Sjómannablaðið Víkingur

Árgangur

Sjómannablaðið Víkingur - 01.03.1969, Blaðsíða 4

Sjómannablaðið Víkingur - 01.03.1969, Blaðsíða 4
ÞAR MÆTAST HÓLMARAR I HLJOÐRI SORG Laugardaginn 8. marz sl. mun mörgum Stykkishólmsbúum minnisstæður. Fregnin um að leit væri hafin að m.b. Dagný flaug um bæinn og óhug setti að fólki. Það vissi að á þessum bát voru 8 ungir og hraustir sjó- menn, menn sem að allra dómi áttu eftir að verða staðnum til styrktar, ef þeim entist heilsa og líf. Þeir höfðu óspart gefið slíkt til kynna. Vonin um að þeir myndu á lífi og báturinn ofan- sjávar fjaraði smám saman út og það var ekki langt liðið á vikuna þegar vissan var fengin, en á annan veg en bæjarbúar höfðu vonað. Bát þennan hafði Sverrir Kristjánsson nýlega keypt frá Hornafirði til atvinnubóta í Stykkishólmi. Hann var á leið í heimahöfn til að hefja sjóróðra. Sverrir hafði ásamt hinum ungu mönnum unnið vel og dyggilega að þessari atvinnubót staðarins og allt vii-tist blasa blessunarlega við. Það er ekki lengi að skipast veður í lofti. Það vita sjómenn- irnir bezt. Þeir skilja kannski einna greinilegast fallvaltleik hlutanna. I dag er hinna duglegu sjó- manna sem fórust með m.b. Dag- ný minnzt í Stykkishóhnskirkju. Þar mætast Hólmarar í hljóðri sorg og votta ástvinum samúð sína. HREINN PÉTURSSON var fæddur 1. júní 1946, sonur hjón- anna Vilborgar Lárusdóttur og 48 VlKINGUR

x

Sjómannablaðið Víkingur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.