Sjómannablaðið Víkingur

Årgang

Sjómannablaðið Víkingur - 01.03.1969, Side 12

Sjómannablaðið Víkingur - 01.03.1969, Side 12
þegar menn töldu ófært og vildu snúa frá norðurlandi með vörur sínar, sem voru hinar venjulegu lífsnauðsynjar. Þröngt hefði get- að orðið í mörgu búinu norðan- lands ef Jóhanns hefði ekki notið við. Reynt hefur verið að gizka á, hvað aðstoð Jóhanns hafi sparað flutningakerfinu mikið fé í töp- uðum biðtíma. Lægsta upphæð er 8 milljónir króna. Mönnum er svo frjálst að geta sér til um raun- verulegan sparnað í heild, á öll- um þeim sviðum, sem siglingar þessar grípa inn í. 20, 30, 40 milljónir eru upphæðir, sem vel koma til greina. Sjómennirnir hafa oft velt því fyrir sér, hve- nær Jóhann hafi sofið, þegar ís- inn var hér síðastliðinn vetur, en fæstir hafa víst spurt hann að því, utan ein skipshöfn, sem sýndi þann drengskap, að stöðva eitt sinn skip sitt og fjölmenna í heimsókn hjá Jóhanni í vitanum. Þegar Jóhann hverfur frá Hornbjarg'i, mun honum ef til vill gefast tími til að sinna ofurlítið sjálfum sér og hugðarefni sínu. Jóhann vill skrifa. Hann er hald- inn hinni djúpu löngun tjáning- arinnar sem einkennir hans líka. Annars virðist í fljótu bragði ekki vera nauðsynlegt fyrir Jó- hann að skrifa listaverk, því hann á sitt eigið verk, sjálfan sig. Jóhann hefur ofið lífsvef sinn mörgum þráðum. Þegar litið er á einstaka hluti vefsins, gætir þar mjög sterkra sjálfstæðra lita, en úr heildarmyndinni skín mildi með þýðri áferð. Það er í eðli Jóhanns að gefa. Hann hefur rétt mörgum hjálpar- hönd. Alið upp menntuð börn, sem nú senda honum kort á jól- unum. Leiðbeint sjómönnum landsins og greitt fyrir sigling- um. Mjög hefur hann bætt hag vitavarða landsins, og barist skel- egglega fyrir þá á mörgum svið- um. Fólkið fer. Skipin sigla sína leið. 1 burtu eða framhjá. Jóhann er á sinn hátt einn í bjarginu. Nú horfir hann ofan til fólksins úr Hornbjargi, og sér það elta í- myndaðan feng framundan, sem það aldrei nær, fyrr en það hefur stöðvað, til að líta innra með sjálfu sér. Jóhann er ekki lengur háður hlaupandi fólki. Hann sit- ur í bjarginu og lítur af samúð á umheiminn. Ekki veit ég það. En ef til vill eru þeir nær Guði en aðrir menn, þeir sem í björgum búa. Á föstudeginum fór hann að lægja.Við félagarnir gengum upp á Axarfjall og skyggndumst eftir ís. Til hafsins var þunn eljaslæða og bak við hana sáum við greini- legt ísblik en ekki ísinn sjálfan. ísinn gat því verið bæði nær eða fjær, þar eð élið hindraði fjar- lægðarákvörðun. Þegar við kom- um af fjallinu, var hann að detta niður með sjóinn. Fórum við því fram að stiganum, sem liggur of- an snarbrattan klettinn, eina 20 metra niður í vörina. Neðri hluti stigans var einn svellbúnki vegna vætu úr klettinum. Einn fór nið- ur svellbúnkann á bandi, til að moka gúmmíbátinn úr skaflinum. Annar fór að höggva þrep í ísinn með sérstaklega lagaðri öxi, sem er ætluð til að höggva þrep í ís niðurfyrir sig. Stendur maður þá jafnan í síðasta þrepinu, sem maður hjó, og heggur það næsta fyrir neðan. Á laugardagsmorgninum kom ÞÓR á Víkina. Við vorum að kveðja eftir þriggja sólarhringa dvöl á Hornbjargi. Litlu dreng- irnir stóðu til hliðar meðan við útbjuggum okkur. Að lokum kom sá stærri og sagði: — Ef þú ferð ekki strax, þá skal ég sýna þér flugvélina mína. Við kvöddum fólkið. Það á fyr- ir sér langan tíma uns vorar. Litlu drengirnir ætla út í bjarg með Jóhanni, þegar góða veðrið kemur. Þegar við sigldum út slétt sund- ið vissum við, að ljósin mundu loga í Hornbjargsvita. Síðastur stóð stærri drengur- inn eftir á bjargbrúninni og veif- aði meðan veifað var á móti. 10. febrúar 1969. Ólafur V. Sigurðsson. ENGIN KEÐJA ER STERKARI EN VEIKASTI H LEKKURIN N TRYGGING ER NAUÐSYN ALMENNAR TRYGGINGAR PÓSTHÚSSTRÆTI 9 SlMI 17700 56 VlKINGUR ZU.

x

Sjómannablaðið Víkingur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.