Sjómannablaðið Víkingur

Ukioqatigiit

Sjómannablaðið Víkingur - 01.06.1965, Qupperneq 8

Sjómannablaðið Víkingur - 01.06.1965, Qupperneq 8
SéS yfir Björgvika bryggju. Til hœgri er Bispevika bryggjan. ig, að hver tegund flutnings og skipa hafi sína sérstöku aðstöðu og bryggjupláss. Ef við byrjum á austurhlið hafnarinnar og höld- um vestur með henni, er röð bryggjanna og hafnargarðanna, og þjónusta þeirra eins og hér segir: Sjursöya — olíuhöfn fyr- ir innanlandsdreifingu. Grönlía — garður — fyrir stærstu skip verzlunarflotans, og við enda hans er stór krani og annar út- búnaður til umskipunar á kolum. Bispevika — er kola- og fóður- vöruhöfn. Björvika — er afhleðslustaður fyrir skip í Evrópuflutningum og fjarlægari löndum. Vippetangen — bryggja 1 Norska Ameríku-línan og Scand- inaviska Austur-Afríkulínan. Bryggja 2 er notuð fyrir skip er sigla til Eystrasaltslandanna, Danmerkur og Canada. Bryggja 3 er eingöngu fyrir kornflutninga. Piperviken — er fyrir flestar innanlands áætlunarleiðir og strandferðir, og farþegaskip stór og smá í innfjarða-þjónustu. 178 Tjuvhólmen-bryggjan er leigð Fred Olsen-línunni, sem annast viðskipti og flutninga við austur- strönd Suður-Ameríku, Kanarí- eyjar og Miðjarðarhafshafnir. Filipstad-garðurinn er til af- nota fyrir Ameríku-Scantic-lín- una og Scandinavisku-Ameríku- línuna. Filipstad-bryggjan er leigð Wilh. Wilhelmsen-línunni, er hef- ur viðskipti við fjarlæg Austur- lönd og löndin við Carabiskahaf- ið, nálæg og mið Austurlönd, Suður- og Austur—Asíu og Indó- nesíu. Frognerkilen er snekkju og lystiskipa-lægi. Samanlögð lengd þessara við- leguplássa er 12,9 km. og við meir en helminginn af þessari vegalengd, eða 8 km. af görðun- um, er 18,3 feta dýpi og meira. Útbúnaður til flutninga og geymslu á hafnargörðunum og hryggjunum, er fyrsta flokks dreifinga- og vöruhúsapláss er um 182.000 fermetrar að gólf- plássi, þar af á hafnarstjómin 80.000 fennetra geymslupláss, en kom er geymt í stórum turnum, er rúma 25.000 tonn. Meira en 77.000 fet af járn- brautarteinum liggur með höfn- inni og tengir hana aðal æðum járnbrautarkerfisins og landlín- unum Hleðzlu og afhleðzlu-útbúnaður samanstendur af 145 krönum, og þar af eru 94 þeirra rafmagns- drifnir og færanlegir, frá lþo tonni í 20 tonn, og 12 þeirra eru færanlegir vélkranar er lyft geta 6 tonnum, 2 flotkranar eru þar einnig, er lyft geta 40 til 100 Ekki langt frá borginni er vatnsból staðarins. Yndislegt landslag. VÍKINGUR

x

Sjómannablaðið Víkingur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.