Sjómannablaðið Víkingur

Volume

Sjómannablaðið Víkingur - 01.04.1960, Page 28

Sjómannablaðið Víkingur - 01.04.1960, Page 28
„Aðalfundur fulltrúaráðs sjómannadagsins í Reykjavík og Hafnar- firði haldinn í Hrafnistu sunnudaginn 6. marz 1960, samþykkir að reynt verði að fá lögum Happadrættis D. A. S. breytt á þann veg að happdrættið fái að starfa á breiðari grundvelli en hingað til, með því að styrkja byggingar dvalarheimila út um land, sam- kvæmt, nánari reglum er settar yrðu.“ GreinarfierS: Framkvæmd aðal-stefnumáls Sjómannadagsráðs, að byggja Dvalarheim- ili Aldraðra Sjómanna, liefur gengið sérstaklega vel og vonum framar, og á þarna happdrætti samtakanna að sjálfsögðu drýgstan þátt í. Má nú segja að með óbreyttuin gangi happdrættisins, mundi reynast auðvelt að Ijúka byggingu þess innan hins leyfða starfstíma happdrættis- ins, en 7. starfsár þess er að hefjast. Það er einróma álit flutningsmanna, og vonandi flestra cða allra með- liina samtaka okkar, að einmitt vegna þess hve þjóðin hefur rausnarlega stutt málefni okkar, beri okkur skylda til að sýna í áframlialdandi dug- miklu starfi að traust það liafi verið verðskuldað. í ljósi æ meira langlífis með þjóðinni og síaukinnar fólksfjölgunar er eykst að mun með hverjum áratug, er fyrirsjáanlegt að það 4-500 manna heimili er við höfum í byggingu, muni innan fárra ára reynast allt of lítið, og það svo, að annars sams konar heimilis muni fljótlega þörf fyrir Reykjavík og nágrenni, svo ljóst er að mál þessi þarf að skipuleggja 5-10 ár fram í tímann hverju sinni. Það sem við teljum þó fyrst liggja fyrir, jafnframt því að ljúka bygg- ingu Dvalarheimilisins, er að styrkja byggingar dvalarheimila út um land, en nokkur slík eru þegar ráðgerð sem liluti sjúkraliússbygginga. Meira að segja hafa okkur þegar borizt fyrirspurnir um slíka aðstoð frá 2-3 útgerðarbæjum.

x

Sjómannablaðið Víkingur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.