Sjómannablaðið Víkingur

Árgangur

Sjómannablaðið Víkingur - 01.09.1997, Blaðsíða 68

Sjómannablaðið Víkingur - 01.09.1997, Blaðsíða 68
Ný og byltingarkennd vinnslulína fyrir frystihús Plötur í stað færibanda - Ætlað að leysa flæðilínuna af hólmi Björn Jóhannsson. Ný vinnslulína fyrir frystihús, sem án efa á eftir að valda byltingu í fiskvinnslu hér á landi, er nú í þróun og fram- leiðslu hjá Landssmiðjunni hf. Talið er að nýja línan geti aukið bitanýtingu flaka um rúm 10%, miðað við nýjustu flæðilínur, og hækkað afurðaverð vegna bættrar meðferðar og aukinna gæða. Jafnframt sparar hún mannafla í vinnslusal um 15%. Meginmunurinn á nýju lín- unni og hinni eldri er að hvert og eitt fiskflak fer á plötu í gegnum vinnsluferlið í stað færibanda áður. Aðeins eitt flak er á hverri plötu og það losnar því við allt hnjask sem mer og losar um fiskholdið. Önnur grundvallarbreyting er að flakið er snertifryst áður en þeð fer í vélskurð. Það auð- veldar skurðinn, bætir útlit og eykur nýtingu flaka. Ekki er lengur þörf á starfsfólki til að raða flakbitum inn í lausfrysti. Nýja linan er þannig upp- bygð að flökin eru í kældu um- hverfi á meðan á vinnslu stendur. Sjálvirkni er það mikil að mannshöndin snertir flakið aðeins einu sinni frá roðflett- ingu til lausfrystingar. Kælingin viðheldur ferskleika fisksins en jafnframt leiðir hún til þess að unnt verður að bæta starfsum- hverfi fiskvinnslufólks. Hægt verður að vinna fiskinn nánast í stofuhita þar sem hráefnið er ekki utan lokaðs kælikerfis nema í þær 20 sekúndur sem tekur að snyrta flakið. Plötulínan býður upp á stór- aukna möguleika á skráningu og upplýsingaflæði. Á plöt- unni, sem flytur flakið, er þekk- ill eða tölvumerki, þannig að hægt er að fylgjast með og skrá hvað gert er á öllum stig- um vinnslunnar. Til dæmis er hægt að vigta og skrá hvert og eitt flak að og frá starfsmanni. Með því gefst kostur á að fylgjast mjög nákvæmlega með nýtingu og afköstum. Auk þess er hægt að koma upp þekkingargrunni um vinnsluna sem er ómetanlegur við stjórn- un og áætlanagerð. Þegar tím- ar líða fram safnast saman dýrmætar upplýsingar um vinnsluna, svo sem um snyrti- tíma á flök miðað við þyngd. Nýju vinnslulínunni er ætlað að leysa flæðilínuna af hólmi. Flæðilínan kom fram fyrir rúm- um 10 árum og var bylting á sínum tíma. Helsti ókostur hennar er sá að flökin verða fyrir hnjaski á færiböndunum sem getur losað um fiskholdið og dregur úr fullkominni nýt- ingu. Á plötulinunni rekast flökin hins vegar aldrei á eða detta á milli færibanda. Flakið fer aldrei af plötunni nema í snyrtingu. Flæðilínan er hentug fyrir hópbónus en erfiðlega hefur gengið að sníða hana að 68 Sjómannablaðið Víkingur
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Sjómannablaðið Víkingur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.