Sjómannablaðið Víkingur - 01.03.1964, Page 14
Reykjavík. ^ London.
GEIR ÓLAFSSON:
BRAUTRYÐJENDUR
í sambandi við 40 ára afmæli
Félags ísl. loftskeytamanna verð-
ur hér í stuttu máli rifjuð upp
tildrög þess að loftskeytamanna-
stétt varð til. Getið nokkurra
fyrstu íslenzkra loftskeytamanna,
einnig þeirra brautryðjenda, sem
frumkvæði áttu í því, að hefjast
handa um sérmenntun þeirra.
Loftskeytamannsstarfið er til-
tölulega ung starfsgrein, enda
var það ekki fyrr en árið 1896,
að Marconi tókst að senda loft-
skeyti stutta vegalengd. Árið
1901 var fyrsta loftskeytið sent
milli Evrópu og Ameríku og 1903
var komið á föstu loftskeytasam-
bandi milli þessara heimsálfa.
Skömmu síðar komst skriður
á að setja upp loftskeytastöðvar
í landi, aðallega til að senda
fréttaskeyti, veðurskeyti, almenn
skeyti og fl. milli landshluta,
landa og lieimsálfa. Jafnframt
var farið að setja loftskeytastöð-
var í hin stóru farþcgaskip, sem
sigidu milli Evrópu og Ameríku
og stór flutningaskip í úthafssigl-
ingum. Einnig voru settar upp
strandastöðvar í Evrópu og Am-
eríku, loftskeytastöðvar til að
hafa samband við skip á hafi úti.
Myndaðist nú þörf fyrir loft-
skeytamenn til að starfa á landi
Hallgrímur Matthíasson, núverandi
stöðvarstjóri T F A
og á skipum og loftskeytaskólar
voru stofnaðir.
Þróunin var ekki mjög ör fram
að heimsstyrjöldinni 1914-1918,
en meðan á henni stóð tók radió-
tæknin miklum framförum, og
var mjög notuð í þágu hernaðar.
Að styrjöldinni lokinni fór það
mjög í vöxt, að minni farþega-
skip og flutningaskip og stærri
fiskiskip — togarar — væru búin
loftskeytatækjum, þannig var það
einnig hér á landi, eftir því sem
skipastóll landsmanna jókst.
Sumarið 1905 var á vegum
Marconifélagsins í London gerð
tilraun til að taka á móti loft-
skeytum hér á landi. Sett var upp
loftskeytamóttökustöð á Rauðar-
ártúninu í Reykjavík, og tekið á
móti fréttaskeytum frá Bretlandi
með góðum árangri. Um þessar
mundir var háð hörð deila um,
hvort komið skyldi á loftskeyta-
eða ritsímasambandi milli Is-
lands og útlanda og staða innan-
lands. Þeirri deilu lauk með sigri
þeirra, sem beittu sér fyrir rit-
símanum.
56
VÍKINGUR