Sjómannablaðið Víkingur

Volume

Sjómannablaðið Víkingur - 01.03.1969, Page 32

Sjómannablaðið Víkingur - 01.03.1969, Page 32
Þannig er verkaskiptingin að verða um borð í stóru skipunum, sem búin eru sjálfvirkni. — Þessi verkaskipting er um borð í m.8. Wearfield. Meðal annara þjóða reyna menn stöðugt að bæta aðstöðu skipa sinna, með því að taka tæknina í síauknum mæli í þjón- ustu sína. Við það vinnst margt, m. a. að færra fólk þarf um borð i skipin, enda að því stefnt. Ég rakst á fróðlega grein í ensku blaði um daginn, sem gefið er út af „The Hunting Group“ samsteypunni, en í því eru m. a. nokkur skipafélög. Grein þessi er nokkuð löng og ít- arleg og er um breytta vinnu- tilhögun skipshafna á stórum skipum. Hvort hún á erindi til okkar eða ekki, geta menn spjall- að um, enda er það tilgangur minn með þessu. Myndin, sem fylgir þessari grein, skýrir betur en mörg orð, hvað hér er á ferðinni. Hin venju- lega tilhögun, að hásetar skuli eingöngu vinna á þilfari og véla- menn í vélarúmi, breytist þann- 76 ig, að þeir verða fyrst og fremst einskonar vinnuflokkur, sem tek- ur fyrir hina einstöku hluti skips- ins til þrifa og viðhalds undir stjórn yfirvélstjóra, sem er eins- konar tæknilegur verkstjóri hvað þessu viðvíkur. Þetta fyrirkomu- lag kemur til út af því, að fólk- inu fækkar, en jafn mikil þörf eftir sem áður á viðhaldi og þrif- um bæði í vélarúmi, þilfari og raunar um allt skipið. Með þessu nýtist fólkið betur, um leið og það ber meira úr bítum. Enginn þarf að vera langdvölum í véla- hávaðanum, og margar hendur vinna létt verk. Vélagæzlan sjálf flyzt í sérstakt einangrað her- bergi og í brúnna, þar sem mæla- aflestur og aðvörunarkerfi létta mönnum störfin. Enginn vafi er á því, að ís- lenzkir sjómenn þurfa innan tíð- ar að aðlagast þeirri hugsun, að áratugalangar venjur fara óðum að heyra fortíðinni til. Mönnum finnst sjálfsagt í fyrstu margir annmarkar á slíkum breytingum, en þróunin verður ekki stöðvuð og þetta slípast allt í meðförun- um og með tímanum. Sjómenn allra tíma hafa verið opnir fyrir nýjungum og framförum og þá á það ekki síður við um okkur íslendinga. Tækni, vinnuhagræðing og meiri tekjur eru staðreyndir, sem við þurfum að horfast í augu við. Hvort skólakerfið okkar er nægilega þjált og vakandi, til að mæta þessum nýju tímum, það er önnur saga. Líklega gera menn sér ekki almennt ljóst hve rauna- lega langt á eftir við erum þar og hve miklu tjóni það hefur valdið óg á eftir að valda. Vonandi rumskar björninn og kemur úr híðinu, áður en sól verður hæst á lofti. Ásgrímur BjÖ7'nsson. VÍKINGUR

x

Sjómannablaðið Víkingur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.