Sjómannablaðið Víkingur - 01.03.1969, Side 13
Erling'.
Hallur.
Þrír framsýnir
fœreyzkir brœður
Hér er Stella Kristina. Að ofan sjáum við vinnuþilfarið.
Árið 1960 stofnuðu bræðurnir
Erlingur, Hallur og Trygvi
Laksafoss fyrirtækið P. F. Stella
Company í Klakksvík. Þeir hófu
útgerð á línuveiðaranum Stella
Maria og árið eftir á Stella Krist,-
ina.
Þeir veiddu þorsk við Græn
land og söltuðu um borð fyrir
Spánar- og Italíumarkað. 1968
eignuðust þeir Stella Karina,
línuveiðara með frystiútbúnaði,
sérstaklega útbúinn fyrir há-
karlaveiðar við Grænland fyrir
Norður-ltalíumarkað. Árið 1966
var bæði Maríu og Kristínu
breytt í hringnótabáta og seinna
seldir til Nýfundnalands. Síðar
sama ár seldu þeir Karinu öðru
fyrirtæki í Færeyjum.
í millitíðinni hafði Stella
Company samið við Söviknes
Verft í Noregi um smíSi 3ja
frysti- og skuttogara. Sá fyrsti,
núverandi Stella Kristina hefur
þegar verið afhentur, sá næsti
verður afhentur núna í marz, og
sá þriðji um áramótin.
Árið 1967 eignuðust Laksafoss-
bræður meirihluta í P. F. Vestur-
von í Sörvág og pöntuðu á þess
vegum enn einn frystitogara.
Verður hann nokkuð öðruvísi en
hinir þrír,sem smíðaðir eru eftir
sömu teikningu.
Nægur Markaður.
Þessi fjögur skip eiga að fram-
leiða fryst þorskflök í neytenda-
umbúðum fyrir Bandaríkjamark-
að þar sem þau verða seld undir
eigin vörumerki: P. F. Stella.
Samningur hefur veri'ö geröur
til 12 ára og rennur út 1980.
Flökin verða flutt til austur-
strandar Bandaríkjanna í banda-
rísk-skráðum frystiskipum til
dreifingar um öll Bandaríkin á
vegum 9 smásöludreifingarfyrir-
tækja. Síðasta skrefið í útþenslu
Stella Company er bygging nýrra
kæligeymslna í Klakksvík, 850.-
000 rúmfet, og fá þeir til hennar
90% lán frá dönsku stjórninni.
VÍKINGUR
57