Sjómannablaðið Víkingur

Volume

Sjómannablaðið Víkingur - 01.12.1975, Page 11

Sjómannablaðið Víkingur - 01.12.1975, Page 11
Sæbjörg VE með fullfermi, 67 tonn af vænum vertíðarfiski. Það er síldarhleðsla, skipið lunningafullt. Hilmar kom fjórum sinnum með bátinn svona yfirhlaðinn til lands á vertíðinni 1969. III. — Frá því að ég kom fyrst til Eyja 1945, er ég búinn að róa hyerja einustu vertíð. Fyrst var ég háseti, en eftir að ég kláraði sjómannaskól- ann þá varð ég stýrimaður þar í sex ár, eða svo, en formennsku byrj- aði ég árið 1956 og var þá með Gylfa, sem er 45 tonna bátur, smíð- aður í Svíþjóð. Með Gylfa var ég í þrjú ár, en þá fór ég út í það með mági mínum og félaga Theódór Ólafssyni að kaupa 50 tonna bát. Theódór er bróðir konunnar og er vélstjóri. Báturinn hét Sigrún, en við skýrð- um hann Sæbjörgu. Við áttum þennan bát í þrjú ár, en þá misstum við hann niður á trolli. Það kom að honum óstöðv- andi leki og við misstum hann á botninn. Það var haustið 1963. VÍKINGUR Við vorum að toga austur á Vík og ég var einn uppi, þá þurfti ég að skjótast niður í vél, og þá var heldur ljót aðkoma þar. Vélarrúmið hálf fullt af sjó. Ég ræsti strákana strax og við fórum að reyna að lensa skipið, en allt kom fyrir ekki og við urðum að yfirgefa bátinn, fórum við í gúmmíbát og bátur frá Vest- mannaeyjum fiskaði okkur upp en reyndi svo að draga bátinn til lands, en það tókst ekki og hann sökk til botns. — Hann hefur líklega slegið svona rækilega úr sér. Báturinn sem bjargaði okkur hét Gylfi, skipstjóri Hörður Jónsson. Varð engum meint af volkinu. — Það sama haust keyptum við Sæbjörgu, þennan bát sem við eig- um núna. Hann hét áður Sigurfari og var frá Akranesi. Þennan bát höfum við átt síðan og höfum gert á honum veigamiklar endurbætur, t.d. sett á hann hvalbak, nýjar vél- ar o.fl. Reyndar erum við að reyna að selja hann og höfum verið að því undanfarin tvö ár en hefur ekki tekist það, þar sem lánafyrirgreiðslur til kaupa á eldri fiskiskipum eru engar. Sæbjörg er 67 tonn. — A Sæbjörgu, eða þessum báti er ég búinn að róa síðan árið 1963. Á vertíðum á vetrum og á trolli á sumrum. Hann hefur reynst með af- brigðum vel, en er heldur lítill mið- að við þær kröfur sem núna eru gerðar til báta sem stunda þessar veiðar. — Hvað um aflamagnið. Það hefur verið metafli? —- Aflinn fer minnkandi á miðun- um hér við land, miðin eru ekki svip- 397

x

Sjómannablaðið Víkingur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.