Sjómannablaðið Víkingur

Árgangur

Sjómannablaðið Víkingur - 01.02.2004, Blaðsíða 10

Sjómannablaðið Víkingur - 01.02.2004, Blaðsíða 10
Menntafélagið ehf. Lengra nám í rekstri og stjórnun Hjá Menntafélaginu ehf. er stefnt að því að hefja einnar annar fjarnám í rekstri og stjórnun í samstarfi við skóla á háskólastigi. Það er ætlað skipstjórn- armönnum og vélfræð- ingum en er opið öðr- um sem áhuga hafa. Námið verður metið að fullu til eininga og samsvarar 6 eininga námi á háskólastigi. Námið gefur möguleika á áframhaldandi námi við rekstrar- og við- skiptadeild til B.S. gráðu. Ekki hefur enn verið ákveðið nákvæm- lega hvernig framkvæmd námsins verður en ýmist verður kennt í staðbundnum lotum frá fimmtudegi til laugardags eða í fjarfundabúnaði, námslotur eru alls fimm á önn. Einnig er gert ráð fyrir stuðnings- símatímum og sameiginlegu heimanámi nemenda á þar til gerðu heimasvæði á Netinu (námsskjá). Fornámskeið vor 2004 (valfrjálst, annað- hvort í fjarnámi eða i al- mennri kennslu): • Grunnnámskeið í notkun tölvu, 8 vikna fjarnám á geisladiskum með símaviðtalsstuðningi • Upprifjun í stærð- fræði á fjármálasviði, 3x3 klst. • Að skrifa skýrslur, 4 klst. • Akademísk vinnu- brögð, undirbúning- ur fjarnáms, 8 klst. 1. önn - haust 2004 Upplýsingatækni og rekstrarstjórnun, 20 kennslust.+ 23 kennslust. 3 einingar Fjárhagsbókhald - ársreikningur, reikn- ingshald, 45 kennslust. 3 einingar Mögulegir efnisþættir fyrstu önnina: • Upplýsingatækni Farið yfir helstu verkfæri (word, excel, ppt) og Netið, kennt á námsskjá sem vinnuumhverfi. Grunn-samskiptaregl- ur á Netinu og í tölvupósti. • Fjárhagsbókhald Upprifjun á grunnatriðum bókhalds (- debet-kredit, rekstrarreikningur/ efna- hagsreikningur), fjárhagsbókhald, árs- reikningar, kennitölur, reikningshald. • Rekstrarstjórnun Grunnatriði í iðnrekstrarfræði/rekstrar- stjórnun (upprifjun og framhald, t.d. hvernig er fljótlegast og best að bera saman verð og setja inn í vinnsluferli, hvernig spara mannskap og/eða nýta í annað í staðinn). Mögulegt er að taka eftirtalin fög á næstu misserum, eftirspurn nemenda ræður því hvaða fög verða tekin fyrir hverju sinni: • Skattskil, 45 kennslust. 3 einingar • Hagfræði, 45 kennslust. 3 einingar • Fjármál, 45 kennslust. 3 einingar • Lögfræði, 45 kennslust. 3 einingar • Markaðsfræði, 45 kennslust. 3 einingar • Aætlanagerð, 45 kennslust. 3 einingar • Rekstrarstjórnun, 45 kennslusl. 3 ein- ingar Jón B. Stejánsson skólameistari. Nýr bæklingur um meðhöndlun áfiski TT ÍThefur gefið út bæk- JLvJ-linginn Mikil vægi góðrar meðhöndlunar á fiski, sem, eins og titillinn gefur til kynna, fjallar um mikilvægi fyrstu meðhöndl- unar á fiski eftir að hann veiðist, svo sem blóðgun, slægingu, þvott og kælingu. Pessi grund- vallaratriði skipta höfuðmáli um það hversu mikil verðmæti hægt er að gera úr fiski. Pað hljómar dálítið undarlega, en það kemur ennþá dálítið flatt upp á marga hér á landi þegar rætt er unt að ísland sé fyrst og fremst matvælaframleiðsluland. Fiskur er að sjálfsögðu matvæli, reyndar það hráefni sem við eig- um mest undir í okkar þjóðarbúskap. Sama lögmál gildir um alla matvælafram- leiðslu, gæði afurðanna ráðast af því hversu gott hráefnið er. Náttúruleg- ir þættir hafa mikil áhrif i matvælaiðn- aði, í landbúnaði má t.d. nefna sjúk- dóma, þurrka, flóð, næturfrost og skor- dýraplágur. Hvað sjávarfang varðar hafa þættir eins og hitastig sjávar og fæðu- framboð áhrif á stærð og ástand fiski- stofna, en einnig skiptir mannlegi þáttur- inn miklu, þ.e. hvernig við meðhöndlum fiskinn. Aukin samkeppni að undanförnu á helstu mörkuðum okkar fyrir sjávaraf- urðir hefur i auknum mæli beint augum manna að þeim möguleikum sem felast í vinnslu og útflutningi á ferskum fiski og sjávarafurðum. Þar skiptir geymsluþol fisksins miklu máli, kaupendur eru væntanlega viljugri til að greiða hærra verð fyrir vöru sem „lifir” í versluninni i 12-15 daga í stað 7-9 daga og þar skiptir fyrsta meðhöndlun fisksins öllu. Það er AVS-rannsóknarsjóður í sjávar- útvegi sem styrkti gerð bæklingsins Mik- ilvægi góðrar meðhöndlunar á fiski. Bæklingurinn er ókeypis og til slendur að dreifa honum til sjómanna um land allt á næstunni. 10 - Sjómannablaðið Víkingur

x

Sjómannablaðið Víkingur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.