Sjómannablaðið Víkingur

Ukioqatigiit

Sjómannablaðið Víkingur - 01.06.1965, Qupperneq 23

Sjómannablaðið Víkingur - 01.06.1965, Qupperneq 23
„Höjrungur“ 9,09 tonn. SmíðaSur í Danmörku 1908. „Happafell“ 13,00 tonn. Smíðað í Svíþjóð 1911. ,JSojfía“ 12,92 tonn. Smiðuð í Noregi. Kári Sigurðsson, Presthúsum, var fæddur að Selshjáleigu í Landeyjum 12. júlí 1880, foreldr- ar Sigurður Þorbjarnarson bóndi og formaður og Guðrun Jónsdótt- ir. — Kári fór með foreldr- um sínum til Kirkjulandshjá- leigu, og þar missti hann föður sinn, þá 13 ára gamall, er Sig- urður fórst ásamt allri áhöfn við Landeyjarsand. Kári byrjaði ungur sjómennsku við Landeyja- sand sem háseti og formaður, einnig var Kári formaður við Eyjafjallasand og var einn bezti sandaformaður. — Jafnhliða reri Kári frá Vestm. á vetrum, fyrst á opnum bátum, síðan á vélbát- um. Kári fluttist til Vestm. 1912 og var þá háseti á m/b „Björg- vin“, hjá Bernódusi bróður sín- um. Formennsku byrjaði Kári á m/b „Heklu“ 1914, og hefur for- mennsku á henni til 1918. Eftir það er hann með eftirtalda báta „Hauk,“ „Kap,“ „Marz“ og „Höfrung“ allt til 1925, en Kári lézt það sama ár. VÍKINGUR Þorbjörn Guðjónsson, Kirkju- bæ, er fæddur að Moshvoli í Hvol- hreppi, Rangárvallasýslu, 6. októ- ber árið 1891. Foreldrar: Guðjón Einarsson bóndi og Salvör Sig- urðardóttir, hjá þeim ólst hann upp. Þorbjörn byrjaði ungur sjó- mennsku, fór til Vestmannaeyja árið 1912 og var sjómaður á m/b „Víking“ og síðan á m/b „Björg- vin“. Formennsku byrjaði Þor- björn árið 1917 á m/b „Happa- sæl“ og keypti hluta í þeim báti, var margar vetrarvertíðir for- maður á honum. Einnig var Þor- björn formaður á m/b „Marz“ og hætti þá formennsku, en stundaði útgerð í mörg ár jafnhliða land- búnaði á einni Kirkjubæjarjörð- inni, Þorbjörn er langstærsti jarðabótamaður í Vestmannaeyj- um. Einnig hefur hann tekið mik- inn þátt í opinberum málum, og hefur átt sæti í bæjarstjórn Vest- mannaeyja. Þorbjörn hefur ver- ið dugnaðar maður til sjós og lands. Kristján Einarssson, Sóleyjar- tungu, er fæddur að Þjóðólfs- haga í Holtum 15. janúar 1906. Foreldrar: Einar Sveinsson og Steinunn Guðmundsdóttir. Krist- ján ólst upp með foreldrum sín- um. 1925 fór Kristján til sjóróðra til Vestmannaeyja og var á m/b „Kára“ hjá Sigurði Þorsteins- syni og síðar á fleiri bátum allt til 1929. Þá byrjar Kristján for- mennsku á „Kristbjörgu I“. Eftir það er Kristján með „Sleipni" „Snorra goða“ og „Þorgeir goða“ allt fram yfir 1940. Eftir það hætti Kristján formennsku og stundar nú netaviðgerðir. Krist- ján var góður sjómaður og hepp- inn fiskimaður. X- 193

x

Sjómannablaðið Víkingur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.