Sjómannablaðið Víkingur

Árgangur

Sjómannablaðið Víkingur - 01.03.1964, Síða 27

Sjómannablaðið Víkingur - 01.03.1964, Síða 27
Færeyingahöfn á Grænlandi. ingjana sé svo lélegur, að nem- endur hans kunni ekki að gera staðarákvarðanir? Þetta hlýtur að vera ákaflega auðmýkjandi, einkum þar sem talið er að Danmörk sé hlutgengur aðili á tæknisviðinu. — 0 — Það vekur undrun Færeyinga að mennirnir, sem eiga heima á Myggenesi og gjörþekkja ná- grennið þar, hafa ekki verið yf- irheyrðir og spurðir, þrátt fyrir að þeir gáfu upp togarana að ólöglegum veiðum. 1 öðrum mál- um er þó venja að yfirheyra sjónarvotta, — og framburður þeirra yfirleitt talinn mikilvæg- ur við uppkvaðningu dóma. Það er sorglegt að vita til þess, að hvorki Færeyingar né dönsku sjóliðarnir eru taldir hafa jafn- mikið vit á togveiðum og hinir vitru lögfræðingar. í Haag komust virðulegir dómarar að þeirri niðurstöðu, að alls ekki væri sannað, að tog- ari stundaði veiðar í landhelgi, þótt trollið væri úti og skipið innan fiskveiðilögsögunnar. I al- þjóða fiskveiðisamþykktinni eru þó ákvæði um að telja skuli togara innan fiskveiðilögsögunn- ar að ólöglegum veiðum, ef veið- arfærin eru ekki búlkuð eða í lest skipsins. Vonlaust er að halda áfram gæzlustörfum á sama hátt og hingað til, það er aðeins til að koma illu af stað. Ég hef sjálf- ur um 5 ára skeið stundað veið- ar við Grænland fyrir seinni styrjöldina. Þá lifðu menn í stöðugum ótta við, að danska varðskipið kæmi, ef villzt hafði verið í þoku inn fyrir þriggja mílna takmörkin. Með siglinga- tækjum er þá tíðkuðust, var ekki auðvelt að gera glögg skil á tak- mörkunum, þegar þoka lá yfir í marga daga samfleytt. Og kæmi varðskipið að innan þriggja mílnanna, varð undan- komu ekki auðið að fleygja öll- um fiski í sjóinn, sem á þilfari var, og jafnvel mátti búast -við að vera rekinn inn til Godthaab og dæmdur í allháa fjársekt. Mörg færeysk skip urðu fyrir þessu, en á sama tíma var ekk- ert enskt «kip tekið að ólögleg- um veiðum við Færeyjar. — Og nú þegar það skeður, fellur sá dómur, að danska gæzluskipið hafi haft rangt fyrir sér. — Er nokkur furða, þótt hitni í þeim mörgu Færeyingum, sem stunda veiðar við ísland og New- foundland? Þar er nú ekki al- deilis verið að skeggræða hlut- ina, ef skip er tekið innan fisk- veiðilögsögunnar. — Gæzluskip þessara þjóða taka nefnilega ekkert skip nema þau séu al- gjörlega örugg um, að lögbrot hafi verið framið. Það er erfitt fyrir menn, sem hafa fiskveiðar að aðalstarfi og æ ofan í æ horfa á Bretana fremja lögbrot í færeyskri land- helgi að sætta sig við dóminn um sýknun togaranna. Það er fróð- legt að komast að því, hvort hliðstæður finnast í sögunni við mál þessara þriggja togara. Ég efast um það. Hafa menn nokkurntíma heyrt, að íslendingar hafi dæmt og strax á eftir ógilt dóminn? Það er gaman að fá að vita, hvort nokkurs staðar er fordæmi fyr- ir þessu. Er fordæmi fyrir því að tog- ara, sem tekinn er að ólöglegum veiðum, hafi verið hjálpað til undankomu af herskipum sinn- ar eigin þjóðar, þegar undan- skilið er yfirgangstímabil Breta í þorskastríðinu við ísland? — 0 — Ef ætlunin er að reka gæzl- una á sama hátt og hingað til, er bezt að Færeyingar losi sig úr tengslum við Dani. í rauninni er aðeins ein lausn til, og hún er sú, að Færeyingar sjálfir annist gæzlu fiskveiðilög- sögu sinnar. Á þann hátt losna Danir við þann hvimleiða orð- róm, að þeir selji svínakjötið sitt á kostnað Færeyinga. Stjórni Færeyingar sjálfir gæzlumálum sínum, ætti það á engan hátt að geta truflað verzl- un Dana við Islendinga. Danir myndu þá vissulega losna við á- hyggjur af leiðinda klandri við enska fiskimenn og andrúms- loftið milli Dana og Færeyinga hreinsast mikið. Ekki hvað sízt myndi dómarinn í Færeyjum losna við þá auðmýkingu að vera gerður að athlægi fyrir dóma sína. Eitt er að minnsta kosti ljóst, 69 VÍKINGUK

x

Sjómannablaðið Víkingur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.