Sjómannablaðið Víkingur

Árgangur

Sjómannablaðið Víkingur - 01.08.1965, Síða 25

Sjómannablaðið Víkingur - 01.08.1965, Síða 25
öll sameiginleg áhugamál við félag starfandi togaraskipstjóra og stýri- manna, enda séu þeir allir jafn- framt meðlimir Öldufélagsins.“ 3ja manna nefnd kosin til að und- irbúa lagabreytingar. Fundur, 10. desember 1925. Rætt um lagabreytingar allan fundinn og samþykktum frestað til næsta fundar. Fundur, 19. desember 1925. Lagabreytingar. Nefndin klofnaði og kom fram með meirihluta og minnihlutaálit. Fundi frestað án á- kvörðunar. Fundur, 30. desember 1925. Útbýtt var lagabreytingum meiri- og minnihlutans. Guðmundur Jóns- son, sem kvaðst vera kosinn for- maður hins nýja félags, kvaðst mundi skrifa Öldufélaginu fyrir næsta fund. Aðalfundur, 14. janúar 1926. Formaður: Guðmundur Krist- jánsson. Ritari: Ingólfur Lárusson. Gjaldkeri: Kristinn Magnússon. Styrktarsjóður kr. 18.037.33. Tekjur af happdrætti kr. 4.395.85. Samþykkt að kaupa ræktunarsjóðs- bréf fyrir kr. 4.000.00, og láta af- ganginn í söfnunarsjóð. Samþykkt að fresta lagabreyting- um til næsta aðalfundar og kjósa til viðbótar 2 starfandi menn og kosningu hlutu Guðmundm’ Jónsson og Ingvar Einarsson. lngvar Einarsson. VÍKINGUR Á ufsaveiSum viií Flatey á Skjálfanda. Myndin er tekin á lágnœtti þetta sumar af Ás- grími Björnssyni stýrimanni. Fundur, 30. júní 1926. Á fundinum var upplýst, að Þor- steini Eyfirðing hafi verið veitt undanþága til skipstjórnar á fiski- skipi upp að 150 tonnum. 7 manna nefnd var kosin og henni falið að mótmæla aðgjörðum At- vinnumálaráðuneytisins í að veita formönnum með smáskipapróf und- anþágu til þess að færa skip yfir 60 tonn, þar eð ráðuneytið hefir eng- ar lagalegar heimildir til að veita þess konar undanþágur. Formaður upplýsti að erindi lægi fyrir um samningsgrundvöll millum Vélstjórafélags íslands og Öldufé- lagsins. Samþykkt að kjósa 5 manna nefnd til að mæta á viðræðu- fundi með Vélstjórafélagi íslands. Fundur, 6. júlí 1926. Undanþágumálið til umræðu og mikið rætt. Eftirfarandi tillaga samþykkt samhljóða: „Félagið Ald- an vítir harðlega gerðir Atvinnu- málaráðuneytisins í veitingum á undanþágum frá lögum um atvinnu við siglingar, og krefst þess, að þær undanþágur, sem þegar hafa verið veittar, verði afturkallaðar þegar í stað, ella snúa sér til Al- þingis, og á annan hátt láta málið ganga svo langt sem félagið, sóma síns vegna sér sér fært.“ Stjórn félagsins falið að fylgja tillögunni eftir. Fundur, 7. október 1926. Formaður skýrði frá framkvæmd- um sínum í slysatryggingarmáli Öldunnar, gat hann þess, að hann hafi á ferð sinni út um lönd leitað sér upplýsinga hjá nokkrum vá- tryggingarfélögum. Var frekari um- ræðum frestað. Fundur, 14. október 1926. Tillaga frá Pétri Mosk: „Fundur- inn felur stjórn Öldunnar að tala við Atvinnumálaráðuneytið og heimta svar við bréfi því, sem fé- lagið Aldan sendi í júlí sl.“ Tillag- an samþykkt. Kristján Bergsson talaði um und- anþágumálin og ýmsa óreglu um út- gáfu skipstjóraskírteina og lagt til að öðrum skipstjórafélögum yrði skrifað varðandi þessi mál. Fundur, 2. desember 1926. Jón Bergsveinsson talaði um byrj- un síldveiða með herpinót og kvað hann það hafa verið 1903 og veiðst í hana það sumar 260 tunnur af síld. * * * 229

x

Sjómannablaðið Víkingur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.