Sjómannablaðið Víkingur - 01.04.1960, Side 20
/ jólctbliöí Víkings birlist fyrri hluti af frásögn þeirri, sem
hér fer á eflir. Fyrir smávægileg mistök var ekki hægt aö
láta framhald koma í síöasta blaöi og eru lesendur beönir
velviröingar á þessu.
Mesti kafbátaskeifir allra tíma
Frá stjórnpalli Starlings beið
Walker þar til hann sá U 202
hverfa. Síðan sneri hann sér að
þjóðverjunum þremur, sem hýrð-
ust skjálfandi á flekanum.
Hvaða kafbátur og nafn kafbáts-
foringjans! hrópaði hann í kall-
arann. Ekkert svar. Ágætt, þið
verðið þarna þar til ég fæ svar.
Að lokum stóðst annar undirfor-
inginn ekki mátið. Hann æpti:
— Poser. . . U 202. Walker hal-
aði þremenningana um borð og
hélt heimleiðis.
Hann var innilega ánægður með
árangurinn. Tundurspillar hans
höfðu notað árásaraðferðir hans
og þær höfðu borgað sig, og
meir en það, — margborgað sig,
langt fram yfir hans björtustu
vonir.
17. júní var Walker og kaf-
bátaspillar hans konmir aftur á
kreik. Nú var stefnan sett að
„bakdyrunum", Biscayaflóanum,
en þýzku kafbátarnir leituðu nú
flestir til bækistöðvana Lorient
og Bordeaux. Þeir eygðu brátt
U 449 á fullri ferð ofansjávar og
Walker hóf þegar árásina.
kafbáturinn reyndi að stíma þá
af sér, en skot frá Starling setti
gat á skrokkinn og kveikti í
turninum. Þó að kafbáturinn
væri óvígur gat hann samt keyrt
áfram. Walker tók skjóta ákvörð-
un: — Tilbúnir að keyra á hann,
hrópaði hann í kallarann, og
skipverjar gerðu sig klára til að
taka á móti hinu geysilega höggi.
Starling slapp á næstum ótrú-
legan hátt. Þegar skipið var rétt
komið að því að rekast á kaf-
bátinn reið alda undir og U 449
lenti í öldudalnum og Starling
rúllaði yfir kafbátinn, se,m sner-
ist á hvolf.
Tvær djúpsprengjur stilltar
grunnt luku svo verkinu. U 449
sökk með manni og mús, og
skyldi eftir stóra olíubrák á yf-
irborðinu. Ennþá einu sinni
hafði Walker tekizt það. En ekki
mátti slaka á klónni þótt einn
sigur væri unninn. Walker hafði
nú tekið við stjórn Kite og 28.
júlí fékk hann skeyti frá Sunder-
land flugvél, sem átti í höggi
við 8 kafbáta skammt undan.
Það stóð ekki á Walker, þegar
hann og félagar hans komu á
vettvang var Sunderland flug-
vélin að varpa sprengju á U 461,
sprengjan hæfði kafbátinn og
skipti honum í tvo hluta.
Þá voru aðeins 2 kafbátar eft-
ir handa Walker.U 462 og U 504.
Kite réðst á U 462 með fall-
byssuskothríð. Walker brosti
kuldalega, þegar kafbáturinn
sprakk í loft upp í um það bil
300 metra fjarlægð.
Þá var U504 eftir en hann
hafði notað tækifærið og kafað.
Kite Woodpecher og Wild
Goose slepptu 22 djúpsprengjum
beint niður á U 504. Olía og
brak flutu upp á yfirborðið,
plankar, mikið af fötum, síða af
svínsfleski og mannslungu.
Walker skrifaði stuttlega í
dagbókina. — Svínsfleskið var
vel reykt, en lungun voru ný.
Fyrsta ágúst sökk U 454 til
botns eftir harða skothríð. 12 af
45 manna áhöfn voru fiskaðir
upp úr sjónum.
12. ágúst sneri Walker og
menn hans, þreyttir og úttaug-
aðir aftur til Liverpool.
Um leið og skip hans skaut
landfestum gekk foringi úr sjó-
hernum um borð til Walker og
tilkynnti honum, að sonur hans
Timmy hefði sokkið með brezka
kafbátnum Parthian.
Þarna var kaldhæðni örlag-
anna að verki. Enginn viðstadd-
ur sá svipbrigði á Walker. Og
þeir, sem þekktu hann bezt vissu,
að hann bar engan hefndarhug
til þjóðverja. Hann var persónu-
lega hlutlaus, jafnvel eftir þetta
áfall. Þjóðverjar voru einfald-
lega óvinir hans.. Og út á hafið
hélt Walker á ný.
Þjóðverjar höfðu goldið mikið
afhroð á kafbátum sínum síð-
ustu mánuðina, en þeir voru
enganvegin af baki dottnir. Ný
vopn og ný taktik var komin til
sögunnar. Sjálfstýrð tundur-
skeyti, sem leituðu að skipa-
skrúfunum og læddust að þeim í
kjölfarinu, sköpuðu óþægileg.x
kennd hjá áhöfnum brezku skip-
anna.
Skipverjum Walkers var ljóst,
að tundurskeyti í skutinn, þar
sem djúpsprengjurnar voru
geymdar mundu valda skjótum
endi á tilveru þeirra.
En nú virtist sem stríðslukk-
an hefði yfirgefið þá. Þeir
sveimuðu um Biscayaflóann án
þess að verða varir við einn ein-
asta kafbát, og áfram hélt sama
giftuleysið eftir að flotinn lagði
leið sína út á Atlantshafið. Þeir
lentu í ofsaveðri og áttu fullt í
fangi með að halda hópinn.
Að lokum lægði veðrið og þrút-
in augu Walkers manna sáu
móta fyrir turninum á U 220,
sem þegar fór í kaf og flúði.
Starling Woodcock og Kite eltu
kafbátinn á krákustigs-flótta
hans og slepptu honum aldrei, og
eftir 14 klst. réðu 26 djúp-
sprengjur öriögum hans. Þrem
dögum síðar rakst Walker á
U 842. í margar klukkustundir
háði hann einvígi við kafbáts-
foringjann, sem að síðustu
beygði óvænt, svo að hann lenti
í dauðafæri, enda réðu nokkrar
sprengjur niðurlögum hans.
Einn erfiðasti túrinn til þessa
var á enda. Flotinn hélt heim-
leiðis til jólahalds, og sjaldan
hafa örþreyttar áhafnir notið
jólanna betur í höfn.
Og Walker kunni einnig að
njóta lífsins. Hann var hrókur
alls fagnaðar í samkvæmislífinu.
Ekkei't party þótti vel lukkað
92
VIKINGUR