Sjómannablaðið Víkingur - 01.03.1964, Page 17
Steingrímur Matthíasson.
VÍKINGUR
Snorri Jónasson.
Ragnar Guðmundsson.
af skólanum eða síðar að afloknu
viðbótarnámi. 1. flokks prófs var
krafist til að vera loftskeyta-
maður á farþegaskipum og varð-
skipum. Alls mun skóli þeirra
félaga hafa útskrifað um 100
lof tskeytamenn.
Vegna umfangsmikilla starfa
lijá Landssíma íslands varð Frið-
björn Aðalsteinsson að draga sig
að mestu í hlé frá loftskeyta-
skólanum 1929, en hann hafði
meðan hann lifði mikil afskifti
af málefnum loftskeytamanna,
enda var starf hans á sviði fjar-
skiftamála. Hann var mjög
hlynntur málefnum stéttarinnar
og hafði á þeim næman skilning.
Kunnu loftskeytamenn vel að
meta velvilja hans í þeirra garð.
Hópmynd frá 25 ára afmæli loftskeytamanna. Frá vinstri: Dagbjartur Gíslason,
Sveinbjörn Egilsson, Einar Vidalín, Karl Vilhjálmsson, Ingólfur Matthíasson,
Maríus Helgason, Guðmundur Ástráðsson, Geir Ólafsson, Þorleifur Jónsson,
Magnús Hannesson og Sigurjón Guðbergsson.
Gústaf Kristjánsson.
Urðu þeir félagar við þessum til-
mælum og stofnuðu loftskeyta-
skóla 1923, og var hann til húsa
í Eimskipafélagshúsinu. Kennar-
ar voru Friðbjörn Aðalsteinsson,
sem jafnframt var skólastjóri,
Ottó B. Arnar og Snorri B. Arn-
ar. Nemendur voru um 20 og
luku flestir prófi um sumarið
1923 og byrjuðu strax sem loft-
skeytamenn á togurum. Þessi
skóli starfaði þvínæst á ýmsum
stöðum í bænum til 1936. Ottó
Arnar var skólastjóri síðari hluta
þessa tímabils. Kennslutíminn var
yfirleitt 1. okt. til maí eða júní-
loka, en frá 1931 til 1936 var
tveggja vetra skóli. Landssími
Islands tilnefndi prófdómendur
og gaf út prófskírteini. Flestir
nemendur tóku 2. flokks próf,
því að yfirleitt var beðið eftir
mönnum af skólanum til að fara
á skipin, minnsta kosti fyrstu
árin. Margir nemendur tóku þó
1. flokks próf, ýmist í framhaldi
69