Sjómannablaðið Víkingur

Árgangur

Sjómannablaðið Víkingur - 01.06.1965, Síða 18

Sjómannablaðið Víkingur - 01.06.1965, Síða 18
ft S ^oo m HtílKJCloÓí. Auk Ijósanna, sem sýnd eru ú myndinni, skulu skipin búin venjulegum siglingaljósum. Merkjaljósum fiskiskipa breytt 1. september Hinn 1. september næstkom- andi taka nýjar alþjóðasiglinga- reglur gildi, en í þeim er gert ráð fyrir allverulegum breytingum á ljósbúnaði fiskiskipa. Skip, sem eru að togveiðum, skulu hafa 2 ljós þráðbeint upp af öðru með ekki minna en 4 feta og ekki meira en 12 feta milli- bili. Efra ljósið skal vera grænt og neðra ljósið hvítt og skulu þau sjást, hvaðan sem litið er. Neðra ljósið skal vera það miklu ofar en hliðarljósin sem nemur tvö- földu millibili lóðréttu ljósanna. Á skipum, sem eru að fiskveið- um öðrum en togveiðum skal ljós- búnaður vera hinn sami, að öðru leyti en því, að efra ljósið skal vera rautt. Ef skipin eru styttri en 40 fet má bilið milli ljósanna vera 3 fet. Ljós þessi skulu sjást 2 sjómílur álengdar að minnsta kosti. Þegar veiðarfæri þessara síðarnefndu skipa ná lengra en 500 fet út frá þeim í lóðrétta stefnu, skulu þau að auki hafa hvítt hringljós minnst 6 fet og mest 20 fet lá- rétt út frá lóðréttu ljósunum, í þá átt, sem veiðarfærið er. Á daginn skulu skip að fisk- veiðum gefa starf sitt til kynna með því að sýna, þar sem bezt verður séð, svarta bendingamynd gerða úr tveim keilum, hvorri upp af annarri og þannig að oddarn- ir snúi saman og sé grunnflötur þeirra 2 fet að þvermáli að minnsta kosti. Séu skipin styttri en 65 fet mega þau hafa körfu í stað þessarar bendingamyndar. Ef veiðarfæri skipanna ná lengra en 500 fet út frá þeim í lárétta stefnu, skulu þau að auki hafa svarta keilu með mjóa endann upp í þá átt, sem veiðarfærið er. Atygli manna skal vakin á því að Ijós þessi má ekki sýna fyrr en 1. september og ljósin sam- kvæmt siglingareglunum frá 1948 má ekki sýna eftir 1. september næstkomandi. Nýju siglingareglurnar eru nú í prentun og vænta má, að þær komi út það tímanlega, að mönn- um gefist kostur á að kynna sér þær fyrir gildistöku þeirra. 1 þeim eru ýmsar aðrar breyting- ar en þær, sem að ofan getur. Þessi mynd sýnir hvernig má koma fiskveiSaljósunum fyrir. Gceta skal, aS einungis verSi notaSar viSurkenndar rafleiSslur viS uppselningu Ijósanna. 188 VlKINGUR

x

Sjómannablaðið Víkingur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.