Sjómannablaðið Víkingur

Árgangur

Sjómannablaðið Víkingur - 01.03.1969, Blaðsíða 17

Sjómannablaðið Víkingur - 01.03.1969, Blaðsíða 17
Stig ísingar: lítil ~ 1—3 cm á 24 klst. talsverð = 4—6 cm á 24 klst. mikil = 7—14 cm á 24 klst. mjög mikil 3: 15 cm á 24 klst. Dæmi: Veðursprí: Vindhraði 9—10 vindstig Lofthiti -r- 8°C Lofthiti + 3°C Samkvæmt línuritinu má búast við mikilli ísingu, 7—14 cm á 24 klst. Þessi línurit, sem birt eru á 3. mynd, eru aðal- lega byggð á athugunum Dr. Mertins þegar hann starfaði sem veðurfræðingur á eftirlitsskipunum Meerkatze og Poseidon og á fiskirannsóknarskip- inu Anton Dohrn, en þá safnaði hann gögnum um ísingu á þýzkum og enskum togurum. Sjávardeild veðurstofunnar í Hamborg hefir á síðastliðnum 10 árum afhent þýzkum skipum, sem sigla um svæði, þar sem ísingar er að vænta, eyðublöð til að færa á athuganir á ísingu skipanna. Línuritin eru þannig byggð á um 400 athugunum á ísingu skipa, aðal- lega af hafsvæðunum við ísland, Grænland og Labrador og á Barentshafinu, nokkrar þó frá Eystrasalti. Þessi línurit eru þannig miðuð aðal- lega við togara, sennilega hliðartogara, og þau eru miðuð við ísingu m.a. á hafsvæðinu við Island og Grænland. Ekki er vitað hve mikill fjöldi athugan- anna er frá Labrador og Barentshafi, en það kann að hafa nokkur áhrif á niðurstöðurnar. Hér virðist ekki vera um að ræða mælingar á ísingunni með mælitækjum, en þó er ekki ósennilegt að meðaltal 400 athugana gerðar á sömu eyðublöðum, muni að meðaltali gefa nokkuð rétta mynd af ísingunni. ís- ing nokkurra sænskra skipa í Eystrasalti hefir ver- ið borin saman við þessi línurit Dr. Mertins, og samræmi virðist gott. Fróðlegt verður að fylgjast með árangri ísingar- spár íslenzku veðurstofunnar, hvernig hún reynist í samræmi við íslenzlc fiskiskip. Væri mjög gagn- legt ef íslenzkir fiskiskipstjórar, sem staddir eru á hafsvæðum þar sem spáð er ísingarhættu, vildu taka að sér að skrá hjá sér í hvert sinn stuttorða lýsingu á ísingu skipsins, ásamt upplýsingum um raunverulegan lofthita, vindátt, vindhraða, sigl- ingarhraða og stefnu skipsins og sjávarástand. Slíkar upplýsingar gætu orðið mikilvægar til frek- ari athugunar á nauðsynlegum stöðugleikakröfum fyrir fiskiskip, en um leið mætti fá nokkurra vit- neskju um samræmi ísingar-línuritanna miðað við íslenzk fiskiskip af ýmsum gerðum. Á k. mynd er eyðublað, sem skipaskoðunarstjórinn hefir gert, í samráði við veðurstofustjóra, til útfyllingar fyrir skipstjóra fiskiskipa, til að kanna þetta mikilvæga atriði stöðugleika fiskiskipanna, og ísspár veður- stofunnar. SKIPASKOÐUNARSTJÓRINN Pósthólf ^84. UMHJRIARBREF NR. tíO. REYKJAVlK J^^ar 1^6'). Sklplð: Nafn: Urxlamisnúmer:__ Sklpaskrámúmer:___________________ Rúmle.-.lir Br.: Hleðsluástand, fríborð:__________________ rr.. Staðoetnlng sklpsins: Lengd:__________ Br.:_________ _____________ Ising byrjaðl kl.:________ Hœtti kl.s_____________ Vindátt:_____________ Vlndhraði:__________________ vindstig (Bf). Astluð bylgjulengd:_____________m. Amtluð býlgjuhmð:______________ I/Jfthiti:___________ °C. Sjávarhiti :____________°C. Hraði :;kips: Stefna skips:____________________________ l3ingarspá:________________________________________________ Stutt lýsing á hvemig skipið fór í sjó meðan það var ísað:________ Staður ísingarlnnar: Mesta þykkt i cm. BB. SB. a Utan á bol skipsins. L. A bakkaþilfari. a. A bátaþilfari. d. A stýrishúsi. e. A framraastri og stögum. f. .A aðalþilfari. g. A skjólborði aðalþilf. h. A rekkverki á bakka. I. A rekkverki eða skjólborði bátapalls. J. Annað (hvað?). Aætluð þyngd isingar samtals ____________ tonn. Var ísinn fjarleagður alveg, eða að nokkru leyti?: A hvem hátt var unnið að því að fjarle^ja ísinn?: Hve langan tíma tók að fjarlœgja ísinn?:_ Hve margir sklpverjar unnu vlð það?:_____ Dags. 4. mynd. 3. Brezkar rannsólcnir á ísingu togara eftir togara- slysin 1955. Margir munu eflaust minnast þess, að 26. janúar 1955 hvolfdi brezku togurunum Lorella og Roder- igo norðaustur af Hornbjargi og 40 manns fórust. Þótt ísing skipa væri gamalt vandamál, þá vakti þetta sjóslys menn til umhugsunar um nauðsyn á frekari rannsókn þess. Brezka rannsóknarstofnun- in BSRA gerði sérstakar ísingarrannsóknir á lík- önum af brezkum togurum, af þeirri gerð, sem al- gengust var á árunum 1948 til 1955. ítarleg grein- argerð var birt að þessum rannsóknum loknum í skýrslu BSRA nr. 221: Rannsókn á ísingu togara (7), frá 1957. Síðar hefir H. Lackenby, sem var ábyrgur fyrir þessum rannsóknum skrifað greinar- gerðir um málið, m.a. í Fishing Boats of the World: 2 (8). Rannsóknirnar voru framkvæmdar í flugvélatil- raunastöð, þar sem hægt var að hafa togaralíkön á VlKINGUR 61

x

Sjómannablaðið Víkingur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.