Sjómannablaðið Víkingur

Árgangur

Sjómannablaðið Víkingur - 01.03.1969, Blaðsíða 33

Sjómannablaðið Víkingur - 01.03.1969, Blaðsíða 33
Sigurður Guðjónssori: HAFÍSRÁÐSTEFNAN Fyrir nokkru er hér lokið mik- illi ráðstefnu um hafísinn. Þar hefir án efa margt viturlegt ver- ið sagt. Enda víða að aflað fanga. Innlendir vísindamenn og er- lendir, sem telja sig gagnkunna þessum málum, leiddu þar sam- an hesta sína. Gaman væri þó að vita, hve margir þeirra hafa kynnst hafís, að maður nú ekki segi komizt verulega í kast við hann. Auðséð er af blaðaskrifum, að ekki hafa allir þessir þrjátíu fyrirlesarar verið sammála. Fyrir nokkru birtist viðtal í einu dagblaði við einn þessara vísindamanna. Hann gefur blað- inu upplýsingar um niðurstöður, sem reynzt hafi mjög gagnlegar og línurnar hafi orðið skýrari o.s. frv. Sumir tala um hitastig lofts og lagar, aðrir um vindana sem aðal- gj örendur og örlagavalda, en eru ekki sammála um hvort má sín meir. Allt er þetta nú gott og bless- að. En undarlegt er það, hve minnimáttarkennd þessara há- lærðu manna fyrir öllu, sem inn- lent er, er rótgróin og allt hent á lofti, sem frá útlendingum kem- ur, þótt landsmenn sjálfir viti eins vel eða betur um það, sem um er að ræða. 1 þessu viðtali er vitn- að í danskan mann, sem fyrir fá- um árum hafi dottið ofan á þau sannindi, að norðanátt kæmi hreyfingu á ísinn norður af ís- landi. Ekki efast ég um ágæti þessa manns og athyglisgáfu, en þessi sannindi hélt ég samt að ís- lendingar þyrftu ekki að sækja til Dana. Hér á landi er alda- gömul reynsla af þessu fyrir- bæri. Þar að auki eru aðrar þjóð- ir líklegri en Danir til að ferðast um þessar slóðir, á mesta ísatím- anum. Hefði þessi ráðstefna lagt eitt- hvað upp úr því, að fræðast af reynslu þeirra, sem hana hafa bezta, hefði hún átt að snúa sér til hinna norsku selveiðiskip- stjóra. Þeir eru meirihluta sinn- ar starfsævi í ísnum og reka með honum um allt þetta hafsvæði, sem hér er um að ræða. I öðru lagi var, í þessu sama blaðavið- tali, vitnað í brezka vísindamenn, sem 1944 hefðu komizt að þeirri niðurstöðu, að suðvestanáttin bæri ís til íslands. Þetta eru náttúrlega vísindi, þegar vísinda- menn segja það. En svona langt þurfti ekki að sækja þau. Þetta eru líka gömul íslenzk sannindi, sem fá hefði mátt hér innanlands. Auk þess sem Vestfirðingar þekkja þau, gat hver íslenzkur togaraskipstjóri gefið þessarupp- lýsingar. Þar að auki hefðu þeir getað sagt ráðstefnunni með nokkurri nákvæmni, hve lengi SV-áttin þyrfti að blása, til þess að ísbrúnin legðist yfir land- grunnskantinn á vissum stöðum, t.d. Halanum og aðra staði vest- ur með hallanum, vestur og út af Vestfjörðum. Sömuleiðis hvernig vindstaðan þarf að vera til þess að reka íshrönnina yfir hina sterku straumkvísl, sem flæðir þarna norðaustur með kantinum. Þegar yfir hana er komið, á ísinn auðfarna leið upp Djúpálin og svæðið vestan af honum. Ekki vil ég efast um það, að brezkir menn hafi farið norður í Grænlandshaf þetta tiltekna ár, en um þá er svipaða sögu að segja og Dani, að aðrar þjóðir eru lík- legri til þeirra ferða. Á fiskimið íssvæðanna sækja þeirra togarar ekki, þótt þeir séu fjölmennastir á grunnmiðum Vestfjarða. Aftur á móti stunda hinir þýzku togarar öll hin sömu djúp- mið sem hinir íslenzku. Þar að auki hafa þýzk rannsóknaskip eitthvað verið á þessum slóðum síðustu tvo áratugina. Væri því nokkurrar reynslu þaðan að vænta, fyrst á annað borð þarf upplýsingar til annarra landa að sækja. Ekki efast maður um góðan vilja þessara manna, að gjöra sitt bezta, en einhvernveginn hef- ir maður það á tilfinningunni, að kostnaðurinn af þessari miklu ráðstefnu hefði mátt spara sér. 4 ák VlKINGUR 77

x

Sjómannablaðið Víkingur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.