Sjómannablaðið Víkingur

Árgangur

Sjómannablaðið Víkingur - 01.03.1969, Blaðsíða 8

Sjómannablaðið Víkingur - 01.03.1969, Blaðsíða 8
voru afhent kolin og honum sjálf- um falið að koma þeim til viðtak- anda á ísafirði. Við Straumnes vorum við kl. 0530 og mætti okkur þá fyrsti vindgusturinn. Fór hann upp í 9 vindstig en alveg sjólaus. Þegar komið var austur að Hælavíkur- bjargi var hann orðinn hægari aftur eða 5 vindstig. Enn var sjó- lítið. Við komu á Látravík voru 5—6 vindstig og farið að ýfa sjó, klukkan var liðlega 7. Þegar rennt var inn á víkina, var allt tilbúið á dekki. Gúmmíflekinn var sjósettur, hlaðinn og mannaður. Þegar komið var að sundinu inn að lendingunni, var farið að brjóta nokkuð á yzta boðanum, sem ræður alveg sjólagi í sund- inu, því á honum verða stærstu brotin. Sundið er 120 metra langt og er alltaf útstraumur í því. Ef sjór er á annað borð, þá er straumurinn alltaf á móti öld- unni. Sjólagverðurall óreglulegt, en verst er, þegar vaðandinn eft- ir stórt brot beygir þvert á sund- ið og tekur bátinn þvert á síðuna, en við því verður ekkert gert vegna þrengsla í sundinu,þarsem taka verður tvær nákvæmar beygjur. Verður því að hafa hrað- ann á, þegar lagt hefur verið í sundið, því reikna verður með einhverjum áföllum á leiðinni vegna lengdar sundsins, þó hitzt hafi á gott lag. Eftir skamma dvöl utan við sundið var tekin sigling inn. Innan við mitt sund var drekinn látinn fara. I næstu andrá gróf hann sig svo duglega í sundinu, að skrúfan tók niðri og brotnaði. Við Sigurbjörn þrifum árar og um leið óð yfir bátinn, en ekki kom mikill sjór í hann. — Benóný slakaði drekabandinu og fylgdist með brotunum. Rétt und- an lendingunni óð yfir bátinn og við sentumst í fjöruna, þar sem Jóhann og Karen tóku við okkur. Allar hendur voru strax á bátn- um, til að draga hann undan sjó, en nú var hann orðinn þungur. Farangurinn var í barka, sem stóð öllu hærra en skuturinn. Var farangrinum nú kippt upp á skaflinn og stóð á endum, að skut- Daníel Isfirð'ingur, Hornstrendingurinn og Ólafur Valur leggja frá „Albert“ með vistir í lijörgunarskýli á Ströndum. urinn var sléttfullur, þegar far- angurinn var á þurru. Mjökuðum við nú bátnum ofar og jusum jafnóðum, en Benóný hafði mátt losa mótorinn af sokknum skutn- um undir ágjöf. Brátt var bátur- inn þurr og kominn langt upp í skafl, þar sem var öllu léttara að hreyfa hann, en þar minnti hann mest á sleða. Á þessum augnablikum, sem tók að komast í land, snarhvessti með ofankomu og frost jókst. Sundið hraðversnaði. Einu sinni áður hef ég róið sundið inn og út við annan mann í svipuðu veðri. Efni í björgunarskýli, smíðað úr flekum, flutt til uppsetningar á Hornströndum. Gúmmíbátar varðskipsins fluttu veggina í heilu lagi í land. 52 VlKINGUR

x

Sjómannablaðið Víkingur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.