Sjómannablaðið Víkingur - 01.12.1975, Side 25
leiðir, að starfsævi fiskimanna er orðin ískyggilega
stutt hér á iandi. Þegar það er að verða sjaldgæft
að menn séu lengur á þessum skipum, en fram yfir
fertugt.
Einn er sá málaflokkur, sem er yfirleitt lítið rædd-
ur hér á þessum þingum, en það eru farskipin, en
þar er stór hópur sjómanna að starfi. Farskipaflot-
inn hefur verið endurnýjaður og aukinn að mestu
leyti á síðustu árum, en það sorglega við þá aukn-
ingu er, að mestu ieyti er hætt að smíða ný skip
fyrir okkur, heldur keypt gömul skip og eru mörg
þeirra vægast sagt í slökum gæðaflokki, bæði hvað
allan útbúnað snertir og þá ekki síður um aðbúnað
áhafnar. Hann er oft og tíðum fyrir neðan allar hell-
ur, það er kominn tími til að sjómannasamtökin
fari að láta þau mál meira til sín taka. Þetta er
hættuleg þróun, því við áttum mjög góðan farskipa-
flota allar götur fram að 1970, en þá fór fyrst að
halla á ógæfuhliðina.
Flest af því, sem ég hef drepið á er nátengt kjara-
málum sjómanna. Þessi vandamál, sem íslenskur
sjávarútvegur á við cð glíma í sambandi við mann-
skap, er vegna þess að kjör sjómanna eru ekki nógu
góð, miðað við það, sem gerist í landi og á meðan
svo er, þá verður ekki úr þessu bætt, því megin
ástæða til þess að menn stundi sjómennsku, er að
þeir beri meir úr býtum, en þeir sem í landi vinna.
Bresti þessi forsenda þá leggst sjósókn smám saman
niður, en hvernig er þá hægt að búa í þessu landi.
Ég held það standi í mörgum hagspekingum, að
ráða fram úr þeirri gátu.
Góðir þingfulltrúar nú hef ég verið hér í for-
svari í 2 ár og þakka ég ánægjulegt samstarf við
ykkur og lærdómsríkt starf fyrir mig og mun ég ekki
Fráfarandi forseti, Guömundur Kjærnested t.v. og ný
kjörinn forseti, Jónas þorsteinsson t.h.
gefa kost á mér til forsetakjörs aftur, enda geri ég
ráð fyrir að fá næg verkefni við að eiga á næstunni
við gæslu hinna nýju fiskveiðimarka.
Ég segi hér með 27. þing Farmanna- og Fiski-
mannasambands íslands sett.
I. vélstjórí
Fyrsta vélstjóra vantar til starfa við væntanlegt Vestmannaeyjaskip. Viðkom-
andi þarf að hafa full vélstjóraréttindi (stærð vélar 2300 hestöfl.) og vera
viðbúinn að fara til Noregs til eftirlits fyrrihluta næsta árs og dvelja þar
meðan á smíði skipsins stendur eða til 15 júní n.k.
Umsóknir ásamt upplýsingum um fyrri störf sendist stjórn Herjólfs h.f. póst-
hólf 129 Vestmannaeyjum, fyrir 31. des. n.k.
Frekari upplýsingar veitir formaður stjórnarinnar Guðlaugur Gíslason, símar
91-11560 eða 91-21723.
Stjórn Herjólfs h.f.
Vestmannaeyjum
VÍKINGUR
411