Sjómannablaðið Víkingur

Årgang

Sjómannablaðið Víkingur - 01.03.1969, Side 35

Sjómannablaðið Víkingur - 01.03.1969, Side 35
Þórir Hinriksson: ÖFLUN BEITUSlLDAR Þar sem nýlega hefur verið skipuð nefnd til að kanna mögu- leika á hagnýtingu síldar og að- gerðir varðandi síldveiðiflotann, væri ekki úr vegi að athuga, hvort ekki væri hægt að gera eitthvað fyrir þann hluta bátaflotans, sem stundar veiðar með línu 7-8 mán- uði af árinu. Og kem ég þá að því efni, sem varðar báða þessa að- ila, þó lítið sé hvað síldveiðiflot- ann snertir. Það vita allir, sem stundað hafa veiðar með línu, að það er ekki sama hverskonar beitu fisk- inum er boðið upp á. Allir muna sjálfsagt eftir því, þegar þeir voru strákar með færið sitt, lágu á maganum niður á bryggju eða um borð í einhverjum bátnum, sem bundinn var við bryggjuna, þegar sá stóri kom að lykta af beitunni, sem var á önglinum og vildi ekki sjá hana, en kom svo kannski aftur, af því að hann fann ekkert betra. Ekki dettur mér í hug að þorsk- urinn breyti mikið um eðli, þegar hann er kominn út á haf, hvað »--------:--------------------- brúa nema með gengisfellingu, sem jafnframt hafði í för með sér ýmsar hliðarráðstafanir er áttu að hafa stuðlað að því að gengis- fellingin næði tilætluðum árangri. Eftir að þessar ráðstafanir höfðu verið gerðar, var Ijóst að vígstaðan í verkfalli okkar var erfið. Samningunum var sagt upp 1. nóvember og því tveir mánuðir til umráða til þess að ræða þessi mál. Var strax óskað eftir því við L. í. Ú. að viðræður hæfust um þessi mál og að samræma samn- ingana. Það er gömul saga í sam- bandi við flestar samningagerðir að viðræður hefjist ekki að neinu VlKINGUR þetta snertir, nema hvað hann er sennilega vandlátari. Nú á yfirstandandi vertíð eru gerðir út milli 30 og 40 bátar á línu frá ísafjarðardjúpi til Pat- reksfjarðar. Allir þessir bátar róa nú með mjög misjafna beitu að gæðum. En það er staðreynd að gæði beitunnar hefur mjög mikið að segja hvað aflamagn snertir, t.d. getur munað upp undir helm- ing á afla tveggja báta, sem leggja lóðir sínar á sömu miðum og á sama tíma, annar með 1. flokks beitu, en hinn með lélega. Geta þá allir séð hverju þetta munar fyrir útgerð bátanna og þjóðarbúið í heild. Beituþörf Vestfjarðabáta mið- að við meðaltal 17 róðra á mán- uði og 350 kg. af síld í róðri, væri yfir þá 5—6 mánuði, sem beitt er síld ca. 12—1500 tonn. (Steinbíts- tímabilið beitíi bátarnir yfirleitt loðnu nýrri eða frystri). Mér er ekki kunnugt um hversu mikil beituþörf er annars staðar á land- inu, en ekki er ósennilegt að það sé mun meira magn. Væri nú æskilegt að athugaðir yrðu mögu- leikarnir á því, hvort ekki væri hægt að frysta alla þessa beitu á síldarmiðunum sjálfum á þeim tíma sem síldin er feitust og bezt til beitu. Væri þar með tryggt að síldin væri alltaf glæ ný þegar hún er fryst. Sem kunnugt er gerðu Norðmenn út skip (Kosmos Fjórða) og frystu þeir töluvert af síld þar um borð, en sú síld var einmitt keypt hingað til landsins og hefur reynst mjög góð beita. En óþarft ætti að vera að eyða gjaldeyri í beitukaup. Mín hug- mynd er sú, að vel mætti gera út skip 400—500 tonn að stærð út- búið með hliðarskrúfum og síldar- dælu og myndi þetta skip fylgja síldveiðiflotanum og kaupa síld- ina beint úr nót veiðibátanna og skila henni síðan beint til kaup- enda. Með þessu móti mundi spar- ast flutningsgjald ásamt mörgu fleira og aðal kosturinn við þetta fyrirkomulag væri sá að beitan þiðnaði aldrei upp, eins og oft vill verða við beituflutninga. IJm gerð skipsins vísast til þeirra skipa sem Norðmenn gera út á línu á fjarlæg mið og læt ég ----------------------------— gagni fyrr en í lok samnings- tímabilsins og lendir það þá oft- ast í eindaga og tímaþröng, og þegar til verkfalls er komið vex þrjóska og kergja á báða bóga með degi hverjum sem verkföll standa. Verkfallsrétturinn er biturt vopn sem má ekki nota nema í nauðvörn. Uppsagnarfresturinn á samningunum á að notast af aðil- unum til viðræðna um deiluatrið- in, en þar sem uppsagnarfrestur virðist í flestum tilfellum ekki vera annað en nafnið eitt, virðist nauðsyn bera til að breyta vinnu- löggjöfinni þar sem skýr ákvæði væru um að sé samningum sagt upp með tveggja mánaða fyrir- vara skuli aðilar innan viku hefja viðræður og náist ekki samkomu- lag innan þriggja viknayrði deilu- aðilum skyit að vísa ágreiningsat- riðunum til Sáttasemjara ríkisins er hefði þá einn mánuð til þess að f jalla um málið. Breytilegar tíma- takmarkanir þyrftu að koma til sem færu eftir tímalengd upp- sagnarfrestsins varðandi viðkom- andi samninga. Ég vil svo þakka stjórn og samninganefnd Skipstjóra- og stýrimannafélagsins Aldan fyrir virkan þátt í þessum átökum. 79

x

Sjómannablaðið Víkingur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.