Sjómannablaðið Víkingur - 01.02.2004, Side 8
Slysa- og bráðalœkningar
Ahyggjur af óvissu um starf
lækna í þyrlum Gæslunnar
Stjórn Félags slysa- og bráðalækna
(FSBL) hefur sent frá sér ályktun þar
sem lýst er áhyggjum vegna þess óvissuá-
stands sem ríki varðandi starf lækna á
þyrlum Landhelgisgæslunnar. í ályktun-
inni segir að síðastliðin 20 ár hafi læknar
verið í áhöfn þyrlanna. Ljóst sé að um-
gengni um þyrlurnar, vinna um borð,
sigæfingar og teymisvinna sé mjög sér-
hæfð og krefjist mikillar þjálfunar svo og
viðhalds hennar með stöðugum æfing-
um. Samhæfing áhafnar sé grundvallarat-
riði til að hámarksárangur náist.
Geir H.
Haarde.
Fjármálaráðherra um
sjómannaafsláttinn
Málið er 1
biðstöðu
Fjármálaráðherra, Geir
H. Haarde, lagði fram
frumvarp á Alþingi um
breytingu á skattalögum
sem felur i sér að sjó-
mannaafslátturinn verði
afnuminn í áföngum. Síð-
an hefur ekki verið
minnst á málið í þingsölum. Sjó-
mannablaðið Víkingur sendi fjár-
málaráðherra því eftirfarandi fyrir-
spurn:
Hefur frumvarp fjármálaráðherra
um afnám sjómannaafsláttar verið
sett í salt um óákveðinn tíma eða
hefur verið fallið frá því að afnema
afsláttinn að svo stöddu?
Geir H. Haarde sendi eftirfarandi
svar:
Nei, frumvarpið hefur ekki verið
sett í salt, né hefur verið fallið frá því
að svo stöddu. Ég hef hins vegar
margítrekað að ekki sé réttlætanlegt
að afnema þennan hluta af kjörum
sjómanna án þess að eilthvað annað
kæmi í staðinn. Hefur það verið mitt
viðhorf að eðlilegast væri að útgerðin
stæði straum af þeim kostnaði að
stærstum hluta, en að um slikt yrði
að semja í viðræðum milli sjómanna
og útgerðar. Það hefur ekki verið
gert og er málið að því leyti í bið-
stöðu á meðan.
„Útköll þyrlunnar
eru oft óljós í upp-
hafi og upplýsinga-
flæði stundum
þannig að taka þarf
skjótar læknisfræði-
legar ákvarðanir,
jafnvel eftir að lagt
hefur verið af stað. Stundum gerist slíkt
vegna nýrra upplýsinga og jafnvel vegna
nýrra verkefna. Ljóst er að tæknileg at-
riði flugsins eru ekki í höndum lækna
heldur flugmanna en læknisfræðileg
ákvarðanataka og ábyrgð er í höndum
læknanna. Stýrimaður í áhöfn þyrlunnar
hefur hlotið menntun i sjúkraflutningum
sem hefur verið til mikillar hjálpar. Ljóst
er að meðan á flutningi sjúkra/slasaðra
stendur getur ástand viðkomandi breyst
skjótt og þarf þá að hafa hröð handtök
og fumlausan huga. Einnig er það ljóst
að með fækkun lækna víða á lands-
byggðinni hefur aðstaða til fyrstu mót-
töku slasaðra víða versnað og vaxandi
traust hefur verið lagt á hjálp aðkomuað-
ila t.d. þyrlulækna svo og sjúkraflugs t.d.
frá Akureyri. Við mótmælum því öllum
hugmyndum um minnkun eða niðurfell-
ingu á þessari þjónustu lækna sem yrði
til mikils skaða og gengisfellingar á
bráðaþjónuslunni í landinu,” segir i
ályktun stjórnarinnar.
Helmingur Kínaskipanna
hefur skipt um eigendur
Rúna í Hafnarfjarðarhöfn skömmu eftir komuna til landsins. (Ljósm. Víkingur)
Um helmingur þeirra fiskiskipa sem
smíðuð voru fyrir íslendinga í Kína
og afhent á árunum 2000-2002 hafa
skipt um eigendur. Alls voru 16 skip
smíðuð fyrir íslenskar útgerðir á þessum
tírna, þar af níu svokölluð fjölveiðiskip.
Af þeim skipum sem seld hafa verið fóru
fjögur til útlanda. Þetta eru miklar breyt-
ingar á eignarhaldi nýrra skipa á ekki
lengri tíma. Yfirleitt hafa þessi skip hlot-
ið góða dóma en fjölveiðiskipin níu
komu til landsins öll á einu bretti með
nutningaskipi. Þessi skip eru 116 brúttó-
tonn að stærð. Aðeins þrjú þeirra eru
enn í eigu sömu útgerða og þau voru
smíðuð fyrir. Það eru Rúna RE, Ársæll
Sigurðsson HF og Vestri BA. Skipin sem
seld hafa verið til útlanda eru: Ólafur KE
sem fór til Grænlands, Eyvindur KE sem
seldur var til Noregs og nú síðast var Sig-
urbjörg ST seld til Englands. Skipin sem
seld voru hér heima eru: Sæljón RE sem
heitir nú Benni Sæm GK og Nesfiskur
gerir út, Garðar BA sem heitir nú Sólborg
RE og Útgerðarfélagið Tjaldur gerir út og
loks Ýmir BA sem ber nafnið Siggi Bjarna
GK og Nesfiskur gerir út.
Sjávarútvegsvefur Fiskifrétta
8 - Sjómannablaðið Víkingur