Sjómannablaðið Víkingur

Volume

Sjómannablaðið Víkingur - 01.03.1964, Page 7

Sjómannablaðið Víkingur - 01.03.1964, Page 7
síður en öðrum. Þá reyndust gúmbátarnir ekki nógu sterkir fyrir íslenzka veðráttu og það, sem verra var: í ótalmörgum til- fellum slitnuðu bátarnir í burtu áður en nokkur maður komst í þá. Á einu farþegaskipi, sem strandaði á blindskeri langt frá landi, slitnuðu bátarnir frá með hásetana sem komnir voru í þá, en yfirmennirnir og flestir far- þegarnir höfðu engan gúmbát eftir og hefði getað farið illa ef skipið hefði ekki losnað frá sker- inu á síðustu stundu. Þetta, hvað bátarnir slitna oft frá skipinu, hefur áreiðanlega kostað mörg mannslíf. Þegar brezku togararnir „Lorella“ og „Roderigo“ fórust með allri á- höfn í ofviðri við ísland 26. jan. 1954, fannst uppblásinn, en mannlaus gúmbátur frá öðru skipinu, sem sýnilega hafði slit- nað frá því áður en nokkur komst í hann. Þá hefur það komið fyrir að íslenzkir sjómenn hafa fund- izt látnir eftir skamman tíma á floti í gúmbát og reyndist dánar- orsökin vera drukknun, en bát- urinn var fullur af sjó. En þrátt fyrir allt þetta hafa gúmbjörgunarbátarnir bjargað fjölmörgum sjómönnum, sem ómögulegt hefði verið að bjarga með öðrum hætti, þegar skip þeirra fórust snögglega. Þetta varð m. a. til þess, að margir skipstjórar og skipaeigendur fengu svo mikla trú á gúmbátum, að þeir vildu strax henda í land þeim gömlu og góðu björgunar- bátum sem fyrir voru, þar eð þeir þóttu rúmfrekir og erfiðir viðfangs og alls ekki sambæri- legir til björgunar í bráðum slysa- tilfellum. Við sem að slysavarna- málum vinnum, vorum ekki eins ánægðir með þá ráðstöfun, því „gömlu“ björgunarbátarnir hafa líka sína kosti og yfirburði í öðrum tilfellum og þeir verða ekki taldir, sem í þeim hafa bjargazt, en það er önnur saga. Niðurstaðan varð sú, að íslend- ingar urðu fyrstir til að lögbjóða gúmbáta á skipum til viðbótar hinum áður lögboðnu lífbátum. VÍKINGUR Gúmmbáturinn kominn á fulla ferð, 8 sjómílna hraða. Fullteygt er á átakateygj- unni. Smærri fiskiskipum er veitt undanþága frá því að hafa hina venjulegu lífbáta, en þá þurfa gúmbátarnir að vera minnst tveir, sem hvor um sig rúmar alla áhöfn. Við íslendingar geymum þús- und ára gamla merkilega frá- sögn af þekktum íslenzkum far- manni, sem var á heimleið árið 1003 frá Vínlandi hinu góða (Massachusetts U.S.A.)' I miðju hafi kom óstöðvandi leki að skip- inu. Þeir höfðu með björgunar- bát, en hann tók aðeins helming áhafnarinnar. Þeir vörpuðu þá hlutkesti um hverjir skyldu fara í bátinn. Þeir, sem ekki var rúm fyrir í björgunarbátnum, sukku æðrulaust með skipinu, þar á meðal skipstjórinn, en hann hafði, enda þótt hans hlutur hefði komið upp í hlutkestinu, látið sitt rúm eftir handa ungum syni ná- búa síns heima á íslandi. Litli báturinn náði að lokum höfn á Irlandi og þeir, sem á honum voru, komust allir heim heilu og höldnu. Þetta hefði ekki verið mögulegt í gúmbát. Bounty’s captain Bligh hefði heldur ekki, 784 árum síðar, siglt hina löngu leið til frelsisins, ef hann hefði verið settur í gúmbát. Þannig hefur hver til síns ágætis nokk- uð. En gúmbátarnir eru vissulega björgunartæki framtíðarinnar og þá verðum við að endurbæta og gera eins vel úr garði og unnt er. Helztu kostir gúmbáta eru, hvað lítið fer fyrir þeim, hve fljótt er hægt að grípa til þeirra, hvað þeir þola mikið hnjask og hvað þeir veita mikið skjól þeim skipbrotsmönnum, sem í þá kom- ast. Ókostir gúmbáta eru, hvað þeir hafa litla endingu, hvað lítið þarf útaf að bera til þess að þeir verði ónothæfir, hvað þeir fjúka undan vindi og sjó og að ekki skuli vera hægt að ráða landtöku eða róa þeim að drukkn- andi mönnum, ef eitthvað er af vindi. Þá hættir þeim mjög til að hvolfa í stórsjó eða fyllast og til að rétta þá, þurfa þeir, sem í þeim eru, að fara úr bátnum út í storm og vitlausan sjógang. Að lokum hættir þeim mjög við að slitna frá skipum áður en menn komast í þá. Á gúmbátum eins og þeir eru nú, þarf því að gera ýmsar endur- bætur. Leyfi ég mér að benda á eftirfarandi, sem ég tel vera til stóraukins öryggis: 1. Utbúa þarf bátana með stórum aukakj ölfestupokum til að auka stöðugleika þeirra, ef fáir eru í bátnum. Sporöskj ulagaðir bátar fara betur undir rek- akkeri og það er auðveldara að rétta þá við ef þeir hvolfa. 2. Nauðsynlegt er að festa betur vistapakkana, t. d. með því að hafa sérstaka lokaða „vista- kjallara" í botni bátanna. Væru pakkarnir þá ekki fyrir Framh. á bls. 72. 49

x

Sjómannablaðið Víkingur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.