Sjómannablaðið Víkingur

Årgang

Sjómannablaðið Víkingur - 01.03.1964, Side 6

Sjómannablaðið Víkingur - 01.03.1964, Side 6
HENRY HALFDANSSON: REYNSLA AF NOTA- GILDI GÚMMBÁTA Við björgun úr sjávarháska Við íslendingar höfum fengið svo sérstæða reynslu af gúmm- björgunarbátum við hin allra erfiðustu veðurskilyrði, að ég tel æskilegt, að ræða þessi merkilegu björgunartæki og benda á nauðsynlegar umbætur á þeim til björgunarstarfsemi. Fyrstu kynni okkar á fslandi af notagildi uppblásinna gúm- báta sem björgunartækja á sjó í neyðartilfellum, voru árið 1944, er þýzk Foche-Wulf flugvél var skotin niður yfir hafinu við norð- urströnd íslands. Öll áhöfn flug- vélarinnar, 7 manns, bjargaði sér heilu og höldnu í vel útbúinn gúmmbát, er flugvélin hafði meðferðis. — Þessi sami bátur komst síðar í eigu Slysavarna- félags fslands, sem notaði hann til að kynna íslenzkum sjómönn- um þetta nýja bj örgunartæki með það fyrir augum, að auka mætti mikið öryggi fiskimanna og annarra sjómanna, ef þannig uppblásnar gúmmfleytur væru tiltækar í hverju skipi. Þetta varð til þess, að nokkrir áhugasamir skipstj órar hóf ust handa um að fá sér gúmbáta. Þá voru ekki aðrir gúmbátar fáan- legir en aflóga bátar frá hern- aðaraðiljum, aðallega brezkir bátar, sem notaðir höfðu verið á flugvélum.- Sannanir fyrir notagildi þess- ara báta létu ekki á sér standa. Árið 1952 fórst vélbátur, Veiga, frá Vestmannaeyjum í SV stormi. Af 6 skipverjum komust 4 í gúm- bát, cn þeir urðu að horfa á tvo félaga sína drukkna á sundi, þar eð þeir gátu ekki róið bátnum á móti storminum til þeirra og þeir gátu ekki synt eins liratt og bátinn rak frá þeim. Árið eftir hvolfdi svo öðrum báti, Guðrúnu, einnig frá Vest- mannaeyjum. Skipverjar gátu naumlega kastað út covered gúm- bát, sem þegar slitnaði frá þeim. Blés hann sig upp á hvolfi í sjón- um. 4 yngstu menn áhafnarinnar stukku á bátsbotninn um leið og hann flaut burtu, en 5 aðrir skip- verjar, sem hikuðu eða höfðu ekki eins góða aðstöðu, sukku með skipinu. Þeir 4, sem komust á bátsbotninn björguðust á sögu- legan hátt. Enginn þeirra hafði áður séð uppblásinn gúmbát með þaki. Fyrsta verk þeirra var að snúa bátnum við og skríða upp í hann og ausa út úr honum sjó- num. En veðrið var svo vont, að Henry Hálfdansson. bátnum hvolfdi fimm sinnum áður en þeir bárust upp að suður- strönd íslands í brimi, sem talið var ólendandi öllum bátum. Þeir sluppu þannig lifandi eftir tví- sýna baráttu. Hér var um R.F.D. bát að ræða og framleiðendurnir sendu þegar sérfræðing til Is- lands til að kynna sér, hvað af þessu mætti læra, því slíka reyn- slu höfðu engir skipbrotsmenn fengið áður. Árangurinn varð ýmsar endur- bætur á þessari gerð gúmbáta með það fyrir augum að þeir yrðu stöðugri á sjó og þeim gæti ekki hvolft. En þetta bar lítinn árangur. í hinum vondu veðrum Islands hefur hinum stóru kring- lóttu gúmbátum hvolft engu að Sjómannaskólapiltar í R-vík gera tilraun með nýja festilínu með öryggisgjörð, eins og Slysavarnafélagið hefur lagt til, að allir gúmmbátar verði útbúnir með. Á festilínunni er átakateygja úr sterku gúmmí til að hlífa línunni og bátnum 1 snöggu átaki. Með þessum útbúnaði reyndist mögulegt að kippa í línuna og draga bát á fullri ferð, án þess að festingin bilaði eða gúmmbáturinn skemmdist. VÍKINGUR 48

x

Sjómannablaðið Víkingur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.