Sjómannablaðið Víkingur

Árgangur

Sjómannablaðið Víkingur - 01.03.1969, Blaðsíða 10

Sjómannablaðið Víkingur - 01.03.1969, Blaðsíða 10
lieima 22. febrúar, annars væri þetta í lagi fram á vor. Svo kom kallið. Varðskipið ÞÓR heyrði kall á neyðarbylgjunni. Áhöfn m/b SVANS frá Súðavík sagðist vera farin öll í gúmmí- bátinn 15—18 sjómílur frá Deild. Nú fór allt loftið í gang. Skip- in fóru að tilkynna sig til þátt- töku. Hvar þau væru og hve lengi þau yrðu á svæðið. Varðskipið tók þegar forustuna og skipu- lagði leitina. — Varðskipið átti klukkustundarferð á slysstaðinn, einnig Dettifoss, sem hafði verið á norðurleið við Rit, en snéri nú við. Nokkrir línubátar voru næst staðnum. Fljótt fann einn línu- bátanna lóðabelgi á reki. Því var spurningin, hvort gúmmíbáturinn hefði losnað frá SVANI á undan belgjunum eða eftir, og hvort ræki þá hraðar. Þarna var nú kominn stormur, snjókoma og frost. — Vegna fjölda skipanna á þessum slóðum vonuðum við, að báturinn finndist á hverju augna- bliki. Jóhann dró nú fram sjó- kort sitt af Vestfjörðum. Þar at- huguðum við slysstaðinn og af- stöðu hinna mörgu skipa, sem höfðu tilkynnt sig í leitina. Allir sögðu strax, að þeir væru á leið á slysstaðinn. Þar eð ekki tókst að finna bátinn strax, fórunr við að velta því fyrir okkur, hvenær liann færi að skyggja og vonuð- um, að þetta tækist fyrir myrkr- ið. Við leitina var aðeins hálf míla milli leitarskipanna vegna sjó- gangs og snjókómu, en við beztu skilyrði má mest vera þrjár mílur milli leitarskipa við leit að slík- um fleka. Við sátum alíir á gólfinu kring- um sjókortið. Hlustuðum á tal- viðskipti leitarskipanna og bið- um. Það var mjög einkennileg að- stöðubreyting, eftir að hafa verið beinn þátttakandi við leitar- og björgunarstörf í 12 ár, að sitja nú alit í einu í landi og geta að- eins fylgst með aðgerðúm þátt- takendanna á sjókorti. Þau leitar- skipanna, sem næst voru gúmmí- bátnum, gátu nú talað við menn- ina í honum. Ekki reyndist nokk- ur leið að ná miðun á honum. Stafaði það af því, að fljótlega hafði loftnetið brotnað af talstöð lians. Þegar hann var að detta á með myrkrið, sáu tveir línubátanna gúmmíbátinn framundan. Báðu þeir ÞÓR að koma og taka menn- ina úr bátnum. ÞÓR var kominn til þeii’ra eftir nokkrar mínútui- og fór til lilés við gúmmíbátinn, sem rak nú að síðu varðskipsins. Furðu vel gekk að ná mönnunum, þi’átt fyrir sjóganginn, en bönd voru sett á mennina meðan þeir voru teknir á milli. Síðan hélt ÞÓR á rólegri ferð inn í Djúp, en veður var mjög slæmt og mikil yfirísing. — Línubátarnir voru skammt á undan ÞÓR á landleið- inni. Um miðnætti kom ÞÓR að bryggju á ísafirði. Þá voru skip- brotsmenn furðu hressir, þrátt fyrir smá kalbletti, sem vonandi verða þó ekki til meina. Einhver hafði fundið örlitla brennivíns- lögg, hafði hún ásamt heitu hjálp- að til. að endurhressa skipbrots- mennina eftir volkið. Hjá okkur á Horni hélt biðin áfram. IJti voru 9 vindstig með 15 stiga frosti og ofankomu. Næt- urnar vakti ég með Jóhanni, en hann vakir allar nætur yfir veðr- inu, sem hann sendir á þriggja tíma fresti gegn um talstöðina til Siglufjarðar alla daga allt árið. Það verður að vaka yfir veðrinu, því mitt á milli veðurathugan- anna þarf að vökva eða setja vatn á rakamælinn. Þessvegna er lágmark að hafa tvær manneskj- ur, þar sem veðurathuganir eru gerðar á þriggja tíma fresti. Á daginn vakir konan. Ásamtvenju- legum heimilisstörfum sinnir hún þá veðurathugunum, skrásetur þær og sendir til Siglufjarðar meðan Jóhann sefur. Á hinni löngu næturvakt Jó- hanns er hann sístarfandi, þó veð- ur leyfi ekki útiveru. Ljóskerið og vitaspeglarnir þurfa mikið eftir- lit. Líta þarf eftir radíóvitanum, sem er mikið bákn af radíótækj- um. Ljósavélarnar, sem tilvera Hornbúa byggist að verulegu leyti á, þurfa sífellt eftirlit og umönnun. Þegar stund gefst gríp- ur Jóhann til bókar úr bókasafni sínu, sem mun vera með beztu einkabókasöfnum í landinu. Is- Vegna erfiðleika við ferðalög á landi um þessar slóðir nytjast liestar ekki. Á Horni er þó einn hestur, kallaður Jeppi, er hann þar sem vinur vitavarðarhjónanna. Á myndinni sjótun við Jóhann kveðja Jeppa, áður en vitavörðurinn gengur á Axarfjall með talstöð' á bakinu. 54 VlKINGUR

x

Sjómannablaðið Víkingur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.