reynst vel. Járngrindarvitar eru þó enn eftir
7 talsins, og verða þeir endurbyggðir við fyrstu
hentugleika. Annars eru vitahúsin nú orðið í
sæmilega góðu lagi.
Hafnarljós.
Þeim hefur fjölgað mikið hin síðustu ár,
eftir því sem bryggjur hafa verið byggðar og
önnur hafnarmannvirki, sem skip þurfa að
sigla hjá eða Ieggjast að. Þau munu nú vera
71 talsins.
Ljósdufl.
Ljósdufl eru aðallega í Faxaflóa og í fjörð-
um inn úr honum. Ennfremur 1 við Vest-
mannaeyjar. Samtals munu nú vera úti 17
ljósdufl. Hafa þau öll, nema 1, verið sett upp
á styrjaldarárunum og síðar.
Radíóvitar.
Radíóvitar eru nú orðnir nokkuð margir, og
reknir bæði á vegum vitastjórnarinnar og flug-
málastjórnarinnar. Fyrsti radíóvitinn var reist-
ur á Dyrhólaey 1928. Hann hefur nú verið
lagður niður. Annar radíóvitinn var á Reykja-
nesi, byggður 1936 og er enn í notkun. Auk
hans rekur vitastjórnin nú radíóvita á eftir-
töldum stöðum: Hornbjargi, Dalatanga, Vestra-
Horni og ennfremur smávita á Malarrifi,
Sauðanesi og Eyrarbakka. Þá tekur vitastjórn-
in þátt í kostnaði við rekstur radíóvitans á
Patreksfirði.
Loks má geta þess, að flugmálastjórnin rek-
ur hér æðimarga radíóvita, sem geta komið
sjófarendum að gagni, og hafa 13 radíóvitar
verið auglýstir í því skyni.
R adíómi óunarstöóv ar.
Tvær radíómiðunarstöðvar eru reknar af
vitastjórninni, á Akranesi og Garðskaga, og sú
þriðja hefur verið auglýst í Vestmannaeyjum.
Eiga þær að vera til taks, þegar um þær er
beðið.
Hljóóvitar.
Hljóðvitarnir eru tveir, á Sauðanesi við
Siglufjörð og á Dalatanga við Seyðisfjörð.
Engir nýir hljóðvitar hafa verið byggðir hin
síðustu ár og ekki líkur til að þeim verði
fjölgað.
Vitafjöldinn nú.
Á þessu 75 ára afmæli vitanna á Islandi
standa því sakirnar þannig, að nú eru starf-
ræktir:
Ljósvitar......................104
Hafnarvitar og leiðarljós .... 71
Ljósdufl...................... 17
Radíóvitar.................... 21
Radíómiðunarstöðvar............ 3
Hljóðvitar..................... 2
Samtals 218
Kostnaóur.
Byggingarkostnaður hefur undanfarin ár
numið um 1 milljón króna, en reksturskostn-
aður er orðinn um 3 milljónir króna á ári. Kostn
aður samtals nemur því nú orðið um 4 milljón-
um króna á ári. Kostnaðurinn hefur aukizt
mjög í krónutali síðasta áratuginn, vegna
minnkandi verðgildis peninga. Þó ekki meira
en svo, að hann er nú um það bil fjórfaldur á
við það sem hann var fyrir 10 árum. Vita-
gjaldið, sem ætlað er að standa undir vita-
rekstrinum, hefur hins vegar hækkað miklu
minna, og hefur ekki nema um það bil tvö-
faldast frá því sem það var fyrir styrjöldina.
Heildarkostnaður við vitabyggingar og allan
rekstur vitanna frá öndverðu og fram til ársins
1943, nam um 10 milljónum krónar, og vita-
gjaldið samtals fram að þeim tíma 9,8 millj.
kr. eða mjög svipaðri upphæð. Nú hefur þetta
breytzt svo, að heildarkostnaðurinn í árslok
1952 nam samtals 33,7 millj. kr., en vitagjaldið
samtals á sama tíma 17,1 millj. kr., eða aðeins
rúmum helmingi kostnaðar. Mismunurinn hefur
verið lagður fram úr ríkissjóði.
Verlcefni framundan.
Þó að tekizt hafi nú að ná allmerkum áfanga
í þróun vitalýsingarinnar hér við land, er margt
VÍKIN G U R
4