Sjómannablaðið Víkingur

Årgang

Sjómannablaðið Víkingur - 01.03.1969, Side 39

Sjómannablaðið Víkingur - 01.03.1969, Side 39
SALLY NIÐURLAG FRAMHALOSSOGUNNAR Eftir Mary H. Hooker. Þýðandi Magnús Jensson. — Skil ég þig rétt, Ted? Viltu skilja við mig? Hún undraðist hvað rödd henn- ar var róleg og eðlileg, um leið og hún kreisti glasið í hendi sér, svo að merkilegt mátti heita að það skyldi ekki brotna. — Já, ég skil vel hversu ósann- gjarnt þér hlýtur að finnast þetta. Það er heldur ekki með mínum góða vilja að svo er kom- ið. Ég var svo einmana — og þá er það sem slíkt getur skeð. Ég gat ekki hugsað mér að skrifa þér það. Ég varð að bíða með það, þar til ég hitti þig og gat sagt þér allt eins og það er. Ég verð að segja þér að ég er farinn að elska aðra konu. — Hvað ertu að segja, Ted? Hún tæmdi glasið. Nú var um að gera að leggja eyrun við. Lofa honum bara að tala og útskýra þetta allt, að eigin geðþótta. Auð- vitað bjóst hann við að hún myndi flóa í tárum og sýna mikla sorg. Og ekkert fyrirleit hann meir en grátandi kvenfólk. Hún minntist hve fyrirlitlega hann talaði um slík tilfelli er þau komu »-------------------------------» þeim frá því þeim var lagt. — Sólborg og Brimnes, og ennþá er- um við með útlend skip í fasta- leigu og ennþá eru smíðuð skip úr ,,tré,“ sem gliðna sundur und- an vélaafli nútímans. Höfum við ráð á þessu á hinum umtöluðu „krepputímum" í dag, þegar allt á að spara og öllu að „hagræfta.“ G. Þorbjömsson. VlKINGUR fyrir í starfi hans. — Nei, ekki tala um að láta sorgina buga sig! Hönd hans skalf er hann kveikti sér í sígarettu. — Hún heitir Marcia Baines, sagði hann. -— Ég hitti hana í Suður-Afríku. Ég var sóttur til litla drengsins hennar, þegar hann fékk lungnabólgu. Litli drengurinn hafði misst föður sinn áður en hann fæddist. Hana langaði til að spyrja hann, hvort hann héldi að Ted litli væri nokkuð betur settur í því efni. — Þegar fram liðu stundir og hann komst á óknytta aldurinn. Myndi það verða henn- ar að segja við fólk: — Er hægt að búast við öðru af dreng, sem aldrei hefur þekkt pabba sinn? Hann fór til Indlands áður en drengurinn fæddist og nokkru síðar skildum við. En það var bezt að minnast ekki á neitt slíkt núna. Hún vildi ekki slá á þá strengi, — eins og þessi Marcia. — Marcia Baines. — Henni fannst nafnið snubbótt. Það minnti hana á þrönga, snurfusaða garða, eða ilmvatns- öskjur. Kannske var hún ein af þessum ljóshærðu, er skiptu vel litum og báru ilmvatn bak við eyrun! Ó, Ted! — Veiztu nokkuð, Sally. Ég var hálfpartinn móðgaður við þig þegar þú talaðir um ótrúnað við þig. — Manstu rétt áður en ég fór? Auðvitað mundi hún eftir því. Hún hafði viljað gefa í skyn að hún liti á slíkt frá sjónarmiði nú- tíma siðferðis. — Það getur verið að þetta stríð standi lengi. Hafði hún sagt, er hún hvíldi í faðmi hans síð- ustu nóttina. — Ég vil því segja þér að ef þú átt ekki gott með að lifa munkalífi, þá taktu slíkt ekki nærri þér.— Það er að segja, ef þú mannst ávallt að það er ég sem þú elskar. En ef þú getur ekki annað, — þá vertu mér að- eins líkamlega ótrúr. En þú mátt aldrei láta neina konu taka mitt pláss í hjarta þínu. — Heldurðu ekki að þú hafir lesið of mikið af vitlausum reifurum, hafði hann sagt. — Ég verð þér jafn trúr og gamli hundurinn okkar, hann Troy! En svo var ekki frítt við að Troy gamli ætti sín smáævintýri. — Ég man þetta vel, sagði hún og lyfti glasinu að munni sér. Hann brosti dálítið drýgindalega. — Já, það gerði ég reyndar. Og ég gleðst yfir að þú skilur þetta. Ég hafði nefnilega búist við því af þér ...... — Einmitt svo, því hafðir þú búist við. Af því að hún hvorki hljóðaði né grét, eða bað um miskunn. Ég haga mér með öðr- um orðum á gamla góða enska vísu.........Nú er bara að tína samah leifarnar af eyðilögðu lífi, stinga þeim í töskuna hjá „brúð- arkjólnum" og fara síðan heim og fela lögfræðingi að ganga frá skilnaðinum! — Hvað viltu að ég geri ? spurði hún. 83

x

Sjómannablaðið Víkingur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.