Sjómannablaðið Víkingur - 01.03.1969, Blaðsíða 24
Ritstjóri eins af stórblöðum Noregs
rifjaði eitt sinn upp atvik frá þeim
tíma, er hann var byrjandi á nætur-
vakt blaðsins, og aðstoðaði við bæjar-
fréttadálkinn. Frétt barst um, að stórt
holdanaut frá fjósi í Raumsdal, hefði
verið „lagt inn“ í sláturhúsið, og önn-
ur samtímis, um að heiðursprófessor
háskólans mundi flytja síðasta fyrir-
lestur sinn þá um daginn.
„Óvenju stórt holdanaut mun kl. 2
í dag halda kveðjufyrirlestur í fjórðu
kennslustofu háskólans. Prófessor
Lárus Diðriksen var innlagður í slát-
urhús borgarinnar frá fjósi í Rómar-
ríki, sem vóg yfir 300 kíló!“
Þau voru nýgift, og hann fór með
henni í hattabúð. Konan mátaði ótal
hatta, en manninum fannst enginn
nógu góður:
„Nei, engillinn minn, þessi passar
þér ekki“.
„Loks missti afgreiðslustúlkan þol-
inmæðina:
„Því miður get ég víst ekki hjálpað
frúnni. Við verzlum ekki hér með
geislabauga“.
r-------------------------------------
*
V
A
K
T
I
N
k._______j
68
Lyfsalinn í apóteki í kaupstaðnum
skrapp yfir til kaupmannsins og bað
son sinn 12 ára að vera við á meðan,
en láta sig vita ef eitthvað bæri að
sem hann gæti ekki klárað að afgreiða.
Þegar hann kom aftur, spurði hann
piltinn hvort nokkur hefði komið.
„Jú, það kom maður og bað um
meðal við hósta“.
„Og hvað gafstu honum?“
„Laxerolíuglas".
„Hvað meinarðu drengur. Þetta er
ekkert meðal við hósta“.
„Jú, ég er viss um það. Hann stend-
ur núna héma fyrir utan og þarf að
hósta, en þorir það ekki“.
*
Hinn frægi málari Holbein, sem
uppi var á dögum Hinriks áttunda
Englakonungs átti stundum í brös-
um við aðalinn.
Eitt sinn ruddist aðalsmaður inn
til málarans, þar sem hann vann. Hol-
bein fleygði aðalsmanninum út, en
hann klagaði fyrir konungi og hót-
aði að hefna sín.
„Farið varlega í það“, svaraði kon-
ungur. „Ef þér snertið eitt hár á
höfði Holbeins, læt ég hálshöggva yð-
ur, Ég get aðlað sjö bændur, en af
sjö aðalsmönnum get ég engan gert að
Holbein."
*
Hjónin voru bæði við nám í Háskól-
anum. Á vorprófi fékk konan ágætis-
einkunn, en eiginmaðurinn rétt skreið.
Þegar faðir hans spurði, hvernig á
þessu stæði, svaraði hann: „Næsta
vetur skal það verða hún, sem passar
barnið á nóttunni og þvær upp!“
*
Drottinn hét Rússa, Þjóðverja og
Tékka því, að hann skyldi uppfylla
eina ósk fyrir hvern þeirra.
Rússinn óskaði án tafar, að öllum
Þjóðverjum yrði útrýmt og Þjóðverj-
inn óskaði þess, að öllum Rússum
yrði útrýmt af yfirborði jarðar.
Tékkinn hugsaði sig vel um, en
sagði svo ósköp rólega: “Ef Drott-
inn uppfyllir óskir hinna, mætti ég
þá biðja um kaffibolla!“
*
Bundnar hendur klappa ekki.
Aðalerfiðleikarnir byrja sama dag-
inn og þú hefur frjálsar hendur með
hvað þú gerir.
*
Hann: Hver sá, sem fremur þjófn-
að, iðrast þess alla ævi.
Hún: Þú stalst mér frá foreldrum
mínum.
Hann: Já, ég iðrast lika!
/ tímaþröng.
„Hvernig stóð á því, að þú fékkst
blátt auga?“
„Lentirðu í slagsmálum?"
„Nei, ég var aðeins sjónarvottur!“
*
„María! Ég hef gleypt skyrtu-
hnappinn minn.“
„Jæja, þá veiztu loksins, hvar hann
er“.
*
„Maðurinn yðar var ekki líftryggð-
ur, hann var aðeins tryggður gegn
eldsvoða. Þess vegna getum við ekki
bætt hann“.
„Jú, en maðurinn minn var ekki
jarðaður, hann var brenndur".
„Vill ekki konan þín hafa síðasta
orðið, þegar þið deilið?“
„Nei, hún fær það ekki“.
„Og hvað segir þú?“
„Fyrirgefðu elskan mín!“
*
„Konan mín fer aldrei að sofa, fyrr
en komin er nótt, og ég get aldrei
vanið hana af þessu“.
„Hvað er hún að gera langt fram
á nótt?“
„Hún situr uppi og bíður eftir mér“.
*
Rúmlega fimmtug frú heimsótti eitt
sinn lækni sinn og bað um hinar vel-
þekktu pillur.
„Já, en góða frú, á yðar aldri þurfið
þér alls ekki á þessum pillum að
halda“.
En frúin gaf sig ekki, sagðist hafa
notað þær, og nú gæti hún alls ekki
sofið án þeirra. „Það er ekkert svefn-
meðal í þessum pillum", svaraði lækn-
irinn.
„Ég veit ekki, hvað þær innihalda",
svaraði frúin, en ég gef dóttur minni
alltaf pillu, þegar henni er boðið út,
og þá sef ég miklu betur“.
„Nei, heill og sæll gamli vinur Ferdí-
nand, en hvað þú hefur breytzt þessi
10 ár síðan ég sá þig síðast!“
„En ég heiti alls ekki Ferdinand".
VlKINGUR