Sjómannablaðið Víkingur

Árgangur

Sjómannablaðið Víkingur - 01.03.1969, Blaðsíða 40

Sjómannablaðið Víkingur - 01.03.1969, Blaðsíða 40
Henni fannst hún vera veik af sársauka og reiði. — Góði Guð! Láttu mig halda sönsum. Gefðu mér kraft til að standa honum á sporði, þar til ég hef áttað mig svo ég viti hvað ég á að gera. Hann gretti sig. — Ég veit ekki. Ég er ókunnugur slíkum málum. En þú verður að útkljá það eins liðlega og fljótt og hægt er. Ég þarf ekki að taka það fram að ég mun sjá um þig og börnin. Ég meina peningalega. Æ, Sally, þú verður að skilja að þetta er erfitt fyrir mig og mig tekur þetta mjög sárt. — Það gleður mig að heyra, slapp út úr henni, óviljandi. Hún hélt sígarettunni yfir öskubakkanum. Hún vonaði, að hann veitti því ekki athygli að höndin skalf. — Ég vona að þú takir þér þetta ekki alltof nærri. Þú kem- ur mér til að skoða sjálfan mig sem reglulegt ómenni. Hann horfði spyrjandi á hana. Það var reyndar í fyrsta skipt- ið sem hann leit á hana, síðan þau hittust. — En, Sally þó. Þú hefur tek- ið upp nýja greiðslu. — Mjög fallega verð ég að segja. Hún fékk hjartslátt. Nú var um að gera að vera gætin. — Jæja, finnst þér það? Þú mátt trúa að hún er þægileg. Haltu þér bara að hlutlausu efni. Vertu skynsöm og mundu að kvenmaðurinn er eins langt í burtu núna og þú varst áður. Reyndu að hugsa þér að þetta sé bara leikur, . . eins og til dæmis skák. Vinningurinn er auðvitað hár, en afi þinn vann stórfé í kauphöllinni og fólk segir að þú líkist honum. Taktu bara allt saman með ró. — Hvað það snertir að ég taki þetta nærri mér, sagði hún, og valdi orðin með sömu gætni og þegar hún var lítil telpa og hopp- aði af flís á flís á gangstéttinni, á leiðinni í skólann, en varaðist að stíga á samskeytin. — Taki þetta nærri mér. Nei, mér finnst bara eins og ég hafði verið kram- in undir gufuþjöppu. — Ég er 84 nú líka farin að venjast því að vera án þín, sagði hún. — En ég get ekki neitað að ég er dálítið utan við mig í augnablikinu.. . Því allt sem ég hef aðhafst hefur verið með hamingjusömum end- urfundi okkar fyrir augum. Og nú þegar þú sviftir mig svona, þá hefi ég ekkert til að láta mig dreyma um og ekkert til að lifa fyrir. Það er auðvitað auðveldara fyrir þig, sem vissir hveriiig kom- ið var fyrir þér.... En ég hefði ef til vill átt að geta gert mér þess til. — Ég skil ekki. — Jú, því síðustu bréfin þín voru ekki beinlínis innileg. Hún dreypti á víninu. Ég vil ekki líta á hann. Augu mín gætu sagt of mikið. I mínum augum er hann jafn fallegur og yndislegur. Ég myndi hrína eins og hundur, ef hann snerti við mér núna. — Ég veit að þú hugsar þér að vera sanngjarn gagnvart mér, hélt hún áfram. — En þú verður að gefa mér tóm til að hugsa mig um. . . . Það er annars óra tími síðan ég hef verið að heiman frá heimili og börnum. Ættum við ekki þessvegna, ef þú hefur ekki ráðgert neitt annað, að skemmta okkur eitthvað um helgina, eins og góðir og gamlir vinir. Bjóddu mér út að borða einhversstaðar, svo skulum við fara í leikhús og síðan dansa. Ég er nýbúinn að fá nýjan kjól og vil gjarnan fá tæki- færi til að nota hann. — Með mikilli ánægju Sally! sagði hann innilega. — Það vil ég nijög gjarnan. Hann hafði ráð á að gefa mér molana, eftir að vera búinn að gefa annarri kökuna. — Ég verð að flýta mér að skipta um föt. Klukkan er bráð- um sex. Þú sérð um útvegun mið- anna, svo hitti ég þig hér í and- dyrinu eftir hálftíma. — Allt í lagi, sagði hann og var auðsjáanlega dauð feginn. Þegar hún kom upp í herbergið, brast hún í ákafan grát. Hún fleygði sér upp í rúmið og grét hástöfum og sparkaði með fótun- um. Sem sagt, hún hagaði sér al- veg eins og Jennifer, þegar hún var óþekk. Hvernig gat hann fengið þetta af sér. Hann hlaut þó að vita hve heitt hún elskaði hann. Og hrædd hafði hún verið um hann þessi löngu fjögur ár. Það eina sem hafði hjálpað henni allan tímann í veikindum barnanna og önnum heimilisins, sem hún varð að ann- ast ein, var hugsunin um heim- komu hans. Skyldi hann alls ekki að einnig fyrir hana hafði aðskilnaðurinn verið kvöl einnig líkamlega. Kvöl sem hélt vöku fyrir henni marga nóttina. Síðan varð hún að horfa fram á daginn þreytt og kjark- laus. Það hlaut hann þó að skilja. Svo mikið höfðu þau átt sam eiginlega. Auðvitað hafði hún haft bréfin til hans eins skemmti- leg og hún gat, til þess að hressa hann upp. En hann hefði sannar- lega átt að geta lesið milli lín- anna. Og ef hann skildi hvernig henni hefur liðið, hvernig gat hann fengið sig til að koma heim og segja að hann sé farinn að elska aðra. Hann hlaut að vera brjálaður. — Alls ekki með sjálf- um sér. Ekki sá Ted, sem hún elskaði og þráði svo mikið. Ekki sá Ted, sem hafði skrifað henni svo möi'g yndæl bréf. Þar til fyr- ir nokkrum mánuðum síðan. Hún grét á meðan hún hafði mátt til. Svo tók hún ísmola úr kælinum, vafði inn í handklæði og eftir að hafa sparkað af sér skón- um, hélt hún handklæðinu að grátbólgnum augunum, lagðist upp í í’úmið til að hugsa. Því meir sem hún hugsaði um þetta varð hún vissari um að Ted myndi ekki hafa hörku til að skilja við hana. Til þess hafði hann elskað hana of heitt og lengi. Og auk þess voru börnin. Hann hafði látið mikið með Jennifer. — Hafði skrifað bréf full af föðurgleði, er hún hafði skrifað honum að þau hefðu eign- ast son. Einasta skýringin á þessu öllu hlaut að vera sú, að tilfinninga- líf hans hafði orðið fyrir ein- VlKINGUR

x

Sjómannablaðið Víkingur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.