Sjómannablaðið Víkingur

Volume

Sjómannablaðið Víkingur - 01.03.1969, Page 7

Sjómannablaðið Víkingur - 01.03.1969, Page 7
KVEÐJA Ölafur V. Sigurdssou: í HORNBJARGSVITA Flutningur til Hornbjargsvita í gúnnníbátuni varðekips. Vitahúsið' er lengst til vinstri. Til hægri sést stiginn, sem liggur upp klettinn neðan úr lendingunni. frá skipstjóra og skipshöfn á togaranum Hallveigu Fróðadóttur til samstarfs- mannanna sex, er fórust t brunanum um borð þann 6. marz 1969. Blikandi er haf iö, hjartar eru stjörnur heiöum uppi á himni, hugann aö sér draga. Drengir hraustir Dáöum prýddir sjómenn, út leggja til glímu viö Ægi konung. Eylandsins þjóö, hún á allt sitt líf undir sókn út á sjó og sigrum í djúpi. Hvort velferöin vex cöa veröur undir, því ræöur mest gifta góöra drengja. Út héldum viö, allir saman, frá ástvinum okkar á ólgandi hafiö. En sex okkar féllu á fyrsta degi, því eldsvoöinn hertók okkar skip. Sker okkur harmur í hjörtu hugirnir eins og í báli. Svipleg er sorgar stundin, svíöur í flakandi undum. Félagar okkar þar féllu, fóru þar góöir drengir. Handan viö hafiö mikla höfn þeirra örugg bíöur. Tregt, er nú tungu og hræm Tökin þung eru stundum,. Örlögin illa viö skiljum, engu ráöum hvar gistum. Þakka skal þeim er féllu, þeirra störf öll og kynni. Kveöjum svo kæra vini, kveöjunni hinztu. J. E. K. Nú höfum við félagarnir, Sig- urbjörn Svavarsson, Benóný Ás- grímsson, hásetar, og ég, sem er fyrsti stýrimaður á varðskipinu ÞÓR, verið hér í Hornbjargsvita hjá Jóhanni vitaverði síðan á miðvikudagsmorgni í þessari viku. Nú er föstudagur 31. jan. 1969 og klukkan er 6 að kvöldi, þegar ég byrja að skrá þetta. Við vorum að standa upp frá síðdegiskaffiborðinu með heima- bökuðu rúgbrauði og fransk- brauði með osti og rækjusalati. Brúnköku með rúsínum og smá- kökum. Slíkt er atlætið hér í mat, að nokkuð má gæta að sér. Matur allur er framreiddur hér af syst- ur Jóhanns, Láru Karen, sem er hin vænsta kona. Ræður hún hér fyrir húshaldi öllu og hefur hjá sér tvö yngstu börn sin, drengina Jón Martein 7 ára og Þoi’finn Svein 5 ára, eru þetta hraustleg- ustu strákar. Þegar við komum íiérna mið- vikudaginn 29. janúar, var hann að ganga upp með hvassa norð- austan átt eftir stillt og hlýtt veð- ur. Við komum á ÞÓR úr Breiða- firði, þar sem við höfðum skipt um Ijósker á baujunni á Rifi. Veður- spá kl. 10 á þriðjudagskvöld var hvessandi norðaustan með fann- konm og frosti á næsta degi. Um kl. 2 á miðvikudagsmorgni til- kynnti ORSINO, sem er hjálpar- skip brezku togaranna við Island, að á næstu þrem til sex tímum mundi hann hvessa í 8—9 vind- stig við Vestfirði. Á leiðinni norð- ur var komið við á Prestabót ut- an við ísafjarðarkaupstað. Þar var fyrir hafnsögubáturinn með flutninginn, sem flytja átti til vitavarðarins á Horni. 1 farangri þessum voru kol í aðra ljósavél- ina á Horni, þá sem gangfær er, en lum spænir upp kolunum og eru síðustu kolin í vélinni og því ekki seinna vænna að fá varakol, ef ekki átti að fara illa. Þegar kolin voru send frá Reykjavík, var flugvél Flugfé- lagsins látin bíða flugtaks eftir kolunum. Flugmanni vélarinnar VlKINGUR 51

x

Sjómannablaðið Víkingur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.