Sjómannablaðið Víkingur

Árgangur

Sjómannablaðið Víkingur - 01.03.1964, Blaðsíða 18

Sjómannablaðið Víkingur - 01.03.1964, Blaðsíða 18
Fyrsta loftskeytamannanámskeiðið. J*. /<i{ i’tt« Vegna annríkis varð Ottó B. Arnar að hætta rekstri loft- skeytaskólans árið 1936. Hann hafði frá því fyrsta brennandi áhuga á hinni nýju tækni og kom fljótt auga á gildi hennar. Árið 1926 stofnaði hann hina fyrstu útvarpsstöð hér á landi og rak hana um nokkur ár. Hann verzl- aði með og hafði umboð fyrir loftskeyta- og siglingatæki, og er m. a. umboðsmaður Marconi- félagsins. Hann rak til skamms tíma radíóviðgerðarverkstæði. Félag ísl. loftskeytamanna og gamlir nemendur Ottó B. Arnars meta brautryðjendastarf hans á radíósviðinu og skólamálum stétt- arinnar og góða fyrirgreiðslu alla tíð. Síðan árið 1940 hefur Lands- sími íslands rekið loftskeytaskóla og útskrifað um 350 loftskeyta- menn til starfa á landi, skipum og flugvélum og með því ynnt af hendi nauðsynlegt starf í þágu íslenzkra fjarskiftamála, útgerð- ar og loftsiglinga. En þótt loftskeytaskólinn hafi starfað í 40 ár, ýmist sem einkaskóli eða á vegum Landssíma Islands, þá hefur það lengi verið og er ennþá áhugamál Félags ísl. loftskeytamanna, að stofnaður verði sérstakur fastur skóli — Radíóskóli Islands — sem veitti alhliða menntun þeim ungu mönnum, sem hafa í hyggj u að stunda hin margvíslegu störf á sviði radíótækninnar, m. a. loftskeytastörf á skipum. Geir Ólafsson. Höfundur greinarinnar. VÍKINGUR 60

x

Sjómannablaðið Víkingur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.