Sjómannablaðið Víkingur

Volume

Sjómannablaðið Víkingur - 01.06.1965, Page 21

Sjómannablaðið Víkingur - 01.06.1965, Page 21
— Hvaðan kemur stormurinn og 6- veðrið, óli litli, spurði kennarinn. — Úr henni ömmu, svaraði Óli hik- laust. — Hvað meinarðu, strákur? — Jú, í hvert skipti sem veður versnar, segir amma mín að það hafi legið í sér í marga daga. * Samúel bóndi keypti sér líftrygg- ingu og greiddi skilvískga af henni í mörg ár. Svo hætti vátryggingarfélagið að fá greiðsluna eitt vorið og þegar það sendi áminningarbréf, fékk það svo- hljóðandi svarbréf: — Ég undirrituð ekkja Samúels heitins Jóelssonar tilkynni yður hér- með að hann andaðist fyrir tveimur mánuðum og vegna þess að ég er fá- tæk manneskja, verð ég því miður að segja upp líftryggingu hans. Virðingarfyllst, etS7rr"~'---rr Bjarghildur Björnsdóttir. * Fyrirlesarinn talaði um drykkju- venjur meðal dýra: — Ef ég nú set tvö drykkjar- ílát fyrir asna, annað fyllt með vatni, en hitt með bjór. Úr hvoru ílátinu haldið þið að hann myndi drekka? — Úr vatnsílátinu, svaraði rödd í salnum. — Og hversvegna, spurði ræðumað- ur. — Af því að það er asni, svaraði röddin. ílTM öppic»r| Ertu giftur? Nei, en ég kann að hlýða samt. Þcer vilja vera sœtar. Frívaktin Nútímaæska Faðirinn spyr son sinn, sem er sjö ára: Jæja, drengur minn, hvað lang- ar þig til að fá í afmælisgjöf ? Mig langar til að fá alvöru- skammbyssu. Ertu alveg genginn af vitinu, drengur. Nei, mig langar til að fá al- vöru-skammbyssu. Hættu þessu, drengur. Það er ég sem ræð hér í fjölskyldunni. Já — en ef ég fengi alvöru- skammbyssu . . . * (Presturinn í ræðulok: — Og íhugið það, börnin mín, að engin af ykkur er of vondur til að sækja messu hjá mér, — Og engin af ykkur er heldur of góður til þess að koma til kirkju.

x

Sjómannablaðið Víkingur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.