Sjómannablaðið Víkingur

Volume

Sjómannablaðið Víkingur - 01.06.1965, Page 27

Sjómannablaðið Víkingur - 01.06.1965, Page 27
Vélstjóraejni lœra vélsmíði í nýtízku verknámsskóla. smiðir senda ekki frá sér vélar fyrr en búið er þaulreyna þær, og fullvissa sig um að þær þoli mikla vinnu við eðlilegar aðstæð- ur og rétta notkun. En vélgæzl- unni var á þessum tímum svo ábótavant, að alveg hóflaust var, hve mikið af verðmætum fór í súginn. Útvegsmenn skildu að vísu, hve mikil framför var að vélunum, miðað við fyrri aðstæð- ur, en þeir gerðu sér ekki grein fyrir öllum þeim vanrækslusynd- um sem framdar voru. Þó að að- búð vélanna væri af eðlilegum ástæðum mjög ábótavant í litlum fiskibátum meira eða minna opn- um, þá var ekki allt því að kenna. Það sýndu undantekningar, þar sem allt gekk vel. 0g það sem var ef til vill miklu verst, var það að útvegsmenn sem gerðu bátana út., og höfðu sumir látið sinn síð- asta skilding til þess að eignast þá, gerðu sér yfirleitt ekki grein fyrir því sem hér var ábóíavant, að hér vantaði þjálfaða kunn- áttumenn til vorka. Þeim skildist að ill örlög væru hér að verki, ef spánýr vélbátur færi ekki um sjóinn eins og hendi væri veifað. En vélbát.ur eða vélskip, þó nýtt sé af nálinni, er enginn yfirnátt- úrlegur töfrasproti. Vélar eru aðeins tæki sem menn hafa gert sér. Aflvélar eru orkumiðlar með afmældri afkastagetu, sem ekki má ofbjóða, að öðrum kosti of- reynast þær eða ofslitna. Eftir því sem vélbátaflotinn jókst, fjölgaði vélaræflunum á fjörum veiðistöðvanna. Mun út- vegsmönnum að lokum hafa fund- ist að ekki væri allt með felldu í þessum málum. Þeir gengust fyr- ir því að upp var tekin tilsögn, námskeið, í meðferð bátavéla í nokkrum veiðistöðvum. Þó að útbúnaði að þessum nám- slceiðum væri víst nokkuð ábóta- vant fyrst í stað, er öldungis víst að þau gáfu fljótlega góða raun. Og enn betri, eftir að farið var að miða atvinnuréttindi við það nám og þjálfun sem menn fengu þar. Til dæmis um aðbúnað þessarar stofnunnar, vil ég hér nefna eitt VÍKINGUR lítið dæmi. Voru námskeiðin þá búin að starfa í nokkur ár. Haustið 1917 var mótornám- skeið haldið hér í höfuðstaðnum. Ég var þá atvinnulaus, af því að skipið sem ég var á þá um sumarið var selt úr landi. Ég var þá beðinn að kenna verklega vélfræði í nokkrar vikur í for- föllum annars manns. Við feng- um að vera í húsi Járnsteypunn- ar, sem þá var þar sem Hamars- húsið stendur nú. Höfðum við eina vél til afnota, af Heins gerð, 8 hesta að mig minnir. Hjá okk- ur á gólfinu var stór sandhaug- ur og steypumót sem oftast var verið að vinna við. Þegar svo brætt var og helt 1 mótin, fylltist húsið af svo rammri stybbu að við urðum að flýja frá okkar starfi. Varð oftast lítið úr verki þann daginn. Mér er nær að halda, að fleiri gætu sagt eitt- hvað svipað um aðbúnaðinn að þessari kennslustofnun á fyrstu árum hennar. Ég get þessa hér af því, að mér hefur lengst af fundizt að allt væri talið full gott, þegar um fræðslu vélstjóraefna var að ræða. Fé hefur ávallt verið skorið svo við nögl, og ég minn- ist ekki að hafa orðið þess var að gert hafi verið nokkuð, af hálfu þess opinbera, til þess að örva unga menn til þeirra starfa, þó að tilfinnanleg vöntun æfðra manna hafi jafnan verið á því sviði. En það er nú önnur saga. Ég gat þess hér að framan, að þeir sem fyrstir, hér á landi, kom- ust í kynni við vélar og vélgæzlu, fengu fljótlega skilning á því, að hér þurfti bæði fræðileg og verk- leg þjálfun að koma til, ef ekki ætti flest úrskeiðis að ganga um hin hagkvæmu not vélanna. En a'lmennt áttuðu menn sig ekki á þessu. Ég er þeirrar skoðunar að kenna ætti nokkur undirstöðuat- riði í vélfræði í unglingaskólum, og þá eigi síður nokkur handtök við ýmsar algengustu vinnuvélar. En ekki meira um það nú. Ég kynntist nokkuð erlendum manni, sem hér tók sér bólfestu fyrir mörgum árum. Hann hafði, á sínum duggarabandsárum, ver- ið stýrimaður og skipstjóri á langferðaseglskipum og getið sér mikið álit í því starfi. Hann sagði einu sinni í viðtali við mig á þessa leið: „í gamla ,daga, þegar seglin voru aðal tækin til framdráttar skipunum, hvíldi mestur vandinn á þeim mönnum, sem sáu um búnað seglanna, svo og rár og reiða. Þar varð allt að vera ógall- 197

x

Sjómannablaðið Víkingur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.