Sjómannablaðið Víkingur

Árgangur

Sjómannablaðið Víkingur - 01.12.1975, Blaðsíða 19

Sjómannablaðið Víkingur - 01.12.1975, Blaðsíða 19
stað. Síðan má ekki blanda meira vatni í en sem samsvarar því, sem fer með loðnunni eftir sjóskilju í land. Þetta hefur verið reynt þar sem lítið ferskvatn er fáanlegt, t.d. í Vestmannaeyjum og á Höfn í Homafirði. Til að þetta sé gerlegt þurfa skipverjar að fá hluta af vatn- inu úr hrognaskiljunni undir þrýst- ingi til baka. Heppilegar virðast 32 mm (1*4 ”) liprar gúmmíslöngur og þrýstingur 3—5 kp/cm2. Afgang- ur hreinsaða vatnsins þarf að koma til baka um lipra barka og þá virðist VÍKINGUR ekki ráðlegt að nota stærri barka en 75 mm (3”) því þá eru þeir illa viðráðanlegir. Þurfa barkarnir að sjálfsögðu að vera það margir að þeir geti flutt allt vatnsmagnið aft- ur um borð í skipið. Gæta þarf þess vel að ekki sé notaður sjór við lönd- un og að ekki sé látið renna dælu- vatn í höfnina. Ljósmyndin sýnir hluta búnaðar- ins sem notaður var við tilraunimar í Örfirisey s.l. vetur ,en teikningin sýnir í grófum dráttum helstu þætti loðnulöndunar, þar sem dæluvatnið yrði skilið og endurnotað. Gert er ráð fyrir grófri skilju eftir sjóskiljuna. Einnig mætti endurbæta skilju þá sem bestan árangur gaf, bæta mætti stútinn, sem neðan á skiljuna var smíðaður og útbúa skiljuna þannig að auðveldlega megi taka úr henni stíflur af völdum aðskotahluta eða frosttappa, sem geta myndast í mestu frostum. Til fróðleiks má geta þess að hrognkelsaskilja af miðfióttaafls- gerð, með 3” dælu, mótor og öðrum nauðsynlegum búnaði kostar nú ca. 5—600 þús. kr. Auk þess kemur til 405

x

Sjómannablaðið Víkingur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.