Sjómannablaðið Víkingur - 01.06.1979, Page 14
Grímur Valdimarsson og Hannes Magnússon:
Gerlarannsóknir
á freöfiski
Tilgangurinn með þessu verk-
efni er að kanna hvaða þættir í
framieiðslu frystra fiskflaka hafa
mest áhrif á gcrlainnihald flak-
anna og að fá heildarmynd af hrá-
efnisgæðum og hreinlæti við freð-
fiskframleiðslu hér á landi.
Tekin hafa verið 419 sýni úr 60
frystihúsum. þar af 313 sýni af
þorskflökum. Gerlagróður í sýn-
unum var rannsakaður all ýtar-
lega, auk þess sem ýmis atriði voru
mæld í frystihúsunum, t.d. hitastig
í flökum og vinnslusölum og klór-
styrkur í vinnsluvatni. Þá er einnig
reynt að meta ýmis atriði í búnaði
húsanna, sem áhrif geta haft á
gerlagróður flakanna svo sem
fiskþvott, notkun flakakæla, al-
mennt hreinlætisástand o.fl.
Ætlunin er síðar að kanna með
tölvu samband milli gerlagróð-
ursins og hinna ýmsu áhrifaþátta,
en nú þegar gefa niðurstöðurnar
nokkrar vísbendingar.
Óhóflega hátt hitastig í
vinnslusölum virðist hafa áhrif til
hins verra eins og við mátti búast,
þótt um beina fylgni milli gerla-
fjölda í flökum og hitastigs í
vinnslusölum væri ekki að ræða.
Þá benda niðurstöðurnar til þess
að taka þurfi fiskþvott um borð í
veiðiskipunum og frystihúsunum
til athugunar.
I nokkrum tilfellum kom fram
mikill og stöðugur munur á gerla-
innihaldi flaka frá einstökum
húsum án þess að hægt væri að
finna á því nærtækar skýringar.
Þótt úrvinnsla úr þessari
gagnasöfnun sé skammt á veg
14
komin er ljóst, að fulla nauðsyn
ber til að gerlarannsóknir á freð-
fiski verði reglulegur liður í
gæðaeftirliti hlutaðeigandi aðila.
Verkefni þetta er unnið í sam-
vinnu við Framleiðslueftirlit
sjávarafurða, sem annaðist sýna-
töku og ýmsa gagnasöfnun.
Baldur Hjaltason við amíkósýrurannsóknir.
VÍKINGUR