Sjómannablaðið Víkingur

Volume

Sjómannablaðið Víkingur - 01.03.1964, Page 8

Sjómannablaðið Víkingur - 01.03.1964, Page 8
Upphafsár vélvæðingar í Vestmannaeyjum Jón Ólafsson. Haraldur Ólafsson. Valdimar Árnason. „Hjalti" 7.80 tonn. Smíðaður í Dan- mörku 1914. Jón Ólafsson, Hólmi var fædd- ur að Skarðshlíð undir Eyja- fjöllum 7. marz 1892. Foreldr- ar: Ólafur Jónsson bóndi þarog Anna Skæringsdóttir. Jón ólst upp hjá foreldrum sínum. Hann fluttist til Vestmannaeyja 1910 og byrjaði sjómennsku á vél- bátum. 1915 kaupir Jón m/b Hjalta og var formaður með hann til ársloka 1919. Þá kaup- ir hann Ófeig og er með hann til ársloka 1934. Eftir það hætti Jón formennsku og stjórnaði síðan útgerð sinni, sem var all umfangsmikil. Jón var mesti stanzmaður, heppinn formaður og stjórnsamur á allan hátt. -K Haraldur Ólafsson, Staðarfelli var fæddur í Breiðuvík í Rauða- sandshreppi 29. apríl 1893. For- eldrar: Ólafur Ólafsson og Sig- riður Traustadóttir. Föður sinn missti Haraldur þegar hann var tveggja ára gamall og ólst upp með móður sinni í Breiðuvík. Á unga aldri byrjaði Haraldursjó- mennsku fyrir Vesturlandi og varð fljótlega formaður lengst fyrir Ólaf Jóhannesson á Patreksfirði í fjölda ára. Á ver- tíð fór Haraldur fyrst til Vest- mannaeyja 1913 og er þá há- seti á Portlandi, en aðeins þá vertíð. Árið 1925 fer hann aftur og er þá háseti á Guðrúnu hjá Stefáni Ing- varssyni og þá vertíð ræðst Framh. á bls. 75. Valdimar Árnason, Vallamesi var fæddur að Borgum í Norð- firði 13. júlí 1885. Foreldrar: Árni Finnbogason og konahans Guðlaug Torfadóttir. Valdimar ólst upp hjá foreldrum sínum og byrjaði ungur sjóróðra á opn- um bát með föður sínum. Þeg- ar mótorbátamir komu til Norðfjarðar varð Valdimar annar sá fyrsti vélamaður á Norðfirði, hinn varMagnúsHá- varðsson. Valdimar var fyrstu árin vélamaður og svo formað- ur fyrir föður sinn með mótor- bát, sem Óskar hét. Síðan tekur hann við formennsku á m/b Gönguhrólfi og er með hann í mörg sumur og er þá jafnan 2.—3. bátur yfir fjörðinn með Framh. á bls. 76 VÍKINGUR 50

x

Sjómannablaðið Víkingur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.