Sjómannablaðið Víkingur - 01.03.1964, Síða 9
„Adolf“ 12 tonn. Smíðaður í Færeyj-
um 1916.
Björn Erlendsson, Þinghól,
var fæddur í Engigarði í Mýr-
dal 2. okt. 1889. Foreldrar: Er-
lendur Björnsson og Ragnhild-
ur Gísladóttir er þar bjuggu.
Til Vestmannaeyja komBjörn
fyrst 1912 og varð sjómaður á
m.b. Höfrung með Stefáni
Björnssyni í Skuld til 1915. Þá
tók Björn við formennsku á
Höfrung og var með hann í
tvær vertíðir. Þá kaupir hann í
félagi við aðra 12 lesta bát kant-
settan sem Adolf hét, og var
með hann til 3. marz 1918 að
hann ferst með allri áhöfn aust-
ur í Eyjum í ofsa suðaustan
veðri. Þó að Björn væri ekki
lengi formaður, var hann samt
með aflahæstu formönnum þau
ár, sem hann var formaður.
Björn var harðfrískur maður
að öllu sem hann gekk.
Sigurður Gunnarsson.
„Huginn“ 4.00 tonn. Smíðaður í Vest-
mannaeyjum 1915.
Sigurður Gunnarsson, Hólmi
var fæddur að Hofshóli í Holt-
um 18. sept. 1888. Foreldrar:
Gunnar Andersson og Katrín
Sigurðardóttir. Sigurður byrjaði
sjóróðra við Landeyjarsand ung-
ur. Síðar fór hann á Skútu frá
Reykjavík, en 1908 fór Sigurð-
ur alfarinn til Vestmannaeyja.
Fyrstu árin var Sigurður við
málarastörf, því að hann var
málari að iðn. 1915 lét Sigurð-
ur smíða 5 tonna bát sem Hug-
inn hét og átti hann að vera
dráttarbátur út og inn höfnina,
því bæði millilandaskip og strand-
ferðaskip lögðust þá á ytrihöfn.
Við þennan starfa var Sigurður
og var oft draslsamt. Jafnhliða
stundaði Sigurður róðra aðal-
lega handfæri og fiskaði oft
mikið á bát þennan. Sigurður
fór inn um Hólsós á þessum
bát, og er það fyrsti bátur, sem
þar fór inn, það var 1916. Sig-
urði var margt til lista lagfc.
Hann var smiður á tré ogjárn,
málari og prýðilega greindur
maður og hraustmenni. Sigurð-
ur drukknaði í Vestmannaeyja-
höfn 16. jan. 1917.
„Hansína“ 11.53 tonn. Smíðuð í Vest-
mannaeyjum 1916.
Eyjólfur Gíslason, Bessastöð-
um er fæddur á Búastöðum í
Vestmannaeyjum, 22. maí 1897.
Foreldrar: Gísli Eyjólfsson og
Guðrún Magnúsdóttir er þar
bjuggu. Eyjólfur byrjaði ungur
sjómennsku á opnum bát og
síðar á mótorbát. Formennsku
byrjar Eyjólfur 1923 á Hansínu
og hefur formennsku á henni til
vertíðarloka 1929. Eftir það er
Eyjólfur með eftirtalda báta:
Atlantis, Emmu I, Emmu II,
Glað, Hellisey, Hilmir, Blátind
og ísleif allt til ársins 1962 eða
41 vertíð. Eyjólfur hefur verið
heppnisformaður sína löngu for-
mannstíð bæði stjórnsamur og
fiskimaður í bezta lagi.
-x
VÍKINGUR
51