Sjómannablaðið Víkingur - 01.02.2004, Side 6
Þingmenn Frjálslynda flokksins hafa
lagt fram tillögu til þingsályktunar
um úttekt á stöðu íslenskra farskipa og
er Sigurjón Þórðarson fyrsti flutnings-
maður. Tillagan er svohljóðandi:
Alþingi ályktar að fela fjármálaráðherra
að skipa fimm manna nefnd til að kanna
hvernig breyta megi skattareglum og öðr-
um reglum sem lúta að útgerð vöruflutn-
ingaskipa þannig að íslenskar útgerðir
sjái sér hag í að sigla skipum sínum und-
ir íslenskum fána með íslenskar áhafnir.
Nefndinni verði falið að fara yfir núgild-
andi reglur og reglur annarra þjóða og
móta tillögur til að ná framangreindu
markmiði.
Nefndin skili tillögum fyrir 1. október
2004.
í greinargerð með tillögunni segir
meðal annars: Tillaga þessi miðar að því
að íslensk skip sem sigla með vörur til
íslands verði að nýju mönnuð íslenskum
sjómönnum. Nú er svo komið að ekkert
Frd athajnasvæði Samskipa.
vöruflutningaskip siglir undir íslensku
flaggi. Áhafnir flutningaskipanna eru
ýmist skipaðar íslendingum að öllu leyti
eða að hluta og stundum er jafnvel eng-
inn íslendingur um borð. Ef frarn fer sem
horfir mun íslendingum í áhöfn skip-
anna fækka enn frekar og þeir jafnvel
hverfa úr áhöfn. Sú þróun hlýtur að vera
áhyggjuefni fyrir sjálfstæða þjóð á eyju í
miðju Atlantshafi að ráða ekki yfir þekk-
ingu til þess að sigla með vörur til og frá
landinu. Einnig skiptir miklu máli út frá
mengunarsjónarmiðum, svo sem til að
verja hrygningarsvæði nytjastofna, að
þeir sem sigla við strendur landsins með
hættulegan varning, t.d. olíu, séu stað-
kunnugir. Ætla má að íslenskir sjómenn
séu að jafnaði staðkunnugri en útlenskir
sjómenn og þekki betur þær hættur sem
ber að varast við strendur íslands.
Norrænar þjóðir hafa farið ýmsar
leiðir til þess að stuðla að því að flutn-
ingaskip sigli undir sinum þjóðfána og sé
ekki „flaggað út”. Það hefur hvatt fyrir-
tæki til þess að „flagga skipunum” að
með því hafa þau getað ráðið sjómenn
frá þróunarríkjum á launum sem eru
brot af launum norrænna sjómanna.
Flutningsmenn þessarar tillögu telja sér-
staklega áhugavert að skoða þá leið sem
Svíar hafa farið, þ.e. að allir sjómenn eru
ráðnir samkvæmt innlendum kjarasamn-
ingum en skattgreiðslur af launum renna
beint til útgerðarfyrirtækjanna í stað þess
að renna í ríkissjóð. Sænska ríkið nýtur
þess að sænskir ríkisborgarar eyða tekj-
um sínum í landinu en erlendir sjómenn
fara til heimalands sins með tekjur sínar.
Kjarasamningar \ið LÍÚ
iðræður í
Staðan í samningaviðræðum við
LÍÚ er sú, að aðilar hafa að und-
anfömu setið fundi undir stjórn
sáttasemjara. Mér finnst ganga ákaflega
hægt svo ekki sé fastar kveðið að orði.
Reyndari mennirnir segja að þetta sé
með skárra móti ef hlutirnir eru bornir
saman við fyrri reynslu. í öllu falli eru
menn að hittast og reyna að velta upp
leiðum sem hugsanlega gætu leitt til
lausna,” sagði Árni Bjarnason, forseti
FFSÍ, er Víkingur spurði frétta af gangi
viðræðna við LÍÚ um nýjan kjara-
samning. Farmanna- og fiskimanna-
sambandið hafa samflot í viðræðunum.
„Um er að ræða breytingar sem
hefðu í för með sér að sjómenn yrðu á
svipuðu róli og aðrar stéttir hvað
varðar lífeyrsmál, orlofsréttindi og
sjúkrasjóð svo eitthvað sé nefnt. Illa
gengur að rjúfa gat á þetta rammgerða
margumtalaða launaþak sem LÍÚ
byggði á sínum tíma, en ég held þó að
menn geri sér grein fyrir að einhverju
verður að kosta til vilji menn ekki
lenda í sama fúafeninu og í síðustu
kjaradeilu. Margar greinar í kjarasamn-
ingum eru börn síns tíma sem löngu er
tímabært að færa til nútíðar. Þótt mér
finnist ekkert ganga þá held ég að ó-
tímabært sé á þessari stundu að vera
með neinar stórar yfirlýsingar,” sagði
Árni Bjarnason.
6 - Sjómannablaðið Víkingui