Sjómannablaðið Víkingur - 01.02.2004, Side 19
Skipstjóra- og stýrimannafélagið Sindri
Félagssvæðið náði frá
Borgarfirði að Djúpavogi
Skipstjóra og stýrimannafélagið Sindri
var stofnað í Neskaupstað 25. mars
1978 af 28 skipstjórnarmönnum sem bú-
settir voru á staðnum. Fyrsti formaður
félagsins var kjörinn Hólmgeir Hregg-
viðsson og með honurn í stjórn Gísli B.
Gíslason gjaldkeri og Birgir Sigurjónsson
ritari. Fyrsti aðalfundur félagsins var
haldinn 23. desember 1978. Á félags-
fundi sem haldinn var 13. apríl 1979 var
samþykkt að stækka félagssvæðið þannig
að það næði yfir svæðið frá Borgarfirði
eystri suður með Austfjörðum að Djúpa-
vogi í suðri að báðum stöðum meðtöld-
um. Þeim skipstjórnarmönnum sem bú-
settir voru á svæðinu var gefinn kostur á
að gerast félagar og munu flestir þeirra
hafa gengið í félagið.
Á stjórnarfundi sem haldinn var í Nes-
kaupstað 23. maí 1980 sagði formaður
félagsins starfi sínu lausu vegna búferla-
flutninga og var varaformaður, Guð-
mundur Stefánsson, skipaður formaður í
hans stað. Gegndi hann því starii til aðal-
fundar 30. desember 1982 en þá var Ás-
mundur Ásmundsson kjörinn formaður.
Hann gegndi því starfi til 21. desember
1984 að Ólafur Gunnarsson tók við for-
mennsku og var formaður til 22. desem-
ber 1986 að Skafti Skúlason kom í hans
stað. Næsti formaður var svo Birgir Sig-
urjónsson sem tók við formennsku 30.
desember 1991, en 29. desember 1993
var Sturlaugur Stefánsson kjörinn og var
hann formaður til 30. desember 30. des-
ember. Pá tók Aðalsteinn Valdimarsson
við formennskunni og gegndi hann for-
mennsku til 24. janúar 2004 að félagið
sameinaðist Félagi íslenskra skipstjórnar-
manna, Skipstjóra- og stýrimannafélagi
Norðurlands og Skipstjóra- og stýri-
mannafélaginu Öldunni.
Sameining samþykkt
Fljótlega eftir stofnun Sindra keypti fé-
lagið íbúðarhús á jörðinni Firði i Mjóa-
flrði til að nota sem sumarhús fyrir fé-
lagsmenn og átti það hús í allmörg ár.
Það var svo selt vegna lítillar notkunar
félagsmanna. Þá var keyptur tjaldvagn og
fellihýsi sem félagar gátu tekið á leigu.
Notin af þeim voru ekki góð en viðhalds-
kostnaður mikill og voru þessi tæki því
fljótlega seld. Árið 1994 var svo sam-
þykkt að kaupa íbúð í Reykjavík og var
keypt 95 fermetra íbúð með 25 fermetra
bílskúr að Boðagranda 3 til afnota fyrir
félagsmenn.
í ágústmánuði 2003 var félagsmönnum
sendur atkvæðaseðill þar sem spurt var
um hvort sameinast ætti öðrum félögum
í eitt stórt félag. Þátttaka var góð og
sögðu allir þeir sem svöruðu já við sam-
einingunni. Von okkar er sú að nú verði
slagkraftur hins nýja félags enn meiri og
geta þess til að ná fram góðum málum.
Aðalsteinn Valdimarsson.
Félag íslenskra skipstjórnarmanna
Skipstjóra- og stýrimannafélagið Hafþór, Skipstjóra- og stýrimannafélagið Kári og
Skipstjóra- og stýrimannafélag íslands stofnuðu með sameiningu sinni 20. ágúst
2000 Félag íslenskra skipstjórnarmanna. Formaður var kosinn Eiríkur Jónsson og
gegndi hann embættinu við sameininguna í FS.
Starfsmenn FS
Árni Bjarnason, fonnaður.
Guðjón Ármann Einarsson,
framkvœmdastjóri.
Guðjón Petersen, far-
manna- og varðskipadeild.
Guðmundur Steingrímsson,
Norðurlandsskrifstofa.
Olga Herbcrtsdóttii; ritari.