Sjómannablaðið Víkingur

Årgang

Sjómannablaðið Víkingur - 01.06.1965, Side 25

Sjómannablaðið Víkingur - 01.06.1965, Side 25
II. Fyrir stýrimenn á færaskip- um: Stundi skipið handfæraveið- ar: Frítt hafdrætti kr. 1,35 af hverju skippundi er skipið aflar og kr. l,oo af hverri lifrartunnu er á land kemur eða kr. 225,oo á mánuði, kr. 65,oo af hverju skippundi er hann sjálfur dregur, kr. 1,25 af hverju skippundi er skipið aflar og kr. l,oo af hverri lifrartunnu er á land kemur. Þannig samþykkt óbreytt. Bréf hafði nefndinni borizt frá formanni félags ísl. botnvörpunga, þar sem hann tjáir, að hann nái ekki saman fundi hjá sér svo fljótt, að svar geti komið frá þeim fyrir þennan Öldufund, og er því enn ó- samið um kjör stýrimanna á botn- vörpungum. Fimdur, 11. febrúar 1920. „Ég undirritaður, leyfi mér að leggja til, að stjórn skipstjórafé- lagsins Aldan skrifi hafnarnefnd Reykjavíkur og bendi á það, sem ábótavant er við innsiglingu inn í Reykjavíkurhöfn, bæði hvað snertir villuljós, hafnsögu og leiðarmerki, og krefjast lagfæringar á því hið bráðasta.“ Sigurður Oddsson. Fundur, 7. desember 1920. Að þyngd yrðu inntökuskilyrði við Stýrimannaskólann. Geir Sigurðsson gat þess, að Páll Halldórsson mundi þegar vera bú- inn að semja uppkast að inntöku- skilyrðum að skólanum, og lagði hann til, að formaður Öldunnar fengi uppkastið hjá skólastjóra og yrði þetta svo lagt fyrir næsta fund. Aðalfundur, 19. janúar 1921. Formaður: Hannes Hafliðason. Gjaldkeri: Símon Sveinbjörnsson. Ritari: Geir Sigurðsson. Styrktarsjóður kr. 14.396.39. Fundur, 16. febrúar 1921. Lesið upp nefndarálit á leiðsögu og sjómerkjum til Reykjavíkur. Var þar meðal annars tekið fram, að lóðsum yrði fjölgað við Reykjavík- VÍKINGUR in-höfn. Að merkjastöðin í Gróttu sé gerð fullkomnari, að lóðsmerkið við Gróttu sé fært að Engeyjar- bauju að banna að setja upp leiftur- auglýsingar á húsþökum, er truflað geti innsiglinguna. Fundur, 15. desember 1921. Hafnarmál: Rætt um að fara þess á leit við hafnarstjórn, að meiri reglu verði komið á í höfn- inni. Fundur, 22. desember 1921. Kosin 3ja manna nefnd varðandi siglingalögin. — Fundurinn felur Jón Bcrgsveinsson. stjóm Öldufélagsins að skrifa Stjórnarráði íslands og mótmæla því, að veitt sé undanþága frá lög- um 3. nóvember 1915 um atvinnu við siglingar. Aðalfundur, 13. janúar 1922. Formaður Hannes Hafliðason. Ritari: Geir Sigurðsson. Gjaldkeri: Stefán Bjarnason. Styrktarsjóður kr. 14.889.72. Páll Halldórsson, skólastjóri lagði fram breytingartillögur á lögum lun atvinnu við siglingar og grein- argerð með þeim. Fundur, 26. janúar 1922. Formaður gat þess, að nú stæðu yfir samningar milli fiskikútterúL gerðarmanna og skipstjóra á þeim skipum, og hefðu útgerðarmenn far- ið fram á kauplækkun. Fundur, 9. febrúar 1922. Breytingar á siglingalögum mikið rædd og endanlega samþykkt ásamt breytingum. Fundur, 24. október 1922. Aðalfundargjörð stýrimannafé- lagsins Ægis, þar sem samþykkt er að ganga í Öldufélagið og leggja niður Stýrimannafélagið Ægi. •— Nafnalisti yfir 41 meðlim, en þar af voru 15 áður í Öldunni. Var inn- taka þessara meðlima samþykkt samhljóða. Lesið var bréf frá Vélstjórafélag- inu, þar sem farið er fram á sam- vinnu vélstjóra, skipstjóra og stýri- manna, og lagt til, að kosið yrði fulltrúaráð fyrir þessi félög. Fundur, 7. nóvember 1922. Samþykkt að kjósa 3ja manna nefnd, til að tala við vélstjórana. Fundur, 5. desember 1922. Skýrði formaður frá því, að samn- ingar hefðu verið gerðir fyrir næsta ár milli skipstjóra og útgerð- armanna á fiskikútterum, en þar sem engin beiðni hefði komið fram frá skipstjórum og stýrimönnum á togurum, hefði stjórn félagsins eigi gert neina samninga fyrir þá. Aðalfimdur, 23. janúar 1923. Formaður: Hannes Hafliðason. Ritari: Geir Sigurðsson. Gjaldkeri: Símon Sveinbjamar- son. Styrktarsjóður kr. 15.352.10. Páll Halldórsson, skólastjóri las upp tillögu um breytingar á sigl- ingalögunum. Var það frá nefnd þeirri, er kosin var á fundi í félag- inu 5. desember s.l. Skýrði hann frá undirtektum þeim, er frumvarp- ið fékk á Alþingi í fyrra, og þeim breytingum, sem urðu á siglinga- lögunum þá. Tillögur nefndarinnar voru til umræðu, og síðan sam- þykktar með öllum greiddum at- kvæðum. -x 195

x

Sjómannablaðið Víkingur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.