Sjómannablaðið Víkingur

Árgangur

Sjómannablaðið Víkingur - 01.03.1969, Blaðsíða 42

Sjómannablaðið Víkingur - 01.03.1969, Blaðsíða 42
Hún hugsaði sig aðeins um áð- ur en hún svaraði. — Það er alveg rétt hjá þér. Ég reiknaði með að þegarþúseint og síðar meir fengir bréfin mín, værum við löngu búin að sigrast á örðugleikunum. Svo fannst mér ekki rétt að valda þér áhyggjum, þar sem þú ekki gazt hjálpað mér hvort eð var. Það var líka ástæðan til þess, að ég sagði þér að Teddy litli kom í þennan heim um keisaraskurð, eða að frú Moody, gamla, góða hreingern- ingarkonan okkar, fékk slag í eld- húsinu hjá mér og dó. Ég sagði þér heldur ekki að ekið var yfir hundinn þinn, svo hann varð að hafa fótinn í gipsi margar vikur. .. . Því allt þetta hefði angrað þig, en þú hafðir nógar áhyggjur fyrir. — Ó, Sally! Hvað þetta hafa verið erfiðir tímar fyrir þig. — Já, þeir hafa verið það. Ég hafði nefnilega alltaf áður ein- hvern til að styðjast við. Fyrst foreldra mína og síðan þig. Þetta var eins og að læra að ganga hækjulaust. — Það var þó ekki að óttast sprengjur. Svo komu bréfin þín reglulega, þannig vissi ég alltaf hvar þú varst og að þú varst frískur. Ög . . . . Hún hætti snögglega. Hún var nærri búin að segja . .. .og að þú elskaðir mig. Hún hafði á tilfinningunni að hann vissi af hverju hún endaði ekki setninguna. — Eigum við ekki að dansa, Ted? — Segðu mér eitt. Hafðir þú enga húshjálp? Hann hreyfði sig ekki til að standa upp. — Nei, en ég hef bara gaman af því að klára þetta allt ein. Þú mátt trúa að ég er orðin dugleg. Það er varla neitt, sem ég ekki get gert sjálf. Ég hef til dæmis loks lært að flá kanínur og til- reiða þær á þann veg, sem þér þykir svo góður og þú ættir bara að smakka kökuna, sem ég hef lagt mig í líma við að læra að baka! Hún vissi að kanínukjötsbúð- ingur og sykurvörur voru uppá- 86 haldsréttir lians.....En hvað hún hafði lagt sig fram við að matbúa þetta á réttan hátt! — Nú finnst mér að við ætt- um að dansa, Ted. Alvarlegur, jafnvel sorgmædd- ur á svipinn, pantaði Ted mat inn. Síðan dönsuðu þau út á gólf- ið. Henni fannst hann halda þétt- ar um sig, en strangt tekið nauð- synlegt. Eftir andartak sagði hann: — I Indlandi hafa allir fjölda þjóna. — Þú hefðir þá átt að taka svona tvo með þér heim, til að gæta óþekktar anganna okkar. Það hefði verið reglulega sniðugt. Hún brosti að baki hans. Nú hafði hún komið honum til að sjá hlutina frá hennar sjónarhóli. Þau skemmtu sér ágætlega við kvöldverðinn. Hún minnti liann á ýmsa skemmtilega smáatburði, sem þau höfðu upplifað saman. Eins og þegar hún tapaði öðr- um skónum við giftingu þeirra og haltraði í fátinu á öðrum fætin- um fram allt kirkjugólfið. Og þegar hún keypti tíu pund af spinat, en hafði ekki hugmynd um hve fyrirferðarmikið það var, svo þau urðu að borða spinat í öll mál í heila viku. Þegar hún stopp- aði í sokkana hans þar til þeir duttu í sundur og ekkert var eft- tir nema hið fína stopp. Eða þeg- ar hann ók henni í háalofti á sjúkrahúsið og vildi láta skera hana upp strax við botnlanga- bólgu, af því hún hafði selt upp þrjá morgna í röð. En svo var ekkert að annað en. Jennifer var á leiðinni. Hversu oft höfðu starfsbræður hans ekki strítt honum með þessari sjúkdóms- greiningu! Þannig hélt hún áfram, þau hlógu og skemmtu sér við þessar minningar. Svona hamingjusamt gat að- eins fólk, sem hafði verið ungt og nýgift verið, hugsaði hún. Svona myndi hann aldrei geta haft það við Marciu.... En hún efaðist um að honum væri það ljóst. Þegar klukkan var orðin tvö sagði hún að sér finndist tími til kominn að fara að sofa. — Ég er ekki vön þreytandi næturlífi, sagði hún afsakandi. — En hvað það hefur verið gaman. Mér finnst ég vera yngri en mörg undanfarin ár. — Þú ert ágæt, Sally. Við höf- um skemmt okkur reglulega vel. Leyfirðu að ég fylgi þér upp í herbergi? —■ Já, ef þér finnst það viðeig- andi, sagði hún glettnislega og brosti til hans. — Ég er nefni- lega ekki vel heima í hvað getur gengið og ekki gengið í tilfelli sem þessu. Hann stóð kyrr við dyrnar á herberginu, eins og hann gæti ekki almennilega komið sér að því að fara. Ég sé þig aftur á morgun, sagði hann loks. — Jú, gjarnan. Við getum fengið okkur göngutúr saman, til dæmis í Hyde Park. — Ágætt, Sally. Ég. . . . Hún flýtti sér að stinga lyklin- um í skrána. Hún fann að hún var alveg komin að því að bresta í grát.......beint fyrir framan hann og þannig eyðileggja allt saman. Þegar hún hafði opnað dyrnar, tók hún eftir því að hann horfði á rúmin. Ofan á teppinu lá fíni náttkjóllinn hennar útbreidd- ur, og á borðinu við rúmið stóð kampavínið. — Sally. . . . — Góða nótt, Ted! Hún vissi að hún hefði getað fengið hann til að koma inn, að- eins með því að rétta út litla- fingurinn, og þar með eyðileggja allt. Því á morgun myndi honum finnast liún hafa notað sér að- stæðurnar. Auðveldur sigur er að- eins hálfur sigur! Takmark hennar var að hann gæfist upp, skilyrðislaust. Hún lokaði dyrunum við nefið á hon- um. Grét dálítið. Svo lagðist hún í rúmið í undirkjólnum, til að krumpa ekki fína náttkjólinn sinn. Morguninn eftir klæddi hún sig með umhyggju og lífgaði upp dragtina sína með ferskjulitaðri VlKINGUR

x

Sjómannablaðið Víkingur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.