Sjómannablaðið Víkingur

Árgangur

Sjómannablaðið Víkingur - 01.03.1969, Blaðsíða 26

Sjómannablaðið Víkingur - 01.03.1969, Blaðsíða 26
Bátar og formenn í Vestmannaeyjum Sigurð'ur S. NoriVfjörð. „Valur“ 7,50 tonn. Smíðaðtir í Danmörku 1907. Sigurður Sigurðsson Norðfjörð er fæddur að Kolableikseyri í Mjóafirði 22. júní 1894. Foreldar Sigurlína Bjarnadóttir og Sigurð- ur Norðfjörð Sigurðsson. Sigurð- ur missti föður sinn á unga aldri. 1902 flytzt Sigurður með móður sinni til Eyja. 14 ára byrjar hann sjómennsku á „Skarphéðni" með Jóni í Ólafshúsum. Síðar var hann með Guðmundi Helgasyni á „Geysi." Formennsku byrjar Sig- ui’ður 1914 á „Val,“ þá einu ver- tíð. Áfram var Sigurður til sjós á ýmsum bátum og alls 14 ár í siglingum víða um heim. Eftir lieimkomuna byrjar hann for- mennsku aftur og þá frá Reykja- vík. Var hann með „Harald," „Gróttu“ og síðast „Vonina." Eftir Reykjavíkur-veruna fór Frh. á bls. 72 70 Guðmundur Gunnarsson. í Guðm. Gunnarsson, Kirkju- hvoli var fæddur að Ósi í Breið- dal 21. okt. 1884. Foreldrar Gunn- ar Jósepsson, ættaður frá Fjalla- seli í Fellum og Guðrún Guð- mundsdóttir kona hans. Hún var frá Hala í Suðursveit. Upp úr fermingu byrjaði Guð- mundur sjómennsku á opnumbát- um og á þeim hóf hann for- mennsku sína. Eftir komu vélbát- anna var Guðmundur formaður á þeim mörg úthöld fyrir Austur- landi. 1912 fór Guðmundur á vertíð, fyrst til Eyja og gerðist vélstjóri á „Ásdísi“ með Þórði Jónssyni frá Bergi. Upp úr þessu fluttist Guðmundur alfarið til Eyja. 1917 varð Guðmundur formaður á „Stefni" og var með hann í tvær Frh. á bls. 72 „Svanur“ 9,00 tonn. Smíð'aður í Danmörku 1911. Hávarður Helgason, Grund, Mjóafirði var fæddur þar 25. júlí 1894. Foreldrar Helgi Hávarðs- son og kona hans Ingibjörg Þor- valdsdóttir. 1910 byrjaði Hávarð- ur sjómennsku á „Val“ frá Mjóa- firði. Síðar var hann vélamaður á þeim báti í 3 ár. Síðar tók hann við formennsku á „Trausta“ og er með hann í 2 ár. 1916 fer Há- varður til Seyðisfjarðar og tók við „Víking“ fyrir Brynjólf Sig- urðsson. Þann bát var hann með í tugi úthalda og varð hæstur með afla yfir verstöðina. Á vetrum réri Hávarður úr Eyjum hjá Ár- sæli á Fögrubrekku. 1921 var Há- varður formaður á „Svan“ og liætti síðan formennsku í Eyjum. En störfum á sjónum liélt hann áfram eftir að hann fór aftur frh. á bls. 72 VÍKINGUR

x

Sjómannablaðið Víkingur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.