Sjómannablaðið Víkingur

Volume

Sjómannablaðið Víkingur - 01.06.1965, Page 6

Sjómannablaðið Víkingur - 01.06.1965, Page 6
langt á eftir Islendingum í fisk- veiðum. Veiðar voru mest stund- aðar á litlum togbátum, sem veiða með botnvörpu og alveg upp í landsteinum. En að einu leyti álít ég að þeir séu langt á undan okk- ur og það er í löndunartækninni. Bandaríkjamenn dæla öllum smá- fiski, bæði úr veiðarfærinu í bát- inn og úr bátnum í land. Þegar við komum með síld í land í Port Monmouth og vorum lagztir að bryggju, þá komu þeir með barka og festu á rör, sem stóð upp úr bátsþilfarinu og náði niður í lest. Vatni var dælt úr 2 vatnsslöng- um niður í lestina, en síldin sog- uð upp um barkann og dælt í land. Engin mannshönd kom þar nærri. Það var stórkostlegur munur frá því sem við eigum við að búa hér. Þegar síldin kom úr dælubarkanum var vatnið skilið frá í gegnum sáld. Fór þá síldin á færiband, en á því var sjálfvirk vog, sem vigtaði síldina jafnharð- an og hún barst á bandið. Þetta er mjög fullkomin og fljótvirk löndunaraðferð, tekur 5—6 sinn- um styttri tíma að landa með dælunni, heldur en með krana, eins og hér er gert, og er auk þess mikið léttara. Eitt var það enn, sem vakti at- hygli mína. Ekki fór neitt til spillis hjá þessum stóru fiski- mjölsverksmiðjum, allt hráefni var gjörnýtt. Þarna var bannað að meinga vatn með úrgangsefn- um, enda eru þarna stórar bað- strendur í nágrenninu. — En hér á landi eru allir firðir og hafnir í nágrenni síldarverksmiðja fullir af grút. Hér þurfum við að taka okkur á. Eftir tveggja mánaða dvöl þarna vestra hélt ég áleiðis heim til Islands ásamt konu minni, Elínu Frímannsdóttur, en hún hafði komið vestur í febrúar. Skipverjar á Cape May kunna nú orðið á asdictækin og veiðar- færið, en báturinn hentar ekki. Fyrirtækið ætlaði að láta smíða nýjan hentugri bát. Var ég einn dag á fundi með skipaverkfræð- ingi til að ræða um ýmis fyrir- komulagsatriði á þessu skipi. Að lokum segir Kristján, að sér hafi nýlega borizt tilboð um að fara til Perú á vegum brezks fyrirtækis, til þess að kenna notk- un asdictækja við ansjónuveiðar, „en nú er ég kominn í fast starf og býzt ekki við að sinna því til- boði,“ segir þessi vasklegifulltrúi íslenzkrar sjómannastéttar að lokum. J. J. D. Grein þessi birtist áður í blaðinu Magna frá Akranesi. 176 VÍKINGUE

x

Sjómannablaðið Víkingur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.